...og 1 dagur eru liðin síðan að ég leit dagsins ljós. Ég kom víst í heiminn rúmlega 8 um morguninn, svona á réttum tíma til að mæta í skólann. Held að það hafi gert mig svona "úber" stundvísa manneskju ;) Það er stundum hægt að stilla klukkuna eftir mér. Ef ég á að mæta klukkan 10, þá mæti ég klukkan 10, ekki 10 mínútur í eða 10 mínútur yfir! Þetta er oft ofboðslega þreytandi ávani eða kækur eða bara kostur, æi ég veit það ekki. Þetta getur nefnilega komið mér í koll EF eitthvað tefur för mína..........þá mæti ég of seint og þá líður mér illa. Ferlegt bara.
En jæja, ég komst niður og upp af 4. hæð í gærkvöld svo að mín skoðun er sú að ég hafi ekkert elst neitt ógurlega mikið á 1 nóttu. Er bara ekki lengur "þrjátíu og eitthvað"......svona líður tíminn, hann stoppar ekkert!
Ætla nú ekki að röfla mikið heldur setja inn eina mynd eða tvær. Karneval er að verða búið, fegin er ég. Ekkert nema myndir af einhverjum Karneval teitum í blöðunum, Karneval hér og Karneval þar. Fór nú samt í bæinn með strákana í dag og við söfnuðum eitthvað af nammi, aðallega vondum molum sem urðu hálf ógeðslegir í slabbinu. Þeir eru samt komnir í skál, hvort þeir verða borðaðir veit ég samt ekki.
Nenni ekki að skrifa mikið um afmælisveisluna á laugardaginn.....segi bara eitt. Fjölskylda Seydi er upp til hópa ókurteis og vanþakklát. Segi ekkert meir, í bili allavega. Nenni ekki að velta mér upp úr þessu en ég mun ekki baka fyrir þau aftur, það er ljóst.........
Jæja, fleiri myndir :)
Afmælistertur
Afmælisgjafir
Karneval
Gleðilegan bolludag..........
Hæhæ. Já 40 ár ótrúlegt hvað tíminn líður hratt en margt hefur nú breist á þessum fjörutíu árum þegar horft er til baka. Næstu 40 ár verða enn fljótari að líða en það er ekki hægt að snúa við, það eitt er víst.
SvaraEyðaþetta er nú flott veisluborð sýnist mér og bragðið eftir því gæti eg trúað. Þau kunna bara ekki gott að meta eða éta ekki orð um það meir.
Hafðu það gott elskan mín og njóttu hverrar mínútu þú verður ekki deginum eldri en þú vilt verða mundu það.
Kveðja þín mamma.
Elsku mamma, minn tryggi lesandi :) Næstu 40 ár verða allavega öðruvísi en þau liðnu, lífið búið að mótast nokkurn veginn og nú ætti maður að geta slakað á......aðeins allavega. Á bara eftir að kaupa mér hús ;)
SvaraEyðaKveðja
...heyrðu ég fer hérna inn daglega :-) og ekkert blogg í viku... herða sig...
SvaraEyðakveðja þinn ósýnilegi bróðir :-)