Megi gæfa og hamingja fylgja ykkur, og mér og mínum auðvitað, á þessu nýja ári. Hvíslað var að mér að ég ætti nú að fara að skipuleggja eitthvað afmæli eftir 1 1/2 mánuð.......ég get bara ekki skipulagt svona langt fram í tímann. Hef heldur ekki hugmynd um hvað mig langar að gera........nema kannski helst stinga af í helgarferð eitthvert. Nenni ekki að standa í veisluhöldum.......nema þá fengi ég kannski fleiri gjafir, hahaha. Fyrst þarf ég að skipuleggja afmæli frumburðarins. Ætli við tökum ekki innileikvöll á það, ekkert þægilegra en það. Seydi borgar.
Skaupið var alveg frábært, ég skældi næstum því í lokaatriðinu.......þjóðarstoltið sagði til sín ;) Ég er samt ekkert að flytja til Íslands sko, líður bara vel hér í minni veröld. Vantar stundum vini og vandamenn en það er ekki hægt að fá allt í lífinu og ég reyni að vera ánægð með það sem ég hef og gera það besta úr því. Meira get ég ekki. Jól og áramót eru alltaf tími til að hugsa enn meira heim, smá heimþrá gerði vart við sig.......líka í snjóinn ;) Langar svooooooo á skíði. Á reyndar bara ELDGÖMUL Blizzard skíði, 1.80 m löng uppi á lofti og enga klossa. Efast um að ég myndi slá í gegn í Melnum.......
Eyddi áramótunum hjá Sultan mágkonu. Hún eldaði hænu og var með fullt af meðlæti sem dugaði svo líka í matinn hjá tengdó í dag. Gott að þurfa ekki að elda 2 daga í röð, þvílíkur léttir. Í dag snjóaði smá og ég tók strákana með mér og við löbbuðum til tengdó, tekur svona hálftíma með 2 gaura í eftirdragi. Seydi keyrði, þvílíkt latur.
Úff, ég er orðin svo uppþembd af áti, mér finnst allt springa utan af mér, puttar og leggir vera að springa. Samt hreinsaðist vel út í dag........bjórinn er góður til þess. Drakk samt "bara" 4 og smá freyðivín.....sem betur fer, annars hefði ég eytt deginum í rúminu. Fínt svona bara.
Ætla að reyna að koma strákunum í ró, þeir sváfu langt fram eftir degi. Horfa svo á íslenska mynd á eftir. Eitthvað um Reykjavík-Rotterdam með Baltasar og Ingvari.
Hef enga mynd til að setja með. Sorry allir. Gleðilegt ár aftur.
Gleðilegt árið til þín og þinna Inga mín.
SvaraEyðakveðja
Heiðrún
Gleðilegt ár elsku Inga systir, takk fyrir gamla árið. Fullt af samveru og bloggi, haltu því endilega áfram. Vonandi sjáumst við líka á þessu ári. Ég mæli með helgarferð til Reykjavíkur, klárlega frábær staður...
SvaraEyðaBestu kveðjur til gauranna þinna, sólarkveðjur, U.