fimmtudagur, 4. febrúar 2010

Snjóslabb ofl.

Er ekki kominn tími á nýtt blogg........handboltinn löngu búinn og Ísland kom heim með bronsið, ekkert smá flottur árangur. Þýskaland fór heim með skottið á milli lappanna, tschüssi......bæbæ. Til hamingju Ísland. Vona að fólk hellist ekki í volæði eftir handboltaæði. Þetta mót hefur örugglega lyft mörgum upp í annars dimmum janúarmánuði. Tala nú ekki um þegar auð er jörð, þá er allt enn dimmra. Nú er það þannig hér, mestur snjór farinn inn í bæjum, eitthvað eftir í köntum og á ökrum en það er allt annað að líta út núna, allt grátt og ljótt. Slabbið skemmtilega er nokkurn veginn farið en maður veit aldrei nema að annað hret sé á leiðinni. Um leið og hitinn fer í um 5° kemst ég í vorfíling, hætti að vera með hanska og húfu og nýt þess að anda að mér ósýnilegu vorlofti, hehe.

Þessa vikuna komst ég bara í vinnuna í gær en á mánudaginn fór ég með Henrik til læknis vegna rauðra flekka og kláða og kallinn er með skarlatsótt. Ég þurfti nú að fara á netið til að afla mér meiri upplýsinga um þennan blessaða sjúkdóm. Er ekkert hættulegur og kemur úr streptókokka bakteríum. Var víst að ganga í leikskólanum. Ég tók Henrik með í vinnuna í gær en ég ætlaði með hann í leikskólann. Læknirinn stoppaði það nú af........var hin sem var á vakt í gær (þær eru sko tvær með stofuna) og hún vildi ekki skrifa undir vottorð um að hann mætti fara í leikskólann. Vonandi gengur það upp á morgun.........Ég kemst samt ekki í vinnu. Julian þurfti endilega að smitast og er því líka kominn á sýklalyf. Hann virðist vera veikari en Henrik, með hálsbólgu með þessu en sem betur fer engan hita. Hann verður orðinn hress á mánudaginn, ég er alveg viss um það og stefni ótrauð á afmælisveisluna á Flipp-Flopp innileiksvæðinu. Tökum því bara rólega á morgun og um helgina. Ég verð að muna að kaupa afmælisgjöf handa frumburðinum.......ætla að kaupa tösku undir Nintendo tölvuna hans. Það er það eina sem hann óskar sér. Sjáum svo til hvort ég kaupi eitthvað fleira. Hann er reyndar búinn að fá disk með mörgum leikjum fyrir tölvuna svo að hann er ekkert á flæðiskeri staddur. Vantar heldur ekkert sérstakt. Sjáum til.

Mig var farið að klæja í fingurna að breyta einhverju á heimilinu, færa mublur, mála, bara eitthvað. Tók mig því til og breytti í herbergi strákanna áðan. Það tók nokkra tíma og það tók líka á........ég er hálf dösuð núna og þreytt. Best að setjast aðeins niður og slaka á. Kannski finn ég einhverja mynd til að setja með........

 
Illa rutt í bænum......


Knús

6 ummæli:

  1. Hæhæ eg er nú fegin að þetta handboltaæði er búið, svo er snjóföl yfir öllu og mjög bjart og fagurt veður. Vonandi verða strákarnir fljótir að hrista þessa pest af sér.
    Við sjáumst í sumar. Kveðja mamma.

    SvaraEyða
  2. Elsku mamma
    Hlökkum til að sjá þig og pabba í sumar :)

    SvaraEyða
  3. Hæ, vildi bara benda þér á að nýja euro lagið frá Danmörku er snilld, finndu það og njóttu. Það hefur algerlega klínt sér fast á heilann á mér...Annars er bara fínt að frétta...U.

    SvaraEyða
  4. Takk Unnur, ég sá smá úr því í gærkvöld, leist vel á. Kíki á það í heild við tækifæri :) Sýndist ansi hvasst hjá þeim, hehe.
    Gangi ykkur vel að finna gistingu í Osló :)
    Knús

    SvaraEyða
  5. alveg er ég dæmalaus, ef ég skrifa sjálf ekki blogg þá bara heimsæki ég ekki annara síður...

    sama dagskrá hjá mér, hellingssnjór, kalt, illa ruddar götur, læknaheimsóknir (arína að fá gleraugu núna)...

    bestu kveðjur

    SvaraEyða
  6. Alveg dæmalaus Stella, hehe.
    Hérna fór nú þessi snjór, allt orðið autt en svo kom aftur föl og það er ískalt úti. "Bara" -3° en svoooooooooo kalt.

    Ég er komin með nóg af kulda, vil fara að sjá brum og blómakolla.

    SvaraEyða