Parísahjólið
Laugardagur í dag. Ég fór snemma á fætur en Seydi vildi komast sem fyrst í vinnuna, þarf eitthvað að redda hinu og þessu í dag. Er vanalega ekki að vinna á laugardögum en varð að gera það í dag, bað m.a.s. vinnumanninn að mæta. Ég sit hér heima með hausverk og kvef. Er samt skárri í dag en í gær. Sinupret töflurnar eru að virka.............sem minnir mig á það að ég þarf að kaupa pakkningu í dag. Ég neyðist því til að fara í apótek á eftir. Kannski maður labbi sér einn rúnt í bæinn eða svo, áður en apótekin loka þá. Datt í hug að renna í IKEA í Dortmund en ég er engan veginn í stuði til að labba þar um svona á mig komandi. Fæ mér frekar ferskt loft þ.e. ef að prinsunum þóknast að klæða sig og fara út. Voru að byrja að kubba heyrist mér. Settu disk á fóninn og eru nú að leika sér. Sé til eftir smá stund.
Stór færsla um Ísland í bæjarblaðinu í dag. M.a. um að Ísland færir ekki klukkuna í nótt eins og aðrir 700 milljónir manna í Evrópu. Auðvitað mynd af gosinu með. Sá myndir af því í fréttum einn morguninn og hló að fréttafólkinu bera fram Eyjafjallajökull og Mýrdalsjökull.......ekki beint auðveldustu íslensku orðin. Hef bara ekkert kíkt á íslenskar fréttir nýlega svo þetta eru einu myndirnar sem ég hef sé, þ.e. hreyfðar myndir.
Eigið góða helgi, það sem eftir er. Á morgun verð ég 2 tímum á undan ykkur á Íslandi.
Sæl elskan. Já það er nú meira peningaplokkið í þessum tívolíum en gott að þið skemmtuð ykkur vel.
SvaraEyðaHér á Íslandi er allt að sporreisast útaf þessu gosi það má þakka fyrir ef enginn lendir í vandræðum. Það eru mjög flottar myndir sýndar hér meira að segja á beinni útsendingu.
Eg vildi að klukkan væri færð hér slæmt að hafa þig svona langt á undan eða þannig.
Vonandi batnar þér kvefið og eigir góða helgi. Kveðja mamma.
P.S. Sendi páskaegg á miðvikudaginn vonandi verða þau komin fyrir páska.
Já mamma, ég ætti að kíkja á fréttir á RUV eða eitthvað.
SvaraEyðaEn vertu bara fegin að þið færið ekki úrið, alger vitleysa að gera þetta. Á bara að vera sumartími allt árið, að mínu áliti sko. Svo á Ísland eiginlega að vera 1 tíma á eftir því sem nú er, samkv. lengdarbaugum. En þetta er allt svo flókið og ekki mun ég breyta neinu :)
Kvefið er enn og verst á kvöldin. Fékk mér ferskt loft í bænum í dag. Seydi m.a.s. gat dregið mömmu sína út til að borða ís. Hann henti mér út á horni niðrí bæ og ég labbaði aðeins um ein meðan að þau fóru á ísstaðinn. Ég hitti alla svo þar. Gömlu löbbuðu svo heim. Annars er hún svipuð.
Strákarnir hlakka til að fá páskaegg. Verða ánægðir með allt sem koma.
Knús
eins og staðan er núna hefði ég orðið heavy pirruð ef klukkan hefði verið færð og ég tapað klukkutíma hvað þá tveimur....má ekki alveg við því núna;) er að reyna að vinna mér inn smá frítíma á húsavíkinni um páskana, vonandi gengur það:)
SvaraEyðaEn ljótt að heyra með kvefið, alveg pirrandi þegar það tekur sér bólfestu og vill ekki fara! betra að vera bara veikur og svo búið, ótrúlegt hvað kvef nennir að endast! en vonandi ertu að hressast:)
Greinilegt að sumarið er að koma hjá ykkur, eitthvað svo mikill sumarfílingur að fara í tívolí, hefði svo sannarlega verið til í það í 21°c hita;) (mínus auðvitað magaveikina sem ég hefði þá fengið á eftir!)
Góðan bata og risa knús á þig:*
Rakel Dögg
Ég lifði klukkufærsluna af og þú hefðir ekkert fengið magaverk af því að fara með mér í tívolí.... ég er löngu hætt að fara í tækin. Fór í barna rússíbana, það var nú allt. Nema þú meinir að þú hefðir fengið í magann af brenndum möndlum og súkkulaðihúðuðum jarðarberjum ;)
SvaraEyðaEr ein heima núna. Slökkti á sjónvarpi og opnaði út. Aðeins að hlusta á fuglana. Kvefið er enn en ég lagði mig í dag, það var fínt.
Knús
tívolí og kvef eiga ábyggilega litla samleið og ég dáist því að þér að drífa þig þrátt fyrir allt - vona að kvefið sé búið að gefa sig, bestu kveðjur...
SvaraEyðaÉg var ekkert orðin neitt slæm á miðvikudaginn Stella. Versnaði á fimmtudaginn og sleppti öllum hristitækjum enda með 2 lítil börn með mér.
SvaraEyðaEr orðin góð, ekki alveg hress en góð.