föstudagur, 12. mars 2010

Ó vor, ó vor, hvar ertu nú?

Alveg merkilegt þetta vor, það bara vill ekki koma. Frostnætur nótt eftir nótt, ýmist sól og kalt eða þungbúið, rakt og kalt, dag eftir dag. Nei, þetta kalla ég ekki vor.......ég sem bloggaði svo fallega um vorið fyrir stuttu. Greyið fuglarnir bíða bara eftir því að það hlýni. Eru staddir við Bodensee í S-Þýskalandi. Bændur segja að þessu kuldi sé bara fínn fyrir þeirra uppskeru, þeir hljóta að vita það betur en ég! Það er eins og að náttúran sé á "hold" og bíði bara eftir því að SPRINGA út. Það var því indælt að sitja smá inni í fuglahúsinu í litla dýragarðinum okkar í dag. Örugglega yfir 20° hiti þarna inni. Það var svo þeim mun kaldara að þurfa aftur út.....
Í fuglahúsinu sem mamma þorir ekki inn í

Í dag fórum við í okkar fyrstu hjólreiðaferð í ár. Ég fann fljótlega að eitthvað væri nú lítið loft í dekkjunum og ég með allt til alls, ætlaði að pumpa í dekkin EN var búin að gleyma því að ég þarf á bensínstöð til að pumpa í þau.......gengur ekki að nota venjulega pumpu. Ég varð því að hjóla svona áfram,nennti ekki að taka krók á bensínstöðina. Við lögðum hjólunum, löbbuðum í gegnum dýragarðinn og skruppum smá á leikvöllinn. Fengum okkur svo kakó/kaffi og kökur á litla kaffihúsinu. Svo var bara að renna sér heim. Afar þægilegt að búa neðar í bænum heldur en garðurinn. 

Ég henti svo svínakjöti í pönnu, sauð hrísgrjón, setti sveppi og zucchini + indverska sósu úr krukku yfir kjötið og tilbúinn var maturinn. Átti salat frá því í fyrradag, peppaði það bara smá upp með meira iceberg og olíu. Át þetta fyrir framan uppáhaldsfréttirnar mínar á RTL, uppi í rúmi. Leyfði strákunum að horfa á barnaefnið í stofunni. Oh, ég elska að borða uppi í rúmi og horfa á fréttirnar, sérstaklega á föstudögum :)

VERÐ að kaupa afmælisgjöf handa pabba á morgun. Bara verð að komast í búð. Helst án strákanna en auðvitað tek ég þá með í neyð. Sjáum til hvað kallinn hefur mikið að gera. Hann gæti kannski bara tekið gaurana með sér, allavega annan þeirra. Það er samt ekkert auðvelt að skipta þeim á milli. Þeir vilja fá að vera einir EN geta bara ekki verið án hvors annars nema í smá stund. Alveg ótrúlegir. Það er samt aðallega Henrik sem vill ekki vera einn heldur vera með stóra bróður. Held að þetta sé samt voða eðlilegt og algengt. 

Já og voðalega er þetta orðið langt blogg.......best að hætta bara núna enda þættir/myndir að byrja eftir smá. Óska öllum góðrar helgar.

2 ummæli:

  1. Sæl elskan. Já eg færi nú frekar í snjóbuxur og dúnúlpu og stæði úti en að fara inn í þetta fuglahús. Vorið er á "hold" hér líka.
    Hvernig dettur þér í hug að borða upp í rúmmi, þú lærðir það ekki heima hjá þér það er eg viss um.
    Góða helgi. Kveðja þín mamma.

    SvaraEyða
  2. Haha mamma, ég trúi því að þú myndir gera allt til að fara ekki inn í fuglahúsið :)

    Ég lærði ekki að borða upp í rúmi heima því að þar var ekkert sjónvarp ;) hahahaha
    Ég er líka fullorðin og bý til mínar eigin hefðir. hahahaha

    SvaraEyða