mánudagur, 22. mars 2010

Ein og nýt þess

Á núna skyndilega stund með mér sjálfri. Henrik fór heim með Tom B. vini sínum og verður þar til klukkan fimm. Ég þarf reyndar að ná í Julian klukkan fjögur en þessir 2 tímar, bara fyrir mig, eru fínasta afslöppun. Ég tók úr þvottavél, setti í aðra, braut saman þvott, lagaði til, opnaði glugga og svalahurðir og settist svo við tölvuna til að kíkja á það nýjasta.

Meira sem erlendir fjölmiðlar gera veður úr þessu gosi! Hérna í Bild lá við að það væri heimsendir í fyrirsögninni........þeir eru nú þekktir fyrir að blása allt rosalega upp og nánast alltaf fyrsti með fréttirnar, þ.e. ef þær eru spennandi. Der Spiegel var á undan með gosfréttina og hafa litlu við bætt. Bild var seinni til EN er nú að blása þetta upp, bíða eftir tsunami og ég veit ekki hvað. Hægt er að kommenta við fréttina og hafa 11 manns gert það og m.a. sagt að þetta sé byrjun á heimsendi 2012. Það sem fólk kommentar stundum er nú bara alveg ótrúlegt, sérstaklega við fréttir um ofbeldi/morð sem "útlendingar" fremja. Alltaf sama tuggan.

Ég verð nú að setja inn eina mynd eða svo, lofaði því nú einhvern tímann. Best að sýna ykkur part af páskaskreytingunum okkar. Dreif mig í að skreyta í gær, fínt að lífga aðeins upp á stofuna.
Páskalegt og nýju áklæðin á stólunum.

Rétt áðan hringdi ein mamma úr bekknum hans Julian. Spurði hvort að Julian kæmi í afmælið hans Deniz á morgun......ég kom af fjöllum. Julian hefur gleymt að nefna þetta og sýna mér boðskortið. Ég sagði að auðvitað kæmi hann svo nú verð ég að fara með Julian í búð til að kaupa afmælisgjöf. Best að hjóla í bæinn og ná svo í Henrik á hjóli, tek bara hlaupahjólið hans með. Indælis veður til að hjóla, mætti vera aðeins meiri sól til að hlýja mér en ég vil ekki kvarta. Spáð 17° hita á miðvikudaginn en þá ætla ég í tívolí með strákana enda fjölskyldudagur. Við skruppum bara aðeins á laugardaginn en þá byrjaði að rigna svo við fórum heim eftir smá stund. Alltaf jafn gaman að finna "tívolílyktina" eða lykt af sykurbrenndum möndlum. Nú eða brenndum hnetum, sólblómafræjum ofl. Voða gott og voða fitandi........ Má nú varla við því þar sem mér finnst allt vera að springa utan af mér. Sumarið kemur og ég verð enn ekki komin í "bikiníform" (ef hægt er að kalla það bikiníform hjá mér) ef þetta heldur svona áfram. Það liggur við að ég fái mér vatnslosandi pillur og laxerolíu!!

Er ekki sólin  að reyna að pota sér í gegnum skýin. Finn hlýjuna inn um stofugluggann. Blessuð sólin elskar allt.

Vorkveðja og takk fyrir að kvitta ;)





5 ummæli:

  1. Sæl elskan. Voðalega ertu dugleg að skreyta þetta er ljómandi fallegt hjá þér.
    Njóttu vorsins það lætur bíða eftir sér hér.
    Bestu kveðjur úr sliddunni.
    Þín mamma

    SvaraEyða
  2. Hæ. hæ, mikið vildi ég það væri svona gott veður hjá mér var nefnilega að hugsa um að fara í sund en það verður bara hugs í dag, því slyddu ógeðið lemur svo gluggana að það er ekki hundi út sigandi. Kveðja frá Egilsstöðum.

    SvaraEyða
  3. þú minntir mig á það að ég á í einhverjum kassa páskaskraut - kannski ég taki þig til fyrirmyndar, finni kassann, og skeyti hjá mér líka...

    bestu kveðjur

    SvaraEyða
  4. Ég er á lífi, búin að lesa, þurfum að fara að heyrast.U.

    SvaraEyða
  5. Takk fyrir kvittin, með þau mikils :)

    SvaraEyða