föstudagur, 31. desember 2010

Ósk um gleðilegt ár

Rennið vel inn í nýja árið, eins og sagt er hér.......hérna munu örugglega margir renna í alvörunni því að  það er glerhált, í morgun var íshúð á gangstéttum og bílum. Ég datt samt ekki á leið í bakaríið og til kjötkaupmannsins. Eftir hádegi fór ég EIN í bæinn, það var kærkomin stund og þegar heim var komið var ég áfram ein, það var indælt svo ég skellti í kurltoppa, reyndar ekki alvöru, setti annað súkkulaði........ætla að luma á lakkrískurlinu aðeins lengur. Þar sem topparnir pössuðu ekki allir á eina plötu gerði ég bara botn úr restinni, skellti rjóma á hann og frosna trópíska ávextir þar ofan á.......ætla með tertuna til Sultan mágkonu á eftir. Við munum eyða áramótunum þar, förum alveg að leggja í´ann. Sitjum bara hér og horfum á TV, höngum á netinu og fleira mis gáfulegt. Ég er tilbúin, þarf kannski aðeins að laga á mér hárið og taka til dót í handtösku til að fara með. Ætla líka að taka slatta af heimabarnum með, þarf endilega að losna við eitthvað af þessu.

Ég set mér engin áramótaheit, ekki þannig. Mætti samt alveg slaka aðeins á, ekki stressa mig svona á smáhlutum ..... taka hlutunum með ró, ekki æsa mig og svo framvegis. Það er fínt áramótaheit. Njóta líka þess sem ég hef með bros á vörum. Neikvæðni fer illa með mann, ójá.

Gangið hægt um gleðinnar dyr kæru lesendur. Sjáumst á nýju ári.

laugardagur, 25. desember 2010

Gleðileg jól...

...gangið hægt um gleðinnar dyr en étið á ykkur gat.....ég er búin að því 2 daga í röð og sá þriðji verður á morgun!
Hjá okkur er örugglega strærsta grýlukerti bæjarins......
Knús í öll hús

fimmtudagur, 23. desember 2010

1 dagur til jóla


Ætla nú ekkert að blogga neitt mikið núna, bara nokkur orð svona á Þorláksmessu. Verði þeim að góðu sem borða skötu, ekki geri ég það en Seydi át þennan viðbjóð með bestu lyst hér um árið....

 Ég fór í vinnuna fyrri partinn til að hjálpa smá til, tók strákana bara með. Þeir eru "örlítið" spenntir fyrir jólunum, smá þreytandi þessa stundina, mikið að kýta og nöldra.........er það ekki bara eðlilegt svona korter í jól???

Í fyrradag veiktist ég smá en mér leið svoooooooooooo illa seinni partinn, var viss um að eitthvað hefði nú verið í ólagi hjá Kínverjanum en við Seydi fórum út að borða í hádeginu. Ég fór því í bað og lagðist í rúmið og var þar þangað til daginn eftir, tja svona næstum því, náði nú í þvottinn og tók upp þátt fyrir Bärbel vinkonu. Fór ekkert í vinnu í gær, skellti mér til læknis sem heyrði smá hljóð í mallakút og lét mig hafa resept fyrir malladropum, MCP heita þeir nú og gera kraftaverk. Þar sem ég var í bænum notaði ég tækifærið og keypti jólagjafir handa strákunum, rogaðist svo með herlegheitin heim og pakkaði inn áður en ég náði í strákana úr gæslunni en í gær var síðasti skóladagurinn. Gæslan er reyndar opin í dag en við ákváðum bara að vera heima.

Núna er ég komin heim, sit við eldhúsborðið með þráðlausa netið mitt, hlusta á jólakveðjur. Hangikjötið er alveg að fara að sjóða og rauðkálið er byrjað að malla. Strákarnir leika sér í tölvunni og sjónvarpið er í gangi..... Þeir vilja helst opna pakka núna en það er bannað! Ég á eftir að kaupa mér eitthvað svo ég fari ekki í jólaköttinn, eiginlega gjöf handa Seydi líka en hann vill ekkert og segist ekki vanta neitt. Það eru opnar búðir í fyrramálið svo að ég ætla að drífa mig  þá.

Óska öllum lesendum gleðilegrar hátíðar og farsældar á nýju ári. Reyndar getur alveg verið að ég bloggi aftur fyrir áramót en ef ekki, læt ég þetta standa líka. Hér verða hvít jól, grýlukerta jól. Ég þarf sem sagt ekkert að fara til Íslands til að fá hvít jól..........enda hefur  það gengi brösulega að fá þau þessi síðustu tvö skipti sem ég kom um jólin, hahaha. Vantar bara fjall til að skíða í, þá væri þetta frábært. Get reyndar keyrt í fjöllin en það tekur um 2 tíma, veit ekki hvort að  ég nenni því í þessu vetrarríki sem hér er núna.

Farið ykkur hægt og ekkert stress...........

þriðjudagur, 14. desember 2010

10 dagar til jóla...

...og ég á bara eftir að kaupa jólagjafir handa strákunum, Seydi og Bärbel, baka kannski smá og já, ætli ég verði ekki að kaupa eitthvað nýtt til að fara í, þó ekki væri nema nýja brók....... ómögulegt að fara í jólaköttinn! Kemst bara svo asskoti sjaldan ein í bæinn. Glatað að vera með strákana í bænum, þeim finnst svoooooooo leiðinlegt að fara í búðir, nema dótabúðir auðvitað. Reyndar er allt í lagi að fara með Julian einan en Henrik er alger horror, það bara verður að segjast.......

Ekki veit ég hverju ég ætla að klæðast á aðfangadag enda eru þetta kannski 2-3 tímar sem ég er fín og svo taka bara lummuheitin við, þ.e. heimadress og sjónvarpsgláp. Þegar ég fer til Íslands er allt annað upp á teningnum, þá þarf að eiga mörg dress...... eitt fyrir aðfangadag, annað á jóladag, þriðja á jólaball, fjórða á gamlárs og eitthvað fleiri þar á milli. Þvílíkt stress sem ég slepp við í ár, hahaha. Svo á ég nú eitthvað að fínni fötum sem hanga inni í skáp og rykfalla því að þau eru svo sjaldan notuð. Ég er eiginlega hætt að kaupa mér "ofur" fín föt þar sem ég sé varla fram á að nota þau, er meira þessi praktíska týpa og finnst auðvitað best að vera í gallabuxum og langerma bol, kannski vesti utan yfir ef það er kalt. Lopavestið frá Unni er í miklu uppáhaldi þessa dagana, ég er ansi hrædd um að ég þurfi að þvo það á næstunni......já hrædd um,  því að ég er skíthrædd um að skemma það! Á ég að treysta ullarstillingunni á þvottavélinni??? Ég á alveg þvottaefni fyrir ull en ég bara má ekki láta vestið hlaupa.......það væri hálfgerður heimsendir.

Best að ath. hvort ég eigi mynd handa ykkur..........
Jólin, jólin, jólin koma brátt...

Ég veit, fyrir ykkur sem eruð á facebook er þetta ekki ný mynd en mamma, kvittarinn mikli, er ekki búin að sjá hana.....nema hún hafi fengið að kíkka hjá einkasyninum, efast samt um það. Mamma, fyrir þig :) Ég dreif bara í því að skreyta en Julian vildi endilega ná í jólatréð svo ég lét af þeirri ósk þó að hefð hafi verið fyrir því á Garðarsbraut 53, að skreyta tréð á Þorláksmessu. Ég bý bara til mínar eigin hefðir, blanda þeim við gamlar hefðir en læt engan segja mér hvenær ég geri hitt eða þetta........Ég ræð mér sjálf. Nei, nei, það var enginn að segja mér að gera neitt, er bara að reyna að blogga um eitthvað, allt og ekkert, hitt og þetta, hehe. 

Mig langar svo til að komast í klippingu fyrir jól. Er samt ekki búin að finna neinn klippara sem ég myndi endilega fara aftur til og í strípur hef ég aldrei farið......hér í Þýskalandi sko. Treysti þeim ekki alveg, nema ég fari á einhverja fína stofu en það er varla stígandi þar inn nema vera með millur í veskinu, svo segja sögurnar. Mér fannst klippingin á fréttakonunni í "Megamind" bíómyndinni ansi girnileg en með mitt liðaða hár veit ég ekki hvernig hún kæmi út.......tek það fram að þetta er teiknimynd ;) Eða svona Pixar dæmi, þið vitið. Ef ég léti klippa mig frekar stutt núna væri ég komið með minn eigin háralit, geri aðrir betur.........Þó ég segi sjálf frá, þá er ég bara með nokkuð fallega brúnt hár, fyrir utan þessi nokkru gráu í vöngunum, mætti kannski vera meiri gljái en það má redda því. Sé til hvað ég geri.......
Þetta er skvísan úr Megamind :)

Jæja elskurnar, óska þess að jólastressið fari ekki alveg með ykkur. Mamma sagði alltaf fyrir jólin: Jólin koma þó að allt sé ekki tilbúið........

sunnudagur, 5. desember 2010

Jólin nálgast óðum...

... og ég held að ég sé bara í góðum málum. Búin að kaupa allar jólagjafir sem fara heim, pakka þeim inn, skrifa á umslögin (er með standard kort handa öllum), kaupa kassa á pósthúsinu og koma þessu öllu í hann ásamt smá sætindum, skrifa á tollmiðann, meira sem þetta er orðið flókið allt saman........er víst ekki vel séð að skrifa bara "föt" (eða clothes á ensku) heldur á helst að skrifa "bómullar skyrta" osfrv........ég skrifaði þetta alveg eins skynsamlega og ég gat enda ekki endalaust pláss til að koma þessu öllu fyrir! Ekki gert ráð fyrir að fólk sé að senda marga tugi af mismunandi dóti eða hvað??? Æi, ég vona bara að pakkinn komist til skila fyrir jól, á að taka 5-10 daga að komast til Íslands. Nú svo þarf pósturinn á Íslandi endilega að vera með annað kóðakerfi en hér svo ég gat t.d. ekki fylgst með pakkanum á Íslandi í fyrra.........og hann kom á aðfangadag. Var löngu farinn úr landi, það gat ég séð. Vonum bara það besta.

Hér er allavega kominn jólasnjór, alveg spurning hvort að hann verður enn þegar jólin sjálf koma. Við skelltum okkur á þotu í dag. Komum svo hundblaut heim enda var hálfgerð slydda og slabb og blautt úti. Ég hitaði því kakó handa okkur til að ylja kaldar tásur og putta. Best að sýna ykkur fína snjókarlinn minn :)
Flottur með 66°N húfu, samt smá fúll greyið....

Ég labbaði ein í bæinn áðan, mikið var það nú gott, þrátt fyrir slabb og læti. Og viti menn....ég fann bæði dagatalakerti og aðventuljós, jibbí. Eitthvað sem er alger hefð hjá mér en aðventuljósið sem ég keypti í fyrra á flóamarkaði er klikk, fæ engar perur í það og ég var búin að leita að dagatalakerti útum allt! Fann það svo í dm-drogeriemarkt þrátt fyrir að starfstúlkurnar þar hefðu sagt mér um daginn að þau væru ekki til....... örugglega kerti frá því í fyrra eða hitteðfyrra (er þetta orð skrifað svona??). Þegar ég kem heim úr bænum, búin að ryðja þunga snjónum af bílunum okkar, mæti ég köllunum mínum á leið til tengdó. Æi, ég ákvað bara að vera heima og hlusta á jólastjörnuna, blogga og skoða facebook, hahaha. Er enn smá kvefuð og ákvað að taka töflurnar mínar góðu við nefholustíflum og  þær eru að virka en í gær fékk ég í vinstra eyrað.....ég sem fæ aldrei í eyrun, ekki einu sinni sem krakki. Er skárri í dag en verð að passa mig. 

Þokkalegt blogg í dag.......að ég skuli nenna þessu. 

Knús á sunnudegi og gleðilegan annað í aðventu. Já og vitiði hvaðan aðventurkransinn er??? Nú auðvitað frá Þýskalandi, hvað annað :)

fimmtudagur, 25. nóvember 2010

Nennekki.....

.....að blogga þessa dagana, ætla ekki að fara að röfla um foreldra viðtalið hjá Julian sem fór alveg "úr böndunum". Læt duga að hafa skrifað í vefdagbók hans en þetta er geymt en ekki gleymt.........líður betur núna, þessi vika er búin að vera fín, nóg að gera í föndri, bakstri og amstri. Nokkrum jólagjöfum var reddað í dag. Hætti fyrr í vinnunni og skrapp í bæinn í Dorsten. Notalegt að versla þar, ekkert of mikið úrval en samt nóg. H&M, dm og co.klikka ekki. Náði svo í strákana og við beint til dokksa að láta bólusetja Henrik aftur við hlaupabólu (þarf að fara tvisvar) en í staðin fengum við okkur öll þrjú flensusprautu. Henrik fer bara aftur í næstu viku í bólusetningu. Ég er ekki frá því að ég sé hálf lasin núna, með kvef og örþreytt! Kannski eftir sprautuna?! Best að koma með myndir......
Mini kiwi sem Heri vinnumaður á verkstæðinu kom með :)

Í dag er Þakkargjörðin í USA, ekkert þannig hér, allavega ekki í sömu mynd. Reyndar er eitthvað svipað hér en það er í október,heitir "Erntedankfest" eða uppskeruhátíð. Ég væri alveg til í svona þakkargjörð með kalkún, fjölskylduna í heimsókn og endalaust át......verð að bíða fram að jólum, allavega með matinn. Er ekkert á leið til Ísland enda óhemju dýrt að fljúga með Icelandair, alveg óheyrilegt bara! Fyrst að ég kem ekki verður örugglega snjór, nokkuð víst held ég bara ;) Kannski fáum við snjó hér aftur, allavega er nógu kalt núna og spáð snjó í nótt. Kannski verður hált í fyrramálið, best að keyra varlega á morgun. 
Jæja, önnur mynd 
Jólamarkaðurinn opnaði á mánudaginn

Ég er svo að hugsa um að sleppa jólakortum í ár............EN eiginlega langar mig ekki til þess. Ætli ég panti ekki myndakort á netinu eins og síðustu ár. Nenni varla að skrifa á jólakort........úff, ég nenni bara engu! Á líka eftir að pakka inn jólagjöfum, kaupa nokkrar og baka smákökur. Gerði piparkökudeig í gær til að Julian gæti farið með það í skólann. Það heppnaðist bara feykivel :) 

Læt þetta duga í dag........ætla að spjalla við mömmu á msn.
Knús

föstudagur, 12. nóvember 2010

Gestir farnir

Ég þori allavega að staðhæfa það að lúsirnar eru farnar, allar sem ein. Ég veit ekki hvað er búin að reyta mörg hár úr mínu höfði en í hvert skipti sem mig klæjaði, eða að mér fannst vera hreyfing í hárinu, greip ég í kambinn góða og þjösnaðist í hárinu........eins gott að ég er með þykkt og mikið hár! Annars væri ég hálf sköllótt. Ég óska engum þess að fá þessa óboðnu gesti en ég sá í sjónvarpinu og m.a.s. súperstjörnur eins og Madonna fá líka svona gesti, hehe.

Smá haustlokamynd til að lífga upp á stemminguna.

Nú er mig virkilega farið að langa í að komast EIN í búðir, þarf svo að fara að huga að jólagjöfum. Ég sé ekki fram á það á næstunni, alltaf eitthvað um að vera, mikið að gera í vinnunni líka. Ætli það endi ekki með því að ég panta flest á netinu, ætti kannski að huga að því, ekki svo vitlaus hugmynd. Mig langar samt að komast ein í búðir, helst með þúsund evrur með mér.......bara spreða. Er samt viss um að ég myndi ekki finna neitt sem mig langar í en það er annað mál ;)

Í næstu viku eru foreldarviðtöl í skólanum og ég gæti skrifað heila ritgerð um hvernig það gekk að fá réttan tíma hjá kennurunum. Best að hafa þetta stutt samt....... Fyrst fékk ég blað til að fylla út, hjá Henrik hvenær ég kæmist ekki, hjá Julian hvenær ég kæmist......OK. Hjá H. fékk ég tíma á mánudaginn kl.13:45, hjá J. á þriðjudaginn kl.14:40.......fattaði þá að ég þarf að fara með H. í heyrnarpróf á þriðjudaginn kl.15:15, í bæ sem er í um hálftíma fjarlægð.....OK, ég bið um nýjan tíma fyrir J. Fékk það og hann er á mán. kl.13:40.... .....glæsilegt.......gleymdi að segja hvenær ég ætti tíma hjá H. Þvílík hringavitleysa, ég var algerlega komin með rugluna í gær. Skrifaði bréf til kennara J. um að fá enn nýjan tíma EN J. gleymdi að láta hana hafa miðann.......SHIT, hvað geri ég nú??? OK, ég skrifa bara bréf til beggja kennaranna um að ég muni vera á staðnum, mæta þar sem ég kæmist fyrst að (oftast þarf maður að bíða, sumir foreldrar hafa mikið að spyrja osfrv.). Vona svo að strákarnir sýni nú kennurunum bréfin á mánudaginn. Náðuð þið þessu......ef ekki, skiptir ekki máli. Það er föstudagur og það er uppáhaldsdagurinn minn. Ég fór í bakaríið og keypti bakkelsi, borðaði það og drakk örbylgjuhitað kaffi með. Úti er haustveður, hvasst og þungbúið. Best að vera bara inni, þvo þvott og hanga á netinu........

Góða helgi og takk fyrir innlitið.

miðvikudagur, 3. nóvember 2010

Smá andi

Bara smá samt......veit ekki hve mikinn frið ég fæ til að skrifa nokkur orð. Strákarnir eru reyndar ný farnir inn í herbergi að dunda, eða eitthvað, er ekkert að trufla of mikið. Eina sem komið hefur var "Mamma, Henrik er að trufla mig".......alltaf sama sagan. Ég sagði bara, "Æi strákar" og hef ekki heyrt meira síðan.

Eiginlega hafði ég svo mikið að segja en núna er eins og allt sé dottið út, ég held að þetta lúsaeitur hafi hreinsað til fyrir innan hauskúpuna líka. Alveg hreint ótrúlegt. Mig klæjar enn í hausinn og gríp í kambinn um leið og mig klæjar......hef ekki fundið lús í dag, 7,9,13, Þetta hjálpar sjálfsagt ekkert, hef hingað til ekki verið hjátrúarfull en mér finnst þetta bara passa við núna. Þessi lús hefur haft okkur í heljargreipum í viku! Henrik greiddi mér aðeins áðan og leit yfir hárið, fannst það nú heldur mikið samt. Ég sagði að lýsnar væru farnar og þá sagði dúllan "Getum við þá knúsast?" Auðvitað gerðum við það........Reyndar áttum við góða stund í gærkvöld, kúrðum öll (ég og strákarnir) áður en að þeir fóru að sofa. Það er toppurinn á tilverunni, sérstaklega hjá Julian.

Nú er aldeilis orðið dimmt seinni partinn. Síðan að klukkan var færð aftur um klukkutíma er fyrr dimmt á kvöldin en þeim mun lengur bjart á morgnana. Gott þegar skólar byrjar kl.8 en núna er ekki dimmt þegar við löbbum þangað. Henrik vill enn að ég fylgi honum og ég geri það, eins lengi og hann vill. Mér er alveg sama þó að það sé mælt með því að krakkar labbi einir eftir nokkrar vikur.......maður veit aldrei hvað getur gerst þó að þetta sé stutt leið. Julian vill ekki labba einn þegar hann þarf í 2.tíma og þarf helst að sjá einhvern til að labba inn á skólalóð. Vill vera viss á því að einhver sé þarna. Æi þeir eru báðir yndislegir blessaðir.

Hey, gleymdi næstum því að setja inn myndir.........
 Þessi hjú auglýstu Þakkargjarðar markað í Hochlar bæjarhlutanum
Recklinghausen leuchtet=RE upplýst
Síðustu dagar laufsins á trjánum eru fallegastir

Nú eru laufblöðin alveg að hverfa, falla til jarðar ótt og títt, sérstaklega þegar hvasst er. Í gær lenti ég í stórhríð, þ.e. laufblaðastórhríð. Ég elska þessa hríð, ég fyllist angurværð í svona hríð. Yndislegt. Enn er frekar hlýtt í veðri, 14° í dag og spáð hlýrra á morgun. Svo er víst spáð kaldara, kannski að veturinn sé bara á næsta leyti.......hver veit? Vonandi ekki alveg strax, fyrst mega nú laufin falla alveg af trjánum en sum eiga nokkuð í land. Laufin eru varla fallinn til jarðar þegar einhver kemur og rakar þau í burtu, ef þú gerir það ekki og einhver fellur fyrir utan hjá  þér er hægt að sakast við þig.......það er bara þannig. Á sumum götum koma þeir sem vinna hjá bænum og raka/blása saman laufunum, henda þeim svo í tilheyrandi tunnur. Það sést m.a.s. í svona græna tunnu á neðstu myndinni. Laufblásararnir eru háværir, hrikalega leiðinlegt hljóð í þeim, verra en slátturvélasuð eða trjásög. Sem betur fer eru þeir ekki mikið notaðir fyrir utan hjá mér því að bæjarstarfsmennirnir byrja oft MJÖG snemma að blása........
Læt þetta duga í dag, Henrik er kominn til að "trufla", hann vill að ég lesi allt bloggið fyrir hann. Erfitt fyrir hann að lesa íslensku en hann er orðinn ansi sleipur í þýskunni, þ.e. að lesa. Ég þyrfti að fá einkakennara til að vera með strákana í íslensku........Hjálmar, langar þig ekki bara að koma sem Au-Pair? Hahahaha. Yrði reyndar að fá mér stærra húsnæði til að taka á móti barnapíum. Ekkert gengur eða rekur í því, erum kannski ekki að leita með miklum móð en alltaf með augu og eyru opin. Lítið að hafa, annað hvort hús á hálfa milljón eða hreysi á 100 þús. Ég ætla ekki að kaupa hús, bara til að kaupa hús.......verð að velja vel. Kona sem við þekkjum vinnur sem fasteignasali og hún sagði "Númer 1 er staðsetning, nr. 2 er staðsetning og nr.3 er staðsetning"! Sjáum til hvað verður........ 

Kallinn kominn heim, bara snemma í því í dag, klukkan er bara hálf níu. Og ég sem eldaði ekki neitt, át bara samlokur með skinku og osti. Strákunum til mikillar gleði. Henrik át tvær :)

Bið að heilsa og við heyrumst síðar gott fólk.





mánudagur, 1. nóvember 2010

Andinn fer að koma...

...örstutt. Andinn er ekki kominn, gef mér ekki tíma til að blogga almennilega, vildi samt láta vita af mér. Að ég sé enn lifandi þrátt fyrir lúsagang..........þessir óboðnu gestir settu allt úr skorðum í mínu lífi, ég fékk næstum því taugaáfall, varð "paranojuð" útaf mylsnu og húðflögum, hrikalega pirruð bara! Þetta bitnaði á öllum í fjölskyldunni, eins gott að hún er ekki stór. Ég klippti strákana vel í gær, greiði mér og  þeim oft á dag. Úff, þetta var ömurleg vika, þannig.
Skrifa meira seinna.........lofa því og þá fylgja myndir með.

laugardagur, 16. október 2010

Bleyta

Engin haustblíða lengur, heldur er komin rigning og hitastigið ekkert til að hrópa húrra yfir, rétt skríður yfir 10° þessa dagana. Suma morgna í síðustu viku var svo kalt að það var frost við jörðu og sumstaðar þurfti að skafa rúður! Þegar það er svona bjart yfir er frostið fljótt að koma. Mætti halda að ég hefði ekki um neitt að skrifa nema veðrið......gerir maður það ekki þegar ekkert er að frétta? Er kannski eitthvað að frétta? Alveg spurning.

 Ég er allavega búin að losa mig við þessi aukakíló sem ég bætti á mig þegar ég kom frá Tyrklandi. Ekki að ég hafi samt verið dugleg að labba úti, nei, því er af og frá. Ég byrjaði rosa dugleg en svo fékk ég helvítis kvefið og þegar það var farið var orðið svo dimmt úti klukkan 6 á morgnana, að ég hætti mér ekki út. Ætla mér frekar að hætta fyrr í vinnunni og hreyfa mig áður en ég næ í strákana. Geri það þegar skólinn byrjar aftur en núna er haustfrí. Var nú svo vond mamma að ég sendi gaurana í gæslu þar sem ég er í vinnu. Julian er nú ekki beint hrifinn af því að þurfa báðar vikurnar í gæsluna, þetta sé sko ekkert frí, segir hann. Við ræðum kannski við "bossinn" um að fá frí einhverja daga í næstu viku ;)

Best að koma með eina mynd eða svo.......
 Séð frá göngubrú rétt hjá slökkvistöðinni

Mikið var gott að vera í fríi í mánudaginn en ég þurfti til kvennsa kl.10 og ákvað að vera bara í fríi. Ég vafraði svo um bæinn eftir læknisheimsóknina en fann bara ekkert sem mig langaði í.......fattaði ekki fyrr en eftir á að auðvitað hefði ég átt að nota tímann til að kaupa jólagjafir. Alveg asni get ég verið, alltaf með jólagjafirnar á síðustu stundu. Ég hlýt að finna mér tíma til að kaupa eitthvað fallegt handa vinum og vandamönnum, ef ekki panta ég bara gjafir á netinu og læt færa mér heim. Allt hægt að fá á netinu, næstum því allavega. Ætli ég muni eftir að kaupa litlar og léttar jólagjafir í ár???? Efast um það, í fyrra sendi ég tæplega 8 kg. pakka til Íslands! Sem er náttúrulega alger bilun en ég er aldrei vitur eftir á þegar kemur að jólagjöfum, úbbs.

Laugardagur í dag, Seydi farinn að kaupa bíla, strákarnir leika sér, ég búin að baka "cup cakes" úr pakka. Bíð eftir að þær kólni svo ég geti sett kremið á, þarf reyndar að hræra það fyrst. Hálf hráslagalegt úti núna, rigning af og til og þungskýjað. Nóvemberlegt veður, segja spekingarnir. Þarf að fara að huga að graskeri til að skera út í. Keyri nú framhjá graskerja söluskúr á hverjum degi, þarf bara að gefa mér tíma og stoppa einn daginn. Hlusta á Rás 2 á laugardegi, indælt.......ha, á að snjóa fyrir norðan á mánudaginn? Svo segja þau á Rás 2. Veturinn er sem sagt ekki langt undan, bæði hér og á Íslandi. Vona að skíðaíþróttir fari að byrja í TV, hlýtur að styttast í það.
Góða helgi allir.


sunnudagur, 10. október 2010

Breytingar enn og aftur.....

....nenni samt ekkert að blogga núna enda komið yfir miðnætti, það er sem sagt kominn 10.10.10. Örugglega margir sem gifta sig í dag. Ekki ég samt...... Kannski finn ég mynd til að senda með þessu breytta útliti, æi ég varð bara að setja eitthvað appelsínugult í tilefni af október, Halloween, graskerjum og svona. Hér er geggjað haustveður sem engan endi sér á, eitthvað á að kólna en það er allt í lagi meðan að blessuð sólin skín.
Sparkað í haustsólinni :) Þekkiði Henrik?

Segi bara góða nótt og sofið vel.

sunnudagur, 3. október 2010

Blíða og ekkert nema blíða

Var byrjuð að blogga í morgun þegar Seydi kom óvænt heim, hætt við fótboltann, mættu of fáir......ég ákvað því að geyma það aðeins að blogga, þarf frið til þess. Hef hann núna, í smá stund allavega. Seydi sefur, eða svaf, dyrabjallan hringdi og truflaði. Strákarnir leika inni í herbergi en þeir heimsóttu afa sinn og ömmu eftir bæjarferðina okkar. Í dag er víst þjóðhátíðardagur, reyndar sameiningardagur austur- og vestur Þýskalands. Það ber lítið á þessum degi hér, í bænum er bæjarhátíð, í Dorsten líka, búðir opnar og alles. Veðrið er alger æði, stuttermabola veður og sól. Má alveg vera svona áfram svo við fáum gullinn október, eins og sagt er hér.
Um daginn var svona þoka...
Í gær fyrir framan skólann
og í dag 22° hiti og sól :)
Æi,nú er friðurinn úti.......ég ætlaði að skrifa meira en Henrik vill spila ólsen, ólsen og ætli við verðum ekki að borða eitthvað.......
Heyri í ykkur seinna

PS. ég sé að myndavélin er með vitlausa dagsetningu......verð að breyta því NÚNA!



mánudagur, 27. september 2010

Rigningar mánudagur

Vikan byrjar blaut hér á bæ, köld og blaut. Já mér finnst 10° ekki beint hlýtt svona í september en því verður ekki breytt. Kannski verður veturinn mildur, allavega vona ég að hann verði eitthvað styttri en í fyrra en snjórinn má alveg láta sjá sig, helst um jólin takk....... Talandi um jólin, eru ekki minna en 100 dagar til jóla, það er allavega komið jólanammi í búðir, m.a.s. dagatöl! Heyrði í móður í Lidl í dag þar sem hún var að útskýra fyrir dóttur sinni að dagatalið yrði að bíða inni í skáp þangað til 1.des. Það ætti ekki að opna það fyrr. Ég meina, hvað eiga börn að halda......súkkulaði jólasveinar í september.......jafnvel í lok ágúst! Jæja, ein mynd til að byrja með.


 Ég keyrði til Gelsenkirchen á fimmtudaginn, þurfti að ná í mótorblokk úr slípun. Rakst þar á þetta fallega tré í haustlitinum. Sum eru komin lengra en önnur, sum eru búin að missa nær öll lauf, önnur eru algræn. Á leiðinni lenti ég líka á eftir "skítadreifarabíl".......komst bara ekki fram úr honum, aðstæður buðu ekki upp á það!

Eins gott að hann missti ekkert úr sér eða eitthvað gerðist.......um daginn klikkaði eitthvað hjá svona farartæki og fullt af húsum og bílum fengu skítasletturnar yfir sig! Gerðist í þorpi rétt hjá Köln. Það er víst enn skítalykt þar. 

Er bara heima núna, væri sko annars á fótboltavellinum eins og góðri "soccermom" sæmir. En sökum rigninga fellur æfingin niður enda eru engir leikir á næstunni, skiptir kannski ekkert svo miklu máli. Ég var bara fegin að þurfa ekki út úr húsi og fór beint í heimabuxur og ákvað að blogga. Svo tekur eldamennska við, kjúllavængir + kartöflur úr ofni. Var með kálfasnitsel í gær, svona er það þegar Seydi fer í "Tyrkjabúðina", hann kaupir kjöt fyrir marga daga en í fyrrdag voru kálfakótelettur!!

Ein mynd að lokum. Fór með Henrik í bæinn í gær en Julian var í afmæli. Mig hefur oft langað til að sýna flottu blómakörfurnar sem hanga á ljósastaurunum hér, voða sniðugt og gerir bæinn fallegri. Væri ekki hægt að setja svona á Víkinni góðu?


Jæja, þetta er gott. Ég er enn með dúndrandi hausverk en kvefið er betra og nef- og ennisholur nokkuð góðar. Ég lifi bara á aspirín og panodíl þessa dagana.......verð eiginlega að redda mér íbúfen. 
Eigið góða viku


þriðjudagur, 21. september 2010

Haustkvef og annað "skemmtilegt"

Já já, mín komin með kvef og tilheyrandi, þ.e. nef- og ennisholustíflur......gaman, gaman. Átti sem betur fer Sinupret töflur heima og er byrjuð á þeim. Ákvað að vera heima í dag, Julian átti að mæta seinna svo ég labbaði mér í bæinn til að fá smá ferskt loft. Fór í dm, náði í myndirnar úr neðansjávarmyndavélinni sem var með í för í Tyrklandi, þær minna helst á myndir frá 9.áratugnum, allavega þær sem teknar eru ofansjávar......hvað um það, gaman af þessu :) Ég keypti mér líka nefsprey til að losa aðeins um til að geta nú andað með nefinu, lítur alveg hræðilega út þegar ég anda með munninum, ég er bara eins og fiskur :o

Ætli ég finni ekki einhverja mynd handa ykkur.........

 Danssýningartjaldið á ráðhústorginu

Á síðasta fimmtudag fórum við á danssýningu í þessu tjaldi. Unglingar frá 8 löndum sýndu ýmsan dans. Julian fannst gaman en Henrik leiddist, var kannski heldur lítill en honum fannst þó gaman þegar dansað var hipp hopp. Örugglega gaman að vera unglingur í þessari sýningu, ferðast um og dansa :)

Oft dettur mér eitthvað sniðugt í hug til að blogga um en akkúrat þá gef ég mér ekki tíma til að setjast niður og blogga........sagði ég þetta ekki síðast líka..........setti ég eitthvað á Post-it miða.......NEI. Því verður þetta ekkert spennandi blogg, frekar en vanalega. Ég sit bara hér, horfi á fréttir og drekk heimatilbúinn "smoothie". Fór ekkert út að ganga í gærmorgun, var of slöpp. Sé til hvort ég kem mér út í fyrramálið........Veðrið er nefnilega alveg indælt, rólegt haustveður og hlýtt. Má alveg vera svona áfram.

Bis dann

miðvikudagur, 8. september 2010

Haustið nálgast

Ég er alltaf að fara að blogga........stundum er ég ekki búin að setja inn myndir í tölvuna, stundum hef ég ekki tíma, gef mér ekki tíma eða eitthvað þannig, stundum hef ég ekkert að segja en oftast er ég bara ekki í rétta stuðinu, alltaf eitthvað sem truflar mig. Núna læt ég ekkert trufla mig, strákarnir eru að horfa á TV og ég nýbúin að borða kartöflu/hrísgrjóna "eitthvað", svona mitt á milli súpu og "Eintopf" eða German stew, hvað á að kalla þetta á íslensku????

Áður en ég skrifa meira, mynd af veðrinu hérna um daginn.....þessu fylgdi þokkaleg rigning!

Veðrið hefur verið bæði gott og minna gott, haustið er ekki langt undan svo að það eru oft sveiflur í lofti. Einn daginn 25° hiti og sól en þann næsta kannski 15° og rigning. Í síðustu viku var frekar svalt á morgnana, svo svalt að það koma "reykur" út um munninn. Haustinu fylgir oft "depurð".......reyndar finnst þér þetta orð ekki passa við orðið "Melancholie" en ég er að meina það. Google Translate segir depurð, hmmmm. Hér er þetta orð oft notað fyrir vissa þægilega tónlist sem sendir mann í draumaheima. Verð að kanna þetta betur. Þangað til segi ég bara "melankólísk" :) Er það allavega á norsku svo að þetta hlýtur að skiljast. Ég er allavega allt annað en döpur, svo mikið er víst.

Varð reyndar döpur þegar ég leit á vigtina fyrir nokkrum dögum...........SCHEISSE hvað hún sýndi mikið. Ég fór beint út að hjóla og er núna tvisvar búin að fara út að labba kl. 6 að morgni og stefni á að gera það 3var í viku, plús kannski hjólatúra já og að borða minna..........sérstaklega minna nammi! Ég þyngdist sko ekkert í Tyrklandi, sennilega útaf mikilli vatnsdrykkju, litlu sem engu nammi og sökum hita er matarlystin ekkert voðalega mikil. Eftir að ég kom heim hefur matarlystin aukist mjög og í skápnum var íslenskt nammi sem Hjálmar kom með.....mmmmmmmmmmmmm. Skammta sér Inga, go Inga, go Inga.

Oft dettur mér eitthvað mega sniðugt til að blogga um en þegar ég sest og blogga man ég það nú ekkert.... Læt þetta því duga í dag, verð að skrifa Post-it miða næst ef ég á að muna eitthvað sniðugt :) Regnbogamynd að lokum gott fólk.

föstudagur, 27. ágúst 2010

Afslöppun

Ég lofaði víst pistli, best að standa við það sem ég segi, er nú vön því.

Hér er alger afslöppun í gangi, bara verið að þvo þvott, versla, ganga frá eftir fríið, redda síðasta skóladótinu, laga til osfrv. Seydi skreppur af og til í vinnu, ég er "bara" heima ennþá en í næstu viku byrjar fjörið. Skólinn byrjar á mánudag en skólasetning 1.bekkjar er á þriðjudaginn. Spennandi tímar framundan og nú kemst enn meiri rútína á þar sem strákarnir verða báðir í gæslu til allavega 15. Kannski ég geti hætt af og til kl. 13 í vinnunni og haft smá tíma fyrir mig, kannski tekið mig til og farið út að ganga eða eitthvað annað gáfulegt..........

Þar sem flestir eru á facebook mun ég sennilega ekki setja inn mikið af myndum úr fríinu hér á bloggið. Mamma: Þú verður bara að skoða hjá HBH, ef þú ert ekki búin að því :)

Nú er alveg spurning hvort ég fari eitthvað út í ferðasögu.........ég held bara ekki, nema í grófum dráttum. Keyrðum 8500 km allt í allt, Búlgaría er mest hataða landið í minni fjölskyldu, í Tyrklandi var hitabylgja, það var verslað mikið af fötum, farið oft út að borða, legið í sólinni......hóflega þó, hlustað á tilheyrandi "holiday" tónlist.........eitthvað fleira?? Alveg örugglega, kem ekki meiru fyrir mig í augnablikinu. Set frekar inn myndir.

     Frændur í kvöldsólinni í Silivri, Tyrklandi

Verslunarferð til Eskisehir

SPLASH

Hér er rigning en hlýtt. Samt skrýtið að þurfa að vera í síðbuxum, sokkum og peysu.......jafnvel í jakka þegar farið er út. Haustið er örugglega ekki langt undan. Allavega virðist ekki vera langt í jólin.........sá jólasætabrauð í Netto í morgun!!  Ætti ég að fara að huga að jólagjöfum??? Er reyndar búin að kaupa eina. Nei, ég held að ég hugi fyrst að afmælisgjöf handa mömmu. Hvað langar þig í mamma???

Góða helgi

mánudagur, 23. ágúst 2010

Þetta kemur, já já

Bloggið kemur.......alveg örugglega mjög fljótlega bara. Er búin að breyta um útlit, það sést.....haustið er á næsta leyti og ég nýkomin úr fríi. Blogga betur síðar, lofa því. Þarf að setja myndirnar mínar í tölvuna fyrst......give me some time.....var bara að koma heim í kvöld.

Ég lofa að blogga fljótlega.......

fimmtudagur, 22. júlí 2010

Bleikt og aftur bleikt

Allt í bleiku núna þessa dagana enda Mærudagarnir miklu. Mikið væri gaman að vera á staðnum en það er ekki hægt að vera alls staðar. Var reyndar að uppgötva, mér til mikillar skelfingar, að ef að Mærudagar eru helgina á undan Versló á næsta ári næ ég þeim varla..........nema að strákarnir skrópi síðasta daginn í skólanum en það er EKKI vel séð hér! Fólk jafnvel sektað........Sjáum til þegar nær dregur.
Óska öllum góðrar skemmtunar og gangið hægt um gleðinnar dyr.

 Þarf eitthvað að skrifa við  þessa mynd ;)

sunnudagur, 18. júlí 2010

Arfaslök alveg......

Viðurkenni það alveg að blogg var ekki alveg í 1.sæti meðan að mamma og pabbi voru í heimsókn..... ég hvorki gaf mér tíma til að blogga né vildi eyða tíma í það. Hélt líka að það læsi þetta hvort eð er enginn sála, allavega fáar sálir ;)

Nú eru þau "gömlu" lent á Íslandinu góða, veðrið fínt í borginni sýnist mér á fréttum. Vonandi taka þau bara sólina með sér norður svo að Mærudagar fari fram í sól og blíðu. Þau tóku allavega smá með sér héðan, ég mátti alveg við því að missa smá og tímdi því alveg. Ég sé Mærudaga ekki fyrir mér í roki og rigningu, fékk nú nóg af því á fimmtudagskvöldinu í fyrra!!! Nei, ég óska þess að það verði GOTT veður. Hér verður allavega gott veður svo langt sem spár ná, í dag var 24° og hálfskýjað. Fórum í afmæli til Jemain frænda strákanna en hann varð 5 ára gaurinn. Tók svo Demien bróðir hans með til okkar en honum finnst voða spennandi og gaman að sofa hér. Fínt líka fyrir strákana mína að hafa næturgest. Klukkan er nú að verða tíu og eini sem er sofnaður er Seydi...........hann hrýtur hér á sófanum. Ég sjálf fer nú að verða ansi þreytt eftir að hafa keyrt mö og pa til Dusseldorf um miðja nótt. Þau hljóta líka að vera þreytt en Rakel hlýtur að hafa keyrt eitthvað fyrir þau norður, trúi bara ekki öðru.

Best að setja inn einhverjar myndir.......augnablik.

 Mamma blómarós með innkaupapoka (stal þessari hjá henni)

Sumarmynd ársins 2010

Nýi bíllinn okkar, Benzinn sko (stal þessari líka hjá mömmu)

Er þetta ekki bara fínt í dag........verð að koma strákunum í ró áður en ég sofna sjálf........leikskóli á morgun og vinna.

Góðar stundir

þriðjudagur, 29. júní 2010

Smá fréttir

Allt í góðu standi hér bara, hitabylgja á staðnum, mömmu til mikillar ánægju. Hún labbar bara um á hlýrabol og á tásunum, dag eftir dag :) Pabba finnst þetta alveg ótrúlegt, situr úti á svölum á kvöldin og dásamar veðrið. Finnst kannski heldur heitt yfir daginn en á kvöldin er alveg indæl. Þau gömlu eru orðin svo sjóuð í heimsóknum hér að þau labba sér í bæinn, fara út að borða, horfa á fótboltaleiki í bænum (aðallega pabbi þó) ofl. skemmtilegt. Ég og mamma fórum í 1. innkaupaferðina í bæinn í gær, alveg frábært að komast svona án strákanna í bæinn, já og án tímaþrengingar.......

Fyrstu mynd dagsins tók ég á leiðinni í vinnuna. Svo falleg þessi "Poppy" blóm :)

Ég, Seydi og Bärbel skelltum okkur út á lífið á laugardagskvöldið. Ætluðum svo rosalega á diskó en þar var bara tómt hús! Við renndum þá bara aftur heim og fórum hér í bæinn á pöbbarölt. Enduðum á bar þar sem hægt er dansa líka, ekkert mega stór dansgólf en alveg nóg. Skemmtum okkur konunglega......sem þýddi að sunnudagurinn fór í það að faðma setuna vel og lengi, já og verma rúmið sem lengst.........alveg merkilegt hvað bjórinn gerir við mig!

Næsta mynd er af þeim "gömlu" á 10 ára hátíð "Schnuppis" kórsins í leikskólanum.

Ýmislegt verður á dagskrá næstu daga. Í dag er Julian með bekknum í dýragarði í Dortmund, tannlæknisheimsókn seinni partinn, grill í fótboltanum á fimmtudaginn, fótbolti (Þýskaland-Argentína) á laugardaginn ofl. ofl.

Bestu kveðjur úr hitanum og til hamingju með daginn Guðmundur frændi og Viddi

sunnudagur, 20. júní 2010

Long time ago....

Langt síðan síðast........alveg meira en 10 dagar. Það er svo erfitt að finna rétta augnablikið til að rita nokkur orð svo ég ákvað bara að rita, án þess að það væri rétta augnablikið......ég er nefnilega að drepast úr hausverk! Ætti frekar að sofa bara. Er reyndar búin að dotta og lúra í mest allan dag, horfði á leikina á HM, dottaði af og til, missti af seinna marki Paraguay t.d. Hjá mér kemst nú lítið annað að en HM þessa dagana, líka afsökun fyrir bloggletinni.

Er þó farin að hlakka til að huga að komu foreldra minna á næsta fimmtudag. Alveg farin að skipuleggja hitt og þetta. Fyrst af öllu að huga að því hvenær ég þurfi að leggja af stað til að ná í þau.......Lending er 6:20- skemmtilegur tími- og það tekur mig um 40 mín. að keyra til Dusseldorf. Þyrfti því að leggja af stað svona rúmlega 6, það tekur oft stuttan tíma að afgreiða farþega/töskur svona snemma morguns og þau gömlu gætu verið komin út fyrir 7. Vil nú ekki láta þau standa lengi og bíða eftir mér. En þetta reddast nú alveg, eldgosið er búið svo að ekki er hætta á ösku í lofti.

Tók mynd af rósum í gær en þær eru í blóma hér útum allt. Þyrfti eiginlega að fara í blómarósa-myndaleiðangur. Þarf ekkert að fara langt, bara í næstu götu. Þessi mynd er tekin í náttúrugarði sem náttúrusamtök (NABU) hér tóku yfir og umturnuðu en húsið sem fylgir með var að grotna niður. Mjög flott hjá þeim en leikskólinn mætti þangað í gær og við fórum í allskonar þrautir/leiki m.a. að veiða úr hálfgerðum drullupolli með sigti úr plastflösku og rýju, svo átti að hlusta/lykta/snerta hluti, búa til hús fyrir skordýr ofl. Hægt var svo að kaupa pylsur og vöfflur. Indæl stund þó að veðrið hafi ekki verið sumarlegt, um 15° og skýjað.


Þann 12.júní voru Scorpions með tónleika hér í almenningsgarðinum við leikhúsið. Tónleikarnir voru úti svo það var hægt að standa við hliðin og kíkja inn, ég og Bärbel gerðum það.....og margir aðrir. Löbbuðum svo um svæðið, keyptum okkur bjór og kíktum aftur á tónleikana. Veðrið var alveg æðislegt, logn og hlýtt. Þar sem þetta var síðasta kvöld Listahátíðarinnar í Recklinghausen ( Ruhrfestspiele) , var laser/flugeldasýning um kvöldið. Alveg magnað.....líka magnað að bjórinn var lækkaður í 1 Evru á flöskuna :) Ég drakk samt ekkert mikið og það er gott að geta labbað heim frá garðinum. Var bara ekki komin neitt seint heim en það var gott að komast út að skemmta sér aðeins. Stefnan er svo tekin á "Yfir 30" partý um næstu helgi, tökum Seydi með þar sem við verðum með bestu barnapíur í heim........


Æi,. þetta er orðið gott í bili. Veit ekki hvort ég blogga mikið á næstunni þar sem aðal kvittarinn verður staddur hjá mér ;)

Góðar stundir

þriðjudagur, 8. júní 2010

Smá tími til að blogga...

...áður en ég þarf að sækja Henrik í leikskólann.  Best að gera það þá........

Eins og flestir vita skruppum við til Danmerkur um helgina sem var löng vegna frídags á fimmtudag og skólafrís á föstudaginn. Þetta passaði alveg því að Helga Dóra og vinkona voru stödd hjá Elfu svo það var upplagt að skella sér. Strákarnir voru rosa hrifnir og skemmtu sér vel, sérstaklega í Legolandi. Ég átti yndislega helgi með góðu og skemmtilegu fólki. Ógleymanleg dvöl í alla staði. Keyrslan var ekkert spes en hún tók heldur langan tíma þar sem Þjóðverjar eru svo duglegir að breikka og laga hraðbrautirnar.......ég sem hélt að ríkið væri á hausnum! Ég mátti því oft bara keyra á 80 km og það er heldur hægt svona á hraðbraut. En þetta hafðist og Recklinghausen tók á móti okkur með þrumum og látum eftir indælis veður alla dagana.

 Aðalskvísurnar í heimsókn í Álaborg

Ó já, við Helga skelltum okkur EINAR í heimsókn til Hrafnhildar og co. í Álaborg. Snilldar hugmynd hjá HD að við færum bara tvær, barnlausar. Nutum dagsins í botn alveg hreint. 

Næsti pöbb takk fyrir :)

Ég er alveg ákveðin í því að fara til Danmerkur aftur, ekki spurning. Voða hyggelig að vera þar.

Seydi kom ekki með en hann skrapp til Tyrklands og kemur heim í dag. Kannski hefur hann keypt eitthvað handa elskunni sinni.......meira um það seinna. Vona allavega að hann hafi keypt smátterí handa strákunum.  

Nú eru bara rúmlega 2 vikur í að mamma og pabbi komi. Það verður alveg frábært og mikið um að vera. Hátíð í leikskólanum, HM í fótbolta á skjá niðri í bæ, útskrift Henriks, íþróttadagar í skólanum, lokagrill í fótboltanum, hjólahátíð í bænum ofl. ofl.  Ætli við Seydi notum ekki tækifærið og förum út að borða saman, bara við tvö að kvöldi til en eins og er komumst við bara á hádeginu. Ekkert slæmt við það en alltaf smá í tímaþröng.  Þetta verður alveg magnað sumar, byrjaði allavega vel um helgina :)  

Sumarkveðja

þriðjudagur, 25. maí 2010

Engar fréttir, góðar fréttir...

...eða bara bloggleti, erfitt að finna rétta augnablikið til að blogga, ekkert merkilegt að segja. Hvar á ég að byrja?

Síðustu daga hefur verið þvílík blíða, alveg um 25° hiti og sól, alveg fínasta sumarveður. En það hefur líka sínar dimmu hliðar.........ég neyðist til að fækka fötum, sína leggina osfrv. Þýðir sem sagt að ég tók fram MEGA plokkarann og skellti á leggina, tók smá tíma því að blessuð hárin voru orðin ansi löng enda er ég nýsloppin úr trénu og náskyld öpunum frændum vorum. Það sem ég öfundaði bekkjarsystur og vinkonur sem voru með engin eða ljós hár á leggjunum, já ég viðurkenni það alveg. Það er bölvun að vera svona eins og ég er og hefur heft mér að mörgu leyti, förum samt ekkert nánar út í það! USA dvölin opnaði reyndar fyrir mér nýjar víddir, þar eru ÖLL hár af löppum rökuð af, reglulega. Hár á löppum, já og bara alls staðar, þykir sóðalegt og óhugsandi. Í dag er þetta auðvitað komið hingað og brasilískt og ég veit ekki hvað, líka. Og NEI, ég hef ekki farið í þannig lagað og ætla mér það ekki, nei nei. En jæja, ég skellti á mig brúnkukremi 3 daga í röð til að fá smá lit, sé svo í gær að mér hefur ekki alveg tekist að gera þetta jafnt á leggjunum.....æi skítt með það, hef séð myndir af stjörnunum með misheppnað "tan".

Ætli ég finni einhverja mynd til að setja inn......hmmmmmmmm. Smá vor kannski.
 Julian hjólar í vorinu
Sumarblómin :)

Já, sumarblómin eru komin á svalirnar. Ég og Bärbel hentumst í búð og ég fjárfesti í þessum fínu blómum og við settum þau í pottana. Vona að þau deyi ekki alveg strax.........

Akkúrat NÚNA situr Unnur systir í Osló og bíður spennt eftir fyrra úrslitakvöldi í Eurovision. Fékk sms frá henni áðan, hún er víst í trans. Ég er ekki hissa, þetta er draumur að rætast hjá henni. Alltaf gaman þegar draumar rætast. Ég lofa að hringja fyrir Ísland í kvöld en sem betur fer sýnir Þýskaland fyrra kvöldið en hitt kvöldið er ekki sýnt og við getum því ekki hringt. Bara 40 mín. til stefnu, ég fer að setja mig í stellingar, koma strákunum í ró, þeir eru reyndar voða rólegir eins og er. Kannski opna einn öllara og fá mér snakk. 

Knús og kveðjur, takk fyrir innlitið



miðvikudagur, 12. maí 2010

Ekkert að frétta?!........

Lítið að frétta, veður er kalt svo ekki sé meira sagt........8° kuldi og skýjað í dag! Þetta fer í mínar fínustu, veðrið hefur svo greinilega áhrif á andlega heilsu, þó ég reyni nú að láta það ekki hafa of mikil áhrif. Strákarnir eru líka hálf pirraðir. Julian er með exem (ekkert veðrinu að kenna sjálfsagt) og Henrik með bronkítis (gæti verið veðursveiflum að kenna). Ég las á netinu að exem getur aukist við stress........kannski að þetta skóla/gæslustress hafi bara haft þessi áhrif, eða aukið þau allavega. Alveg spurning! Það gengur vel eins og er, Kevin er samt enn ekki alveg hættur að vera leiðinlegur. Julian sagðist hafa spurt afhverju hann væri svona og Kevin svaraði að ein ástæðan væri að hann má ekki heimsækja hann (Julian sko)! Ég meina "halló", hvern langar til að leika við einhvern sem honum finnst ekkert skemmtilegur.........? Julian vill frekar eiga fáa góða vini en að vera vinamargur og vinsæll. Hann er samt vel liðinn af hinum krökkunum og það hefur aldrei neitt komið upp á í sambandi við að hann væri að ergja aðra krakka. Hann segist eiga nýjan vin úr gæslunni, hann sé í 1.bekk og ætli Julian sé ekki svona smá fyrirmynd. Hann virðist vera mjög næmur á það hvernig börn eru, forðast helst "villingana". Reyndar erfitt þegar sumir hanga í honum og fara allt sem hann fer, eins og þessi Kevin. Nóg um hann.....

Julian gerði  mæðradagsgjöf handa mér í gæslunni. Límdi servíettur á flís (ekki efnið samt) ofl. Sjá mynd:

Mæðradagur var annars svona la la.....ég ætla að hætta að óska mér þess að synir mínir séu extra þægir og góðir á svona dögum! Hætta að gera mér einhverjar grillur um það, allavega í bili. Kannski ég fái einhvern tímann morgunmatinn í rúmið? Myndi alveg trúa Julian til þess að gera svoleiðis. Henrik finnst ég nú svo leiðinleg, ég segi sko stundum "nei" við hann! Þá er ég sko extra leiðinleg og geri ALDREI neitt fyrir hann og kaupi ALDREI neitt handa honum........ Voðalega kannast ég við þetta úr minni æsku, ég fékk aldrei neitt ;)  Hann er samt svo indæll stundum. Ég fór í bað um daginn og hann strauk á mér appelsínuhúðina og sagði "oh, mamma,þú ert með svo mjúka húð" :) Annan daginn spurði ég strákana hvort þeir væru nú ekki búnir að fá nóg af mömmu gömlu, þann daginn sko (það var kvöld). Þá segir Henrik, "Nei, þú ert falleg og við elskum þig"........svo mikill sjarmör þessi elska.

Við ætlum að heimsækja ættingja Seydi um helgina. Frídagur á morgun og skólafrí á föstudaginn. Vona að það rigni ekki mikið og hitastigið mætti hækka líka.

Smá vor í lokin.........


Góða helgi og takk fyrir heimsóknina

mánudagur, 3. maí 2010

Kalt veður

Já það er ansi kalt þessa dagana, ekki meira en 10° hiti í dag og skýjað. Á síðasta fimmtudag var 27° hiti! Ég veit ekki hvað maður á að halda um þetta blessaða vor........ég hef allavega sett frest á að setja út sumarblómin, þau gætu frosið á nóttunni.

Náttúran hefur samt tekið vel við sér og allt orðið vel grænt, já og bleikt, rautt,hvítt osfrv. Alltaf jafn fallegt. Verst hvað trén eru fljót að fara úr blóma. Myndina fyrir neðan tók ég þegar ég sat föst í teppu á leið til Oer-Erkenschwick að keyra Henrik í afmæli. Ein lokuð gata leiddi til þess að allir þurftu sömu leið og ég sat hálf föst í korter.

 Repjuakur

Næsta mynd er tekin í næstu götu á leið í almenningsgarðinn. Ef vel er að gáð má sjá bæði Henrik og Seydi :)

 Kirsuberjatré (koma samt engin kirsuber)

Löbbuðum á hátíðina í almenningsgarðinum á 1.maí eins og 100.000 aðrir. Veðrið var fínt, miklu betra en spáð var. Vorum samt ekkert lengi, synir mínir eru lítið fyrir mikinn mannfjölda og mikið labb.......Svo fannst þeim hávaði í músíkinni. Við keyptum því eplatertustykki og fórum með heim, ég hellti upp á kaffi og við höfðum það bara næs þangað til að við skruppum í grillveislu til kunningja Seydi. Hann grillaði m.a. heila geit. Ég sat beint við bakkann með geitinni og efri kjamminn blasti við mér en ég kippti mér nú ekkert upp við það enda alin upp við sviðahausa og -lappir ;) Smakkaði smá af kjötinu, ekki í 1.skipti samt, en mér finnst kjötið ekkert spes. Fékk mér frekar kjúllavængi. Eftir grillveisluna keyrði ég Seydi í teiti til fótboltafélaganna og Bärbel vinkona kom yfir og við fengum okkur nokkra drykki, spjölluðum og gláptum á imbann. Julian sofnaði seint og Henrik enn seinna eða eftir miðnætti......þolið í þessum drengjum er ótrúlegt. 

Í morgun snéri ég eitthvað vitlaust upp á mig í sturtunni og er því með þennan heljarins hálsríg. Get varla litið til hægri og niður......verð að slaka á, ekki kannski það besta að sitja hér og blogga! Vonandi lagast þetta nú fljótt, er svo andskoti vont.  Hætti núna.......takk fyrir innlitið.

sunnudagur, 25. apríl 2010

Hlýtt veður

 Við ráðhúsið

Í dag er hlýtt en síðustu daga hefur verið frekar kalt, sérstaklega á morgnana. Ég er komin með svo nóg af þessum kulda, nenni bara ekki að klæða mig í þykka jakka og jafnvel hanska.....já ég tók með mér hanska á fótboltaæfingu hjá Henrik á fimmtudaginn. Það kom sér vel enda er oft ansi hvasst þar þegar vindurinn blæs. Ég vona svo innilega að þessum næturkulda sé lokið núna, ég vil fara að planta blómum í pottana á svölunum, labba um í sumarjakka, jafnvel á bol eins og í dag. Ég er ekkert að biðja um hásumar, bara svona 20°-25° hita. Það er alveg nóg svona á vorin.

Ég hef samt ekkert að segja, lífið gengur sinn vanagang, ég vinn til rúmlega 13, næ í Henrik, dúlla mér með honum og næ svo í Julian klukkan 16. Hann treystir sér ekki til að labba heim þó að margir jafnaldrar hans geri það. Ég ýti ekki á hann að labba einn, hann fær alveg að ráða þessu sjálfur. Stundum er hann með voða lítið hjarta og undanfarið er hann eins og skugginn minn......víkur varla frá mér, ég má varla fara upp á þvottaloft, hann fer með niður ef ég þarf að ná í eitthvað í bílinn (Henrik bíður uppi), hann kemur og kúrir hjá mér á hverju kvöldi og virðist eitthvað hræddur um að ég láti mig hverfa! Ég veit ekki alveg afhverju hann er svona, ég hef aldrei gleymt honum neins staðar.........En ef hann vill þetta er það í góðu lagi, mér finnst voða gott að knúsa hann og kremja. Henrik má ég hins vegar ekki kyssa þessa dagana.........

Eftir viku verður kominn maí! Hrikalega sem tíminn líður hratt......ég verð orðin 100 ára áður en ég veit af!  Veit reyndar ekki hvernig ég lít út þá...... maður er nú orðinn nógu krumpaður og grár. Nú fara sundlaugar að opna og ef veður er gott fer maður að spóka sig á bikiní.......já, ég er lítið fyrir sundboli,  verð að vera brún á maganum sko :) Ég gleymi því aldrei hvernig ég leit út þegar ég kom frá USA, hnöttótt með sundbolafar...... aldrei aftur takk.  Er ansi hrædd um að næstu vikur verði ég að minnka skammtana á disknum, hætta að borða nammi á kvöldin og hreyfa mig meira. Mig langar, svona innst inni, að vita hvernig það er að vera grönn. Bara prófa, hef aldrei verið það........ Langar til að hafa granna leggi, lítinn sætan rass osfrv. Maður má nú láta sig dreyma...............

Eigið góða viku framundan, síðustu vikuna í apríl.

laugardagur, 17. apríl 2010

Kaos

Ekkert kaos hjá mér EN þar sem flugsamgöngur liggja niðri er mikið kaos á flugvöllum hér og á öðrum stöðum í Evrópu. Eldgosið, já og aðallega þetta öskuský, er aðalfréttin hér, bæði í blöðum, í útvarpi og sjónvarpi. Mörg þúsund manns sitja fastir á flugvöllum, lestir fyllast og bílaleigur og taxar gera viðskipti ársins núna. Heyrði t.d. af fólki sem millilenti í Frankfurt frá USA og komst ekki áfram t.d. til Asíu.......hefur enga vegabréfaáritun fyrir Þýskalands og verður því að sofa á flugvellinum, þar var komið upp beddum og átti að redda þessu blessaða fólki m.a. hreinum nærfötum og svona. Spyr mig samt núna.......afhverju hreinum nærfötum?? Mátti fólkið ekki fá töskurnar sínar?? Ekkert um það í fréttunum. En hvað um það, Bild blaðið er heimsmeistari í að gera úlfalda úr mýflugu, RISA fyrirsögn á blaðinu í dag, sá það hjá kjötkaupmanninum, "Das Aschemonster" eða öskuskrýmslið og mynd af þessum gígum sem mynduðust á jöklinum!!! Ekkert minnst á það (á netinu allavega) að þetta sé mynd af jöklinum. Þeir mega samt eiga það að þeir sendu fréttamann til Íslands en hann segir að á Íslandi gangi lífið sinn vanagang, fólk sé í búðum, að taka bensín osfrv. Allt með hinni stökustu ró........ Annað finnst mér ég svo lesa í ísl. fjölmiðlum um öskufall, skemmd tún ofl. Bild er auðvitað þekkt fyrir æsifréttamennsku en er samt mest lesna blaðið hér, held ég....... Fólk elskar dramað.


Nóg um þetta eldgos. Hér er heiður himinn og spáð 18° hita í dag, fallegur vordagur framundan. Ég ætla að skreppa á verkstæðið á eftir, klára nokkra reikninga og leyfa strákunum að hjóla á meðan. Henrik þarf að æfa sig meira að hjóla án hjálparadekkja. Kannski við skreppum í bæinn í Dorsten, alltaf gaman að labba þar um.  Á morgun ætla ég með strákana til Düsseldorf að hitta Bjarnhildi og Heiðar en þau voru í Köln og eru núna í DUS.  Bjarnhildur er með góðgæti handa mér......bæði nammi og Season All. Jibbí, loksins fæ ég uppáhalds kryddið mitt. Best að muna að lokið er eitthvað öðruvísi, passa mig vel á því :) Það verður gott og gaman að spjalla á íslensku.......fæ alltaf svör á þýsku til baka frá sonum mínum! Ég held að ég verði að fara að hafa íslenskutíma handa þeim, hafa heimaskóla, nóg á ég af bókum. Líka svo þeir læri að lesa á íslensku og þekkja framburðinn á orðunum. Drífi í því sem fyrst.

Endilega kíkja á síður strákanna á barnalandi. Ég var í hópi þeirra sem fengu nýja útlitið, eða mátti breyta og ég gerði það. Er að kynnast þessu svo að það er kannski ekki allt alveg tilbúið en mér líst vel á breytingarnar. Smá vormynd að lokum.

 Magnolia í þarnæstu götu

fimmtudagur, 8. apríl 2010

Veðursveiflur

Þær fara ekkert of vel í mig þessar veðursveiflur, í gær var t.d. 23° hiti og sól, í dag var rigning og 10° hiti, eða ætti ég frekar að segja "kuldi".........brrr mér var kalt í dag. Er svo tilbúin í vorblíðu, leið svo vel í Gysenberg garðinum í Herne í gær. Liggjandi á teppi með snakk og vatn, strákarnir að leika á leiksvæðinu eða við sparkandi í bolta. Tók þessa mynd þar.
 Magnolia tré

Leiksvæðið í garðinum er mjög skemmtilegt og nóg af opnu svæði líka til að sparka í bolta eða leika með frisbee. Einnig eru þarna leiktæki og sundlaugargarður. Vantar alveg svona garð í Recklinghausen.

 Hluti af leiksvæðinu.

Eitthvað ætlar vorið að vera áfram svona "kalt". Við ætluðum kannski að fara í helgarferð eitthvert en ég hef enga löngun til að labba um einhvers staðar í rigningu. Vil þá frekar vera heima.......get þá labbað í bæinn meðan að það er þurrt, eða keyrt í einhverjar verslunarmiðstöð eða farið á innileikvöll. Sjáum til.

Ekkert bólar á páskaeggjunum......ætli póstburðarmaðurinn/konan hafi ekki bara borðað þau! Kannski maður fari að spyrjast um þau. Var þetta böggull mamma? Þá er sko ekki hægt að leita eftir númeri. Ég skil stundum ekki hvernig pakkar eða bréf "týnast". Birtast svo bara allt í einu eins og ekkert hefði í skorist. Hey, ætli einhver nágranni minn hafi tekið á móti pakkanum og étið eggin..........hahaha nei ætli það. 

Þó að það sé kannski ljótt að segja það þá hlakka ég til hversagsleikans sem byrjar á mánudaginn. Engin nöldrandi börn um að þeim leiðist, komast í vinnuna, fara EIN í matvörubúð, regla á hlutunum og vonandi háttatími fyrir tíu! Helst fyrir níu sko........Mínir prinsar munu aldrei verða eins og mörg þýsk börn, fara að sofa milli sjö og átta. Ekki séns, þeir þurfa minni svefn en "venjuleg" börn og meðan að þeir vakna á morgnana til að fara í skóla/leikskóla þýðir lítið að breyta þessu. Sjáum til hvernig það verður að vekja Henrik svefnpurrku í haust..........hann er aðeins úldnari á morgnana heldur en Julian. Sefur þó lengur.

Vá hvað sólarlagið er fallegt. Logn, skýjað og bleik ský. Alger draumur í dós. Það verður sem sagt kalt í nótt.

Knús í hús





föstudagur, 2. apríl 2010

Halló apríl

Mér datt ekkert aprílgabb í hug svo ég að sleppti því að vera nokkuð að plata mann og annan. Ekki einu sinni á facebook. Margir reyndu að gabba vini sína með því að segjast vera trúlofaðir, nú eða einhleypir :) Ég plataði ekki einu sinni strákana, né Seydi. Rosalega léleg í þessu.

Fór loksins út að labba í dag þar sem Seydi var heima. Klæddi mig í íþróttaföt og skó og arkaði upp næstu götu og inn í skóg á útivistarsvæði. Mætti fullt af fólki, ýmist labbandi, skokkandi eða með hunda. Veðrið var fínt til göngu, um 10° og sól. Úr þessu varð næstum því klukkutíma gangur og ég hef ekki fundið fyrir neinum strengjum enn.....Þyrfti að komast oftar í göngutúra eða í hjólatúra. Mér finnst eiginlega skemmtilegra að hjóla. Geri það næst.
 Í lúterska kirkjugarðinum ofar í götunni

Á morgun fáum við heimsókn. Frændi Seydi kemur með familíuna, konu og 2 börn. Þá verður fjör hjá okkur. Ég veit ekki alveg hvenær þau koma en þangað til ætla ég að gera rækjutertu, skúra og fara með Henrik í klippingu. Hann vill endilega fara í klippingu, finnst hann kominn með smá sítt að aftan.......hann veit kannski að mér finnst sítt að aftan alger horror. Er svo fegin að Florian vinur þeirra lét klippa þessa lufsu af sér um daginn.

Æi, hef ekkert að segja. Nema bara gleðilega páska og ekki borða yfir ykkur. Við vonum að páskaeggin komi á morgun. Annars verður þýskt páskanammi bara að duga, nóg er nú til af því. Reyndar var lítið eftir í Lidl í gær en ég keypti samt nokkra poka.

Takk fyrir innlitið

laugardagur, 27. mars 2010

Tívolí, tívolí, tívolííííí

Páskatívolíið í fullum gangi, heljarinnar flugeldasýning fyrsta kvöldið, sást alveg hingað en tívolíið er í suðurbænum og ég bý í norðubænum (við erum ekki að miða við Húsavík sko). Í fyrrakvöld heyrði ég líka í flugeldasýningunni en þann dag er alltaf sýning, miðvikudagurinn er fjölskyldudagur með ýmsum tilboðum t.d. ódýrara í tækin. Það var vægast sagt FULLT á miðvikudaginn enda geggjað veður, 21° hiti og sól. Við mættum um fimmleytið og það var stappað, þegar leið á kvöldið var auðveldara að komast í gegnum þvöguna en við komum heim rúmlega átta. Við skemmtum okkur vel og eyddum hellings pening.......

 Parísahjólið

Laugardagur í dag. Ég fór snemma á fætur en Seydi vildi komast sem fyrst í vinnuna, þarf eitthvað að redda hinu og þessu í dag. Er vanalega ekki að vinna á laugardögum en varð að gera það í dag, bað m.a.s. vinnumanninn að mæta. Ég sit hér heima með hausverk og kvef. Er samt skárri í dag en í gær. Sinupret töflurnar eru að virka.............sem minnir mig á það að ég þarf að kaupa pakkningu í dag. Ég neyðist því til að fara í apótek á eftir. Kannski maður labbi sér einn rúnt í bæinn eða svo, áður en apótekin loka þá. Datt í hug að renna í IKEA í Dortmund en ég er engan veginn í stuði til að labba þar um svona á mig komandi. Fæ mér frekar ferskt loft þ.e. ef að prinsunum þóknast að klæða sig og fara út. Voru að byrja að kubba heyrist mér. Settu disk á fóninn og eru nú að leika sér. Sé til eftir smá stund.

Stór færsla um Ísland í bæjarblaðinu í dag. M.a. um að Ísland færir ekki klukkuna í nótt eins og aðrir 700 milljónir manna í Evrópu. Auðvitað mynd af gosinu með. Sá myndir af því í fréttum einn morguninn og hló að fréttafólkinu bera fram Eyjafjallajökull og Mýrdalsjökull.......ekki beint auðveldustu íslensku orðin. Hef bara ekkert kíkt á íslenskar fréttir nýlega svo þetta eru einu myndirnar sem ég hef sé, þ.e. hreyfðar myndir.

Eigið góða helgi, það sem eftir er. Á morgun verð ég 2 tímum á undan ykkur á Íslandi.




mánudagur, 22. mars 2010

Ein og nýt þess

Á núna skyndilega stund með mér sjálfri. Henrik fór heim með Tom B. vini sínum og verður þar til klukkan fimm. Ég þarf reyndar að ná í Julian klukkan fjögur en þessir 2 tímar, bara fyrir mig, eru fínasta afslöppun. Ég tók úr þvottavél, setti í aðra, braut saman þvott, lagaði til, opnaði glugga og svalahurðir og settist svo við tölvuna til að kíkja á það nýjasta.

Meira sem erlendir fjölmiðlar gera veður úr þessu gosi! Hérna í Bild lá við að það væri heimsendir í fyrirsögninni........þeir eru nú þekktir fyrir að blása allt rosalega upp og nánast alltaf fyrsti með fréttirnar, þ.e. ef þær eru spennandi. Der Spiegel var á undan með gosfréttina og hafa litlu við bætt. Bild var seinni til EN er nú að blása þetta upp, bíða eftir tsunami og ég veit ekki hvað. Hægt er að kommenta við fréttina og hafa 11 manns gert það og m.a. sagt að þetta sé byrjun á heimsendi 2012. Það sem fólk kommentar stundum er nú bara alveg ótrúlegt, sérstaklega við fréttir um ofbeldi/morð sem "útlendingar" fremja. Alltaf sama tuggan.

Ég verð nú að setja inn eina mynd eða svo, lofaði því nú einhvern tímann. Best að sýna ykkur part af páskaskreytingunum okkar. Dreif mig í að skreyta í gær, fínt að lífga aðeins upp á stofuna.
Páskalegt og nýju áklæðin á stólunum.

Rétt áðan hringdi ein mamma úr bekknum hans Julian. Spurði hvort að Julian kæmi í afmælið hans Deniz á morgun......ég kom af fjöllum. Julian hefur gleymt að nefna þetta og sýna mér boðskortið. Ég sagði að auðvitað kæmi hann svo nú verð ég að fara með Julian í búð til að kaupa afmælisgjöf. Best að hjóla í bæinn og ná svo í Henrik á hjóli, tek bara hlaupahjólið hans með. Indælis veður til að hjóla, mætti vera aðeins meiri sól til að hlýja mér en ég vil ekki kvarta. Spáð 17° hita á miðvikudaginn en þá ætla ég í tívolí með strákana enda fjölskyldudagur. Við skruppum bara aðeins á laugardaginn en þá byrjaði að rigna svo við fórum heim eftir smá stund. Alltaf jafn gaman að finna "tívolílyktina" eða lykt af sykurbrenndum möndlum. Nú eða brenndum hnetum, sólblómafræjum ofl. Voða gott og voða fitandi........ Má nú varla við því þar sem mér finnst allt vera að springa utan af mér. Sumarið kemur og ég verð enn ekki komin í "bikiníform" (ef hægt er að kalla það bikiníform hjá mér) ef þetta heldur svona áfram. Það liggur við að ég fái mér vatnslosandi pillur og laxerolíu!!

Er ekki sólin  að reyna að pota sér í gegnum skýin. Finn hlýjuna inn um stofugluggann. Blessuð sólin elskar allt.

Vorkveðja og takk fyrir að kvitta ;)