Annað árið í röð byrjar árið snjóríkt og á víst að bætast vel við á morgun, alveg heilir 20 cm! Það er sko helling á Recklinghausen mælikvarða, spurning hvort að það gengur eftir. Fólk er beðið að vera bara heima og fara bara út ef það nauðsynlega þarf. Ég ætla út........ætla að upplifa æskuminningar þegar vaðið var út í stórhríð með skíðagleraugu. Á reyndar engin skíðagleraugu en ég býst ekki við að þetta verði það slæmt, á minn mælikvarða sko ;)
Ég tók mynd hérna eitt kvöldið, best að skella henni hér inn. Tók hana klukkan 22:30.
Fór í vinnuna í gær eftir rólegt jólafrí. Þarf svo að vera heima í dag því að Henrik gubbaði.......fór til læknis og hann gæti verið að fá í magann. Fékk stíla ef hann skildi gubba aftur en vonandi var þetta bara smá skot en þetta er víst að ganga í leikskólanum. Mér sjálfri líður ekkert of vel í maganum en það er kannski bara útaf því að ég keypti einhverja "þarmajógúrt" og át 2 sveskjur í morgun......já já,nú á að byrja árið í hollustunni. Át samt 2 blúndur í gær........aldrei hægt að hemja sig. Aginn alveg í núlli. Auglýsingarbæklingar frá 100 líkamsræktarstöðvum fljúga í póstkassann, nú eiga allir að hreyfa sig eftir hátíðarnar. Sama sagan ár eftir ár. "Allir að komast í bikiníform fyrir vorið" móttó. Mig langar en ég dríf mig bara ekki, þyrfti helst stöð með barnagæslu, þær eru dýrastar og gæslan eitthvað gloppótt. Gæti líka farið út að ganga þegar Seydi er kominn heim..........seint á kvöldin. Nú eða skoppað hér í stofunni til að svitna aðeins.........það er svo miklu þægilegra að sitja og gera ekki neitt. Ég held að viljinn sé ekki nægur en ég held að ef ég byrja og sé árangur, mun ég kannski halda áfram. Kannski......... ég held að mér líði nógu illa í líkamanum, finnst ég vera bara í lagi, oftast allavega. Mætti kannski vera stinnari frá hné og upp í mitti EN á ég ekki bara að láta sjúga það úr, hahaha. GLÆTAN. Nú svo verður maður víst ekki yngri, frá fertugu er víst erfiðara að ná af sér pundum og mikilvægara að lifa heilsumslega. Ég hef því rúmlega mánuð til að undirbúa mig!!!!
Nóg komið af bulli. Undirbý mig fyrir stórhríðina á morgun.
ég er komin með þá allra bestu afsökun í heimi, ég í alvörunni hef ekki tíma fyrir líkamsræktarpuð... (alltaf auðvitað hægt ef vilji er fyrir hendi, en mínir slöppu uppvöðvar hafa ekki kraft í það)
SvaraEyðaþað er líka allt á kafi í snjó hjá mér - svo fallegt - púðursnjór prýðir allt...
góða helgi vina
vona að ykkur líði betur í mallakútunum!
Hæhæ, bara að labba upp og niður stigana hjá þér er nú ágætis líkamsrækt (fara bara nokkrar aukaferðir).
SvaraEyðaHér er snjórinn að fara og vonandi helst hlákan það lengi að svellin fari líka.
Farðu varlega í stórhríðinni og vonandi verður magapestin snögg að ganga yfir.
Kveðja úr þriggja gráðu hita og sunnan golu.
þín mamma
Stigarnir hjá mér eru fínasta líkamsrækt og ég er fullviss um það að þeir hafa haldið mér í formi undanfarin ár. Gæti kannski hlaupið 2 aukaferðir þegar ég hef tíma ;)
SvaraEyðaHenrik hefur ekkert gubbað aftur og er ekki með niðurgang.
Hérna er að brjótast úr panikk, fólk að versla fyrir marga daga........ það sem er óvanalegt er vindurinn sem fylgir þessu veðri, spáð sköflum sem er ekki oft hér. Er að horfa á fréttir í þessum rituðu orðum. Stormurinn er kominn til S- og A-Þýskalands.
Ég mun lifa þetta af :)
eg efast ekki um það, halt Seydi bara inni.
SvaraEyðaKveðja mamma
Hér er snjórinn að fara sem er frekar slæmt... 5 gráður hér í dag. Snjórinn féll af þakinu eina nóttina og ég hélt hreinlega að það hefði verið jarðskjálfti... hahaha, þarmajógúrt, skemmtilegt, meina hver framleiðir svoleiðis :-) annars eru sveskjurnar góðar.
SvaraEyðahilsen Hjálmar litli
Hér snjóaði nú ekki mikið í nótt, á kannski eftir að koma seinna í dag. Ég bjóst við meiru. En hérna ef hverju eru snjóhengjur ekki teknar af húsum? T.d. björgunarsveitin eða löggan eða slökkviliðið?
SvaraEyðaSko, orðið "Darm" eða þarmur er mikið notað hér, hvort sem það er í auglýsingum eða veikindum. Þetta er bara svona jógúrt fyrir meltinguna, mundi ekki alveg orðið í gær.......
Góðan daginn. Í fréttum hér er sagt frá því að Þjóðverjar eigi að byrgja sig upp af matvælum í fjóra daga og geti ekki reitt sig á rafmagn. Er ástandið sem sagt ekki þannig hjá þér?
SvaraEyðaHafðu það gott elskan. Kveðja mamma.
Nei nei nei mamma, hér er smá hríð og ekkert hvasst eins og er. Þetta varð ekkert eins slæmt og búist var við og þetta með að hamstra er nú bara bull. Kannski þeir sem búa afskekkt ættu að byrgja sig upp.
SvaraEyðaSeydi fór auðvitað að brasa, m.a. til Dortmund að sækja varahluti.
HÆHÓ
SvaraEyðamín er svo alveg búin að vera að klikka á heimsókn á síðuna! í fríinu fór ég nánast ekkert í tölvuna og svo fór tölvan mín í "straujun" og fékk ég hana núna svona líka fína og hraðskreiða;)
En best að henda inn nýársóskum hér líka, vonandi verður nýja árið gæfuríkt og hamingjusamt hjá ykkur:)
En svona by the way, þá gagnast lítið að borða jógúrt sem búið er að bæta gerlum í sem eiga að gera góða hluti í ristlinum, því þeir eru löngu dauðir og þ.a.l. óvirkir þegar þeir eiga að vinna vinnuna sína, svona bioactive dæmi! Reyndar virka sumir gerlar í ákveðnum fæðutegunum, en ekki í jógúrt, sorrý:(
bestu kveðjur úr blautu borginni,
RDH
Hæ Rakel mín. Gott hjá þér að láta fínpússa tölvuna, ég þyrfti að gera það líka. Langar samt mest í nýja fartölvu..
SvaraEyðaTakk fyrir upplýsingarnar um jógúrtina. Í þeim eiga að vera einhverji Lcasei gerlar, laktoflor eða hvað þetta heitir. Eitthvað svipað og LGG og svona dót. Virkar það þá ekkert heldur? Og mamma búin að eyða peningum í þetta dót..... ;)
Knús