sunnudagur, 7. mars 2010

Nýtt "look"

Það var kominn tími á nýtt útlit hjá mér. Þessi dökki litur passaði ekki alveg við hækkandi sól og varð því þessi fallegi bleiki litur fyrir valinu. Bleikt vekur hjá mér gleði, bleikur litur er ekki bara fyrir litlar prinsessur heldur líka þroskaðar konur (og karla). Pretty in Pink. Það var skemmtileg mynd, þyrfti að sjá hana aftur. Aðallega til að sjá Andrew McCarthy. Ég var svo ástfangin af honum að ég var með útklippta mynd af honum úr Bravo í veskinu mínu. Svona var maður "bilaður" sem unglingur. Bravo er enn til og enn jafn vinsælt, þrátt fyrir netið og allt sem fylgir því. Bravo átti stóran þátt í því að maður vissi hvað var "in" á unglingsárunum. Alveg sama þó maður skildi ekkert í þýsku. Það voru myndirnar sem skiptu máli, og að ógleymdum plakötunum.......ég hengdi nokkur upp á vegg hjá mér, m.a. úr Grease 2 og Rob Lowe. Hann var voða lekker. Ég tók m.a.s. stórt plakat af honum með mér til USA, hitti hann samt ekki þegar ég fór til L.A. Hitti bara engan frægan, buhuuu. That´s life. En ég hef þó stungið tánum í Kyrrahafið, o já. Miðjarðarhafið líka, já og Atlantshafið auðvitað. Hef nú komið víða svona þegar ég fer að rifja upp liðna tíma........á samt eftir nokkur lönd hér í kring eins og England, Portúgal, Svíþjóð, Finnland og Pólland. Kem kannski í Makedóníu í sumar. Við Seydi vorum aðeins að plana Tyrklandsferðina. Munum sennilega fara í gegnum Makedóníu í staðin fyrir að keyra í gegnum Búlgaríu. Það er ekki beint uppáhaldslandið okkar.........svo er þarna 100 km leið í Serbíu og að landamærum Búlgaríu sem er voðalega leiðinleg með "sveitavegum" og mjóum göngum. Það var horror að keyra þarna að kvöldi til. Sjáum til. Höfum smá tíma til að plana. Eigum líka eftir að kaupa nýjan bíl til að fara á. Ætlum allavega að reyna að selja Benzinn og Passatinn sem fyrst. Nægur tími, nægur tími.

Engin mynd í dag. Ætlaði ekkert að blogga, bara að breyta um lit. Lét samt smá blogg fylgja með :)

Knús

7 ummæli:

  1. Sæl Inga mín. Þú ert alltaf jafn hrifið af bleika "mæru"litnum. Flott hjá þér.
    Eg skildi vel þessa þörf fyrir að setja myndir úr blöðum upp á veggi, var sjálf með Bítlan hangandi yfir rúmminu mínu á Laugum og klippti allar fegurðarsamkeppnismyndir út úr dagblöðunum og geimdi í kassa.
    Þið verðið vonandi búin að plana Tyrklandsferðina áður en við komum held það væri betra gangi ykkur vel.
    Bið að heilsa.
    Kveðja mamma.

    SvaraEyða
  2. Já mamma, ég elska bleikt :)

    Við verðum kannski búin að ákveða nokkurn veginn hvaða dag við leggjum af stað. Meira plönum við sennilega ekki.....

    SvaraEyða
  3. flottur bleiki liturinn - ekki spurning!!

    SvaraEyða
  4. Hæ hæ elsku frænka
    Bara verð nú að vera duglegri við að kvitta, algjör slúbbi hvað þetta varðar;* Sjeim on mí.
    Ég er ein af þessum örfáu sem ekki eru komnar á feisið og leita þá stundum eftir svona skemmtilegum bloggsíðum, eins og þinni. Ekki hætta að blogga!!!
    Lofa að standa mig betur í kvitteríinu.
    Knús á þig
    Jóa.

    SvaraEyða
  5. Hæ Jóa :) Ég sakna þín einmitt á facebook en gleðst auðvitað yfir því að þú skulir lesa bloggið mitt. Já og kvitta.

    Sakna líka mynda og frétta af krílunum þínum ;)

    Knús til baka

    SvaraEyða
  6. Heiðrún Jóhannsdóttir12. mars 2010 kl. 19:54

    Hæ kæra vina
    Alltaf gaman að lesa um þig hér...kvitta reyndar ekki alltaf en kíki hér við af og til.

    Kær kveðja
    Heiðrún

    SvaraEyða
  7. Alltaf velkomin í kaffi Heiðrún. Bíð svo með heitt á könnunni þegar þú kemur í eigin persónu ;)

    SvaraEyða