Í dag eiga tvær mér kærar manneskjur merkisafmæli. Fyrst af öllu "litli" bróðir minn, fæddur fyrir 30 árum meðan á breytingum stóð og því sváfum við fjölskyldan þar sem "litli" bróðir er nú með stofuna sína :) Elsku Hjálmar Bogi (það tók smá tíma að venjast nafninu) minn, hjartanlega til hamingju með daginn. Njóttu hans.
Í dag á líka indæl bekkjarsystir mín afmæli, henni er allt fært frá og með deginum í dag (segir máltækið). Elsku Sylvía, til hamingju með daginn. Takk fyrir gestrisnina í sumar.
Einhverjir fleiri eiga sjálfsagt afmæli, mig minnir að Hera Hermanns frænka mín eigi líka afmæli. Ætti nú kannski í kíkja í Íslendingabók.......
Læt þetta duga í dag. Meira seinna í vikunni.
Takk kærlega fyrir kveðjuna I(u)nga mín :-) og þakka fyrir gjöfina... kveðju til allra karlanna þinna...
SvaraEyða