fimmtudagur, 28. janúar 2010

Handbolti enn og aftur

Ég veit ekki hvernig ég lifði daginn af í gær, enginn handbolti til að horfa á. Ég ákvað því að lesa í stórskemmtilegri bók eftir tyrkneska konu sem alin er upp hér, stórfyndin og góð. Julian fékk heimsókn og Henrik var í tölvunni, ég hafði því frið til að lesa. Næst ætla ég að lesa fyrri bókina eftir konuna, greip þessa bara á bókasafninu án þess að vita að önnur bók hefði verið á undan. Skiptir ekki, hún er ekkert framhald.

Stórleikur í handbolta í dag, eftir tæpan klukkutíma. Ég á bara eftir að ná í Julian kl. 16 og svo hleyp ég heim í leikinn. Veðrið er bilað, í morgun bráðnaði mikið af snjónum og það rigndi af og til, núna er snjókoma sem fylgdi þrumum og eldingum! Allt orðið hvítt aftur.......jæja, skárra en ljóta, brúna slabbið.

Ég er með hálsríg. Henrik kom upp í, í nótt og ég var alltaf að vakna og hef greinilega sofið eitthvað skakkt....á enn erfitt með að líta til hægri. Þetta hlýtur að lagast fljótlega. Ég var svo pirruð á öllu í morgun að Seydi gafst upp á að reyna að tala við mig eða tjónka við mig.......ég var svo búin að gleyma pirringnum þegar ég kom í vinnuna. Hef týnt honum á leiðinni.

Þetta dugar í dag. Nenni ekki að sitja of lengi hérna útaf hálsríg. Verð að athuga hvort að leikurinn verði sýndur í TV, annars verð ég að horfa í tölvunni. Það er ekkert eins gaman en hvað gerir maður ekki í neyð.

Snjómyndir að lokum.


miðvikudagur, 20. janúar 2010

Handboltahátíð og fleira

Fyrsta íþróttahátíð ársins er hafin, EM í handbolta. Bæði Þýskaland og Ísland eru með, ég held auðvitað mest með Íslandi, ef þeim gengur ekki vel held ég bara með Þýskalandi, þeim gengur ekkert rosa vel hingað til. Ég held þá bara með Noregi, eða bara Danmörku. Vona bara einhvern veginn að Frakkland vinni ekki, veit ekki afhverju........Þeir gerðu bara jafntefli við Ungverjaland í gær en oft byrja þeir ekkert vel en koma svo sterkir inn.

Næsta íþróttahátíð er svo í febrúar. Ólympíuleikarnir í Vancouver, þá mun ég sitja meira og minna fyrir framan imbann......eins mikið og ég get. Í sumar er svo heimsmeistarmót í fótbolta í Suður-Afríku. Leikirnir verða sýndir á stórum skjá niðri í bæ eins og á HM 2006 og EM 2008. Alveg magnað.

Annars er ekkert planað hjá mér.........eins og vanalega. Flest gert með stuttum fyrirvara. Ætlum reyndar að fara til Tyrklands í sumar en það er spurning hvenær (allavega eftir 15.7.) og hvernig......ég nenni eiginlega ekki að keyra en samt er það að sumu leyti gaman. Kannski koma þau gömlu í heimsókn í sumar??? Eða einhver annar???  Allir velkomnir þó að þröngt sé í koti og evran dýr ;)

Það er lítið á seyði hjá okkur þessa dagana. Julian er til fjögur í gæslunni og við erum oftast bara heima það sem eftir er dagsins enda með eindæmum heimakær :) Mér finnst bara gott að slaka aðeins á eftir desembertörnina og á undan vor-/sumartörn. Reyndar er nóg að gera í vinnunni og fullt hús dag eftir dag. Seydi vinnur fram á kvöld og ég ferja bíla frá kúnnum frá Recklinghausen á verkstæðið. Í gær keyrði ég Golf á verkstæðið, fór heim á Ford Mondeo og í dag keyrði ég Audi (með leðursætum) fram og til baka. Skilaði bílnum og labbaði í gegnum bæinn, skrapp í H&M og keypti mér hlýrabol og bleika blússu.........sumarið má bara koma, hahaha. Gott að fá smá tíma fyrir sjálfan sig en á miðvikudögum er söngæfing í leikskólanum.

Jæja, Desperate Housewives byrjað. Meira seinna.........Mynd af krókussum eða páskaliljum stinga hausunum upp fylgir með.

mánudagur, 18. janúar 2010

Merkisafmæli

Í dag eiga tvær mér kærar manneskjur merkisafmæli. Fyrst af öllu "litli" bróðir minn, fæddur fyrir 30 árum meðan á breytingum stóð og því sváfum við fjölskyldan þar sem "litli" bróðir er nú með stofuna sína :) Elsku Hjálmar Bogi (það tók smá tíma að venjast nafninu) minn, hjartanlega til hamingju með daginn. Njóttu hans.

Í dag á líka indæl bekkjarsystir mín afmæli, henni er allt fært frá og með deginum í dag (segir máltækið). Elsku Sylvía, til hamingju með daginn. Takk fyrir gestrisnina í sumar.

Einhverjir fleiri eiga sjálfsagt afmæli, mig minnir að Hera Hermanns frænka mín eigi líka afmæli. Ætti nú kannski í kíkja í Íslendingabók.......

Læt þetta duga í dag. Meira seinna í vikunni.

föstudagur, 8. janúar 2010

Snjórinn blívur......

Annað árið í röð byrjar árið snjóríkt og á víst að bætast vel við á morgun, alveg heilir 20 cm! Það er sko helling á Recklinghausen mælikvarða, spurning hvort að það gengur eftir. Fólk er beðið að vera bara heima og fara bara út ef það nauðsynlega þarf. Ég ætla út........ætla að upplifa æskuminningar þegar vaðið var út í stórhríð með skíðagleraugu. Á reyndar engin skíðagleraugu en ég býst ekki við að þetta verði það slæmt, á minn mælikvarða sko ;)

Ég tók mynd hérna eitt kvöldið, best að skella henni hér inn. Tók hana klukkan 22:30.


Fór í vinnuna  í gær eftir rólegt jólafrí. Þarf svo að vera heima í dag því að Henrik gubbaði.......fór til læknis og hann gæti verið að fá í magann. Fékk stíla ef hann skildi gubba aftur en vonandi var þetta bara smá skot en þetta er víst að ganga í leikskólanum. Mér sjálfri líður ekkert of vel í maganum en það er kannski bara útaf því að ég keypti einhverja "þarmajógúrt" og át 2 sveskjur í morgun......já já,nú á að byrja árið í hollustunni. Át samt 2 blúndur í gær........aldrei hægt að hemja sig. Aginn alveg í núlli. Auglýsingarbæklingar frá 100 líkamsræktarstöðvum fljúga í póstkassann, nú eiga allir að hreyfa sig eftir hátíðarnar. Sama sagan ár eftir ár. "Allir að komast í bikiníform fyrir vorið" móttó. Mig langar en ég dríf mig bara ekki, þyrfti helst stöð með barnagæslu, þær eru dýrastar og gæslan eitthvað gloppótt. Gæti líka farið út að ganga þegar Seydi er kominn heim..........seint á kvöldin. Nú eða skoppað hér í stofunni til að svitna aðeins.........það er svo miklu þægilegra að sitja og gera ekki neitt. Ég held að viljinn sé ekki nægur en ég held að ef ég byrja og sé árangur, mun ég kannski halda áfram. Kannski......... ég held að mér líði nógu illa í líkamanum, finnst ég vera bara í lagi, oftast allavega. Mætti kannski vera stinnari frá hné og upp í mitti EN á ég ekki bara að láta sjúga það úr, hahaha. GLÆTAN. Nú svo verður maður víst ekki yngri, frá fertugu er víst erfiðara að ná af sér pundum og mikilvægara að lifa heilsumslega. Ég hef því rúmlega mánuð til að undirbúa mig!!!!

Nóg komið af bulli. Undirbý mig fyrir stórhríðina á morgun.

föstudagur, 1. janúar 2010

Gleðilegt ár 2010

Megi gæfa og hamingja fylgja ykkur, og mér og mínum auðvitað, á þessu nýja ári. Hvíslað var að mér að ég ætti nú að fara að skipuleggja eitthvað afmæli eftir 1 1/2 mánuð.......ég get bara ekki skipulagt svona langt fram í tímann. Hef heldur ekki hugmynd um hvað mig langar að gera........nema kannski helst stinga af í helgarferð eitthvert. Nenni ekki að standa í veisluhöldum.......nema þá fengi ég kannski fleiri gjafir, hahaha. Fyrst þarf ég að skipuleggja afmæli frumburðarins. Ætli við tökum ekki innileikvöll á það, ekkert þægilegra en það. Seydi borgar.

Skaupið var alveg frábært, ég skældi næstum því í lokaatriðinu.......þjóðarstoltið sagði til sín ;) Ég er samt ekkert að flytja til Íslands sko, líður bara vel hér í minni veröld. Vantar stundum vini og vandamenn en það er ekki hægt að fá allt í lífinu og ég reyni að vera ánægð með það sem ég hef og gera það besta úr því. Meira get ég ekki. Jól og áramót eru alltaf tími til að hugsa enn meira heim, smá heimþrá gerði vart við sig.......líka í snjóinn ;) Langar svooooooo á skíði. Á reyndar bara ELDGÖMUL Blizzard skíði, 1.80 m löng uppi á lofti og enga klossa. Efast um að ég myndi slá í gegn í Melnum.......

Eyddi áramótunum hjá Sultan mágkonu. Hún eldaði hænu og var með fullt af meðlæti sem dugaði svo líka í matinn hjá tengdó í dag. Gott að þurfa ekki að elda 2 daga í röð, þvílíkur léttir. Í dag snjóaði smá og ég tók strákana með mér og við löbbuðum til tengdó, tekur svona hálftíma með 2 gaura í eftirdragi. Seydi keyrði, þvílíkt latur.

Úff, ég er orðin svo uppþembd af áti, mér finnst allt springa utan af mér, puttar og leggir vera að springa. Samt hreinsaðist vel út í dag........bjórinn er góður til þess. Drakk samt "bara" 4 og smá freyðivín.....sem betur fer, annars hefði ég eytt deginum í rúminu. Fínt svona bara.

Ætla að reyna að koma strákunum í ró, þeir sváfu langt fram eftir degi. Horfa svo á íslenska mynd á eftir. Eitthvað um Reykjavík-Rotterdam með Baltasar og Ingvari.

Hef enga mynd til að setja með. Sorry allir. Gleðilegt ár aftur.