Fyrsta íþróttahátíð ársins er hafin, EM í handbolta. Bæði Þýskaland og Ísland eru með, ég held auðvitað mest með Íslandi, ef þeim gengur ekki vel held ég bara með Þýskalandi, þeim gengur ekkert rosa vel hingað til. Ég held þá bara með Noregi, eða bara Danmörku. Vona bara einhvern veginn að Frakkland vinni ekki, veit ekki afhverju........Þeir gerðu bara jafntefli við Ungverjaland í gær en oft byrja þeir ekkert vel en koma svo sterkir inn.
Næsta íþróttahátíð er svo í febrúar. Ólympíuleikarnir í Vancouver, þá mun ég sitja meira og minna fyrir framan imbann......eins mikið og ég get. Í sumar er svo heimsmeistarmót í fótbolta í Suður-Afríku. Leikirnir verða sýndir á stórum skjá niðri í bæ eins og á HM 2006 og EM 2008. Alveg magnað.
Annars er ekkert planað hjá mér.........eins og vanalega. Flest gert með stuttum fyrirvara. Ætlum reyndar að fara til Tyrklands í sumar en það er spurning hvenær (allavega eftir 15.7.) og hvernig......ég nenni eiginlega ekki að keyra en samt er það að sumu leyti gaman. Kannski koma þau gömlu í heimsókn í sumar??? Eða einhver annar??? Allir velkomnir þó að þröngt sé í koti og evran dýr ;)
Það er lítið á seyði hjá okkur þessa dagana. Julian er til fjögur í gæslunni og við erum oftast bara heima það sem eftir er dagsins enda með eindæmum heimakær :) Mér finnst bara gott að slaka aðeins á eftir desembertörnina og á undan vor-/sumartörn. Reyndar er nóg að gera í vinnunni og fullt hús dag eftir dag. Seydi vinnur fram á kvöld og ég ferja bíla frá kúnnum frá Recklinghausen á verkstæðið. Í gær keyrði ég Golf á verkstæðið, fór heim á Ford Mondeo og í dag keyrði ég Audi (með leðursætum) fram og til baka. Skilaði bílnum og labbaði í gegnum bæinn, skrapp í H&M og keypti mér hlýrabol og bleika blússu.........sumarið má bara koma, hahaha. Gott að fá smá tíma fyrir sjálfan sig en á miðvikudögum er söngæfing í leikskólanum.
Jæja, Desperate Housewives byrjað. Meira seinna.........Mynd af krókussum eða páskaliljum stinga hausunum upp fylgir með.
HÆ hæ flott hjá þér að vera farin að undirbúa sumarið, kaupa hlýrabol og mærublússu.
SvaraEyðaVið verðum að koma ef þú kemur ekki í sumar, bara ekki hægt að fá ekki alvöru knús einu sinni á ári ..hahaha.
Hafðu það gott elskan þín mamma.
Já mærublússu, hugsaði ekki út í það :) Nota hana næst þegar ég verð heima á Mærudögum.
SvaraEyðaÞað er reyndar spáð kólnandi næstu daga, í morgun var flughált eftir raka og kalda nótt.
Þið látið mig bara vita hvert ég á að sækja ykkur þegar þið komið ;)
Knús elsku mamma
já nú er sko handboltaveislan byrjuð:) það myndast alltaf eitthvað svo góð stemming þegar handboltamót eru....einhvern veginn allir að fylgjast með, öðruvísi með fótboltann!
SvaraEyðaÞað er svo ótrúlegt með það, að þó evran sé með þessi leiðindi, þá er hagstæðara að versla t.d. föt og svona úti með tilheyrandi kostnaði að fljúga út, því allt hér er orðið SVO DÝRT! maður fær ekki íþróttabuxtur á undir 10.000 og flestar kosta 12-13.000...halló, við erum að tala um venulegar æfingabuxtur!!
En svona by the way, SKAMM fyrir að ætla ekki að koma í sumar...það er ekkert gott að vera í Tyrklandi;) (hehe, ein fúl).
Góða helgi annars,
kveðja Rakel
p.s. mamma og pabbi eru að koma um helgina, mamma kemur reyndar í kvöd og vá hvað ég hlakka til, ætlum að skella okkur á þorrablót í borginni:)
Ég er einmitt að horfa á Ísland-Austurríki núna. Bæði liðin MJÖG dugleg að skora, vá.
SvaraEyðaJá er allt orðið svona dýrt, kannski er það að skila sér núna hvað evran er dýr....hérna eru t.d. fínustu æfingaföt í H&M, buxur á svona 20 €, eitthvað svipað í Decathlon. Það eru nú um 3600 kr og greinilega ekki dýrt.....Ég er alltaf að skoða, alltaf á leið í ræktina sko ;)
Viltu ekki bara koma til okkar í sumar og skella þér með til Tyrklands? Förum bara á bíl ;) Þú verður samt sennilega að vinna er það ekki?
Mamma sagði mér einmitt að hún væri að fara suður, frábært. Njótið vel og skemmtið ykkur líka.
Knús