fimmtudagur, 4. mars 2010

Kominn mars

Enn og aftur komin vika síðan síðast......voðalega eru þessar vikur fljótar að líða, ég á bara ekki til orð. Ég verð orðinn fimmtug áður en ég veit af, svei mér þá! Þá verður frumburðurinn orðinn sjálfráða....... Nei, ég held að það sé best að halda sig bara við daginn í dag. Það er hann sem skiptir máli á þessu augnabliki.

Ég sit hérna við skjáinn, sem ég færði aftur á neðri hilluna á skrifborðinu. Held að ein af ástæðum stöðugs hausverks og þreytu í hnakka,hafi verið að ég þurfti að horfa UPP á skjáinn. Hef greinilega setið of mikið við tölvuna........neita því nú ekkert. En á meðan að ég vinn mína vinnu, sé um að ala upp börnin mín, sé um að heimilið sé hreint og matur á borðum, skammast ég mín sko ekkert fyrir það að "hanga" í tölvunni í tíma og ótíma. Ég veit að á sumrin er ég minna við en meðan að vorið varla á sér kræla, sit ég hér........og blogga. Má samt til með að setja inn mynd af snjóklukkunum, fyrir ykkur sem ekki eruð á facebook.
 
Snjóklukkur í gamla kirkjugarðinum

Ég sá líka fyrstu krókussuna í gær, gula og fjólubláa. Þeir voru sem ekki alveg útsprungnir en ekki langt í það, eða hvað? Það er spáð snjóslyddu um helgina.......ég nenni svo ekki að fá snjó aftur. Það er orðið svo hlýtt í sólinni þegar hún skín hérna á svalirnar, ég sat m.a.s. úti með blaðið í gær. Mælirinn sagði 22° í sólinni :) Er með dregið fyrir núna svo ég sjái á skjáinn, líka til að sólin sjái ekki rykið mitt......þó ég þurrki af finnur hún alltaf ryk, ótrúlegt.

Í morgun byrjaði ég á því að keyra til Dinslaken til að ná í framljós fyrir Seydi. Það var indælt að keyra um á Autobahn, alein og götur þurrar. Ég keyrði samt varlega, of mikið af flutningabílum á ferðinni, finnst mér. Sumum finnst gaman að fara fram úr, sérstaklega þessir "útlensku" fara fram úr kollegum sínum vörubílstjórum og þá hefst "fílahlaup" eins og það kallast hér þegar tveir flutningabílar keyra leeeeeeeeeeeengi hlið við hlið. Sem betur fer var hraðbrautin þreföld svo ég gat rennt fram úr fílahlaupinu, á tveggja akreina hraðbraut er þetta horror og sem betur fer á flestum stöðum bannað, þ.e. fyrir flutningabíla að fara fram úr. 

Verð í fríi á morgun. Fer í eftirlit hjá kvennsa rúmlega ellefu. Um að gera að skella sér í bæinn fyrst og á eftir líka enda stofan niðrí bæ. Voða heppilegt allt saman. Líka gott að geta labbað niður í bæ. Veit ekki með að hjóla enda spáð meiri kulda en í dag eða um 4°. Sjáum til. Ég er sem sagt komin í helgarfrí..........jibbí

Góða helgi

5 ummæli:

  1. ...já, voðalegt þegar sólin er svona lágt á lofti og einhvern veginn birtist rykið sí svona þrátt fyrir að það hafi farið deginum áður... :-) farðu í bæinn, njóttu þess að vera ein, hlusta á ekkert, hlusta á fólkið og fuglana og borða eitthvað gott :-)

    kveðja, stóri bróðir...

    SvaraEyða
  2. Já Hjálmar, sólin elskar rykið...

    Ætla líka að njóta þess að horfa á fólkið, það er gaman. Sá einn rosalegan í dag, með þetta hrikalega "apecut" (sítt að aftan). Hann var snarkrullaður, gráhærður með sítt að aftan.... minnti mig á grá rollu. Sjáum hvað ég sé á morgun.

    SvaraEyða
  3. Sæl elskan. Gaman að heyra frá þér og sjá myndir af vorboðunum.
    Já maður verður að passa sig að koma ekki við rykið í hillunum þá er það minna áberandi, þetta er versti tíminn þegar sólin er svona lágt á lofti.
    Gangi þér vel á morgun vonandi sérðu eitthvað skemmtilegt.
    Bið að heilsa köllunum.
    Kveðja þín mamma

    SvaraEyða
  4. vorið þitt er alltaf aðeins á undan okkar vori - allavega hvað blómin varðar...

    ég er með svo mikla trukka"fóbíu" eftir að hafa horft upp á einn stóran kremja bíl upp við steypuvegg að ég held mig eins langt frá þeim og ég mögulega get - og næ ekki andanum ef ég þarf að keyra í návígi við þessa fíla...

    bestu kveðjur

    SvaraEyða
  5. Já mamma, ég sá eitthvað fallegt þó ég hefði ekki mikinn tíma eftir að hafa beðið LENGI hjá kvennsa. Skellti mér í H&M en eftir að hafa mátað gallabuxur og séð hliðarspik hætti ég við! Núna verð ég að losna við þessi 3 kg, sjáum svo til með meira. Hentist svo inn í Hunkemöller og keypti mér 3 brækur, nátttreyju og BH (brjóstahaldara). Ánægð með mig :)

    Vorið er í pásu, mjög kalt núna og föl í görðum en þurrar götur. Blómin bíða bara eftir hlýrra veðri, þá spretta þau hratt.

    Segi það sama Stella, ég reyni alltaf að fara HRATT framúr þessum trukkum, sérstaklega þegar þeir eru hlið við hlið. Vil ekki vita hvað hjartað slær hratt á þessu augnabliki....

    Takk fyrir innlitin

    SvaraEyða