Veit ekki hvort ég hef nokkra mynd í dag. Hef ekkert verið að mynda nema þá strákana og þeir eiga sínar síður fyrir sínar myndir. Hey, ég veit. Set inn gamla mynd af Seydi sem ég skannaði. Er komin með skanna hérna heim og var að prófa hann. Versogú, svona leit Seydi út fyrir tæplega 20 árum.
Hann veit ekkert að að set þessa mynd inn. Skoðar aldrei bloggið mitt enda skilur hann ekkert í því. Ætli ég sýni honum þetta ekki samt, við felum ekkert fyrir hvort öðru.
Annars er ég eitthvað svo stressuð, eiginlega útaf engu, samt getur það ekki verið útaf engu........finnst ég ekki gleyma einhverju hér og þar og allstaðar. Hrædd um að gleyma veskinu mínu, týna peningaveskinu, koma of seint að sækja strákana, gleyma talkennslunni, sofa yfir mig, hafa ekki nógu hreint og fínt, hugsa um hvað á að vera í matinn osfrv. osfrv. Hvernig fara konur, sem eru í fullri vinnu og kannski með enn fleiri börn, að þessu! Kannski spilar það inn í að ég hef engan sem hleypur upp á fyrir mig, nema þá helst Bärbel vinkonu. Seydi hefur meira en nóg að gera í vinnunni, ég líka, nóg er nú stressið þar stundum. Ég náði smá tíma til að slaka á, á síðasta sunnudag. Sendi Seydi með strákana til tengdó, nennti ekki með. Ekki oft sem ég er alein, nema þegar ég keyri í og úr vinnunni. Það er bara ekkert nóg. Nú koma örugglega komment um að Seydi geti bara hætt fyrr að vinna osfrv. Auðvitað getur hann það stundum, hann veit það alveg sjálfur og gerir sitt besta. Það er bara alveg ótrúlegt hvað hann er "vinsæll", ég veit ekki hvað það hringja margir í hann á dag eða koma á verkstæðið...... Það fyrsta sem ég ætla að gera, er að reyna að færa svefntíma strákanna fram. Láta þá fara að í ró hálftíma fyrr, svo kannski aftur hálftíma. Verst að þeir eru eins og ég, þurfa minni svefn en meðal börn.
Ég finn það bara að ég verð að fá lengur frið á kvöldin. Hef notið þess ef strákarnir hafa sofnað fyrr.
Væl og skæl er þetta........var það þetta sem þú baðst um Hjálmar :) Kvittaðu nú......

ómægad, ég verð nú bara að byrja á því að commenta á þessa mynda af Seydi, HAHAHAHA, hann er svo grannur þarna að ég hélt að þetta væri litli bróðir hans....og var ekki alveg að fatta hvað þú værir að gera með mynd af honum á blogginu! (sko áður en ég las textann).
SvaraEyðaÞað er nú vandamálið að búa útí heimi, ekki hægt að kalla á hundað ömmur & afa og skrilljón frænkur og frændur til að passa börnin!! ég get rétt ímyndað mér að það sé erfitt og í rauninni nauðsynlegt að fá tíma fyrir sig og börnin líka að fá frí frá mömmunni. Þú verður að fá þér einhverja unga píu sem getur hendst út að leika með þeim stund og stund:)...og tala nú ekki um það að Seydi má nú alveg eyða smá meiri tíma í gaurana þó hann hafi nóg að gera í vinnunni;)
kossar frá mér til þín:*
RAKEL
Við systurnar erum báðar á undan lilla bró að kvitta, jebb ég er á netinu...
SvaraEyðaÉg bara varð að hlusta á danska euro lagið enn og aftur, það er bara dásamlegt, komið inn mix af laginu og alles. Ég er búin að gera ráðstafanir með að eignast diskinn úr danska og sænska euro, gott að vini erlendis. 3 mánuðir í brottför til Norge, je minn hve ég hlakka til...
En elsku vina, ekki hætta að blogga, bitte.
Bið að heilsa öllum, líka þessum einu sinni granna... U.
Æi þið eruð æði elsku systur. Sá "einu sinni granni" kom heim með svínafilet áðan og við átum það í medalíum en strákarnir fóru góðir að sofa um hálf níu. Hausverkurinn fór og sá "einu sinni granni" er farinn að hrjóta í stólnum. Ég ætla því að njóta kvöldstundarinnar ein með "Crossing Jordan" og smá stórsvigi :)
SvaraEyðaStór knús
Hæhæ það fór eins fyrir mér og Rakel eg hélt að þetta væri gömul mynd af Ibo minnti samt að hann hefði ekki verið svona sætur (Ibo sko).
SvaraEyðaSeydi er nú enn sætur bara fjall myndarlegur kallinn.
Vona að þú hafir notið kvöldsins elskan þú átt það inni.
Ekki hætta að blogga PLÍÍÍS.
Kveðja mamma.
Já mamma og Rakel, konan hans Ibo sagði nú það sama þegar hún sá gamlar myndir af Seydi.....Ibo var ekki skemmt, hahaha.
SvaraEyðaÉg dormaði á sófanum til rúmlega 1 eftir að hafa sent Seydi inn í rúm. Það var voða þægilegt.
Svo því sé haldið til haga þá er ég ekki að kvitta vegna áskorunar frá þeim rauðu... ég les hvert blogg og finnst sem ég sé að hlusta á þig hérna við hliðina á mér, get hins vegar ekki lokað augunum...
SvaraEyðaÞegar ég renndi yfir bloggið þá setti ég strax spurningamerki við það að Inga systir mín væri að setja inn mynd af mági sínum, Ibo...
En það er skemmtilegt áf þér Inga mín að birta okkur hinum fyrir hverju þú féllst :-)
Einvera er vanmetið fyrirbæri, það skal ég segja þér. Hún er nauðsynleg til að rækta sjálfan sig :-)
Ég var nú ekki að biðja um neitt sérstakt nema nokkur orð frá systur minn sem býr erlendis og þykir vænt um að lesa hugsanir hennar og vangaveltur. Nokkuð sama hvað það er...
Þinn litli bróðir... :-)
Oh þú ert svo mikið yndi elsku bróðir :)
SvaraEyðaSammála með einveruna, ég elska einveru, leiðist sko aldrei. Mætti vera oftar ein.
Góða helgi :*