Ég veit ekki hvernig ég lifði daginn af í gær, enginn handbolti til að horfa á. Ég ákvað því að lesa í stórskemmtilegri bók eftir tyrkneska konu sem alin er upp hér, stórfyndin og góð. Julian fékk heimsókn og Henrik var í tölvunni, ég hafði því frið til að lesa. Næst ætla ég að lesa fyrri bókina eftir konuna, greip þessa bara á bókasafninu án þess að vita að önnur bók hefði verið á undan. Skiptir ekki, hún er ekkert framhald.
Stórleikur í handbolta í dag, eftir tæpan klukkutíma. Ég á bara eftir að ná í Julian kl. 16 og svo hleyp ég heim í leikinn. Veðrið er bilað, í morgun bráðnaði mikið af snjónum og það rigndi af og til, núna er snjókoma sem fylgdi þrumum og eldingum! Allt orðið hvítt aftur.......jæja, skárra en ljóta, brúna slabbið.
Ég er með hálsríg. Henrik kom upp í, í nótt og ég var alltaf að vakna og hef greinilega sofið eitthvað skakkt....á enn erfitt með að líta til hægri. Þetta hlýtur að lagast fljótlega. Ég var svo pirruð á öllu í morgun að Seydi gafst upp á að reyna að tala við mig eða tjónka við mig.......ég var svo búin að gleyma pirringnum þegar ég kom í vinnuna. Hef týnt honum á leiðinni.
Þetta dugar í dag. Nenni ekki að sitja of lengi hérna útaf hálsríg. Verð að athuga hvort að leikurinn verði sýndur í TV, annars verð ég að horfa í tölvunni. Það er ekkert eins gaman en hvað gerir maður ekki í neyð.
Snjómyndir að lokum.
Sæl elskan mín.
SvaraEyðaVonandi er hálsrígurinn farinn. Besta ráðið er að gera æfingar og teigja á hálsinum vel og lengi og íta á auma blettinn það klikkar ekki.
Meira vesenið fyrir ykkur að hafa allan þennan snjó, hér var sná föl í dag það á að vera kalt mæstu daga en engin úrkoma sem betur fer.
Hafðu það gott og ekki missa þig í þessu handboltarugli. Kveðja mamma.
Ég er skárri í dag mamma, reyni að teygja og æfa hálsinn eins og ég get. Samt smá vont að líta til hægri en þetta kemur. Reyndar kom Julian upp í í nótt en hann lætur ekkert eins illa og Henrik ;)
SvaraEyðaÞó ég sé mikil vetrarmanneskja og elski snjó finnst mér nú nóg komið....slydda og 1° í dag.
Handboltarugli hvað! Þetta er voða skemmtilegur leikur en ég missi mig nú ekki það mikið að ég fljúgi til Vínar á morgun ;)
Góða helgi