Þessa vikuna komst ég bara í vinnuna í gær en á mánudaginn fór ég með Henrik til læknis vegna rauðra flekka og kláða og kallinn er með skarlatsótt. Ég þurfti nú að fara á netið til að afla mér meiri upplýsinga um þennan blessaða sjúkdóm. Er ekkert hættulegur og kemur úr streptókokka bakteríum. Var víst að ganga í leikskólanum. Ég tók Henrik með í vinnuna í gær en ég ætlaði með hann í leikskólann. Læknirinn stoppaði það nú af........var hin sem var á vakt í gær (þær eru sko tvær með stofuna) og hún vildi ekki skrifa undir vottorð um að hann mætti fara í leikskólann. Vonandi gengur það upp á morgun.........Ég kemst samt ekki í vinnu. Julian þurfti endilega að smitast og er því líka kominn á sýklalyf. Hann virðist vera veikari en Henrik, með hálsbólgu með þessu en sem betur fer engan hita. Hann verður orðinn hress á mánudaginn, ég er alveg viss um það og stefni ótrauð á afmælisveisluna á Flipp-Flopp innileiksvæðinu. Tökum því bara rólega á morgun og um helgina. Ég verð að muna að kaupa afmælisgjöf handa frumburðinum.......ætla að kaupa tösku undir Nintendo tölvuna hans. Það er það eina sem hann óskar sér. Sjáum svo til hvort ég kaupi eitthvað fleira. Hann er reyndar búinn að fá disk með mörgum leikjum fyrir tölvuna svo að hann er ekkert á flæðiskeri staddur. Vantar heldur ekkert sérstakt. Sjáum til.
Mig var farið að klæja í fingurna að breyta einhverju á heimilinu, færa mublur, mála, bara eitthvað. Tók mig því til og breytti í herbergi strákanna áðan. Það tók nokkra tíma og það tók líka á........ég er hálf dösuð núna og þreytt. Best að setjast aðeins niður og slaka á. Kannski finn ég einhverja mynd til að setja með........
Illa rutt í bænum......
Knús
Hæhæ eg er nú fegin að þetta handboltaæði er búið, svo er snjóföl yfir öllu og mjög bjart og fagurt veður. Vonandi verða strákarnir fljótir að hrista þessa pest af sér.
SvaraEyðaVið sjáumst í sumar. Kveðja mamma.
Elsku mamma
SvaraEyðaHlökkum til að sjá þig og pabba í sumar :)
Hæ, vildi bara benda þér á að nýja euro lagið frá Danmörku er snilld, finndu það og njóttu. Það hefur algerlega klínt sér fast á heilann á mér...Annars er bara fínt að frétta...U.
SvaraEyðaTakk Unnur, ég sá smá úr því í gærkvöld, leist vel á. Kíki á það í heild við tækifæri :) Sýndist ansi hvasst hjá þeim, hehe.
SvaraEyðaGangi ykkur vel að finna gistingu í Osló :)
Knús
alveg er ég dæmalaus, ef ég skrifa sjálf ekki blogg þá bara heimsæki ég ekki annara síður...
SvaraEyðasama dagskrá hjá mér, hellingssnjór, kalt, illa ruddar götur, læknaheimsóknir (arína að fá gleraugu núna)...
bestu kveðjur
Alveg dæmalaus Stella, hehe.
SvaraEyðaHérna fór nú þessi snjór, allt orðið autt en svo kom aftur föl og það er ískalt úti. "Bara" -3° en svoooooooooo kalt.
Ég er komin með nóg af kulda, vil fara að sjá brum og blómakolla.