fimmtudagur, 18. mars 2010
Vorið fundið
Ó já, það kom á fullum krafti í dag. Það var þokkalega hlýtt í gær, fór alveg í 14° en í dag á víst að vera enn hlýrra enda skín sólin glatt. Ég er heima með Julian en honum var illt í maganum í gær og hálf slappur í morgun. Seydi er drullu slappur og ég sjálf titraði svo í gærkvöld að ég hélt að ég væri að syngja mitt síðasta......sofnaði loksins með hlýtt teppi og sæng yfir mér. Var því smá eftir mig í morgun, með hausverk og öll stíf. En eftir að hafa þvegið gluggana götumegin, ryksugað og skipt um gardínur líður mér betur. Tók bara góðan tíma í þetta og fór mér hægt. Ætti að vera orðin alveg hress seinni partinn ;)
Hef því miður enga mynd af vorinu til að setja hér inn. Kannski kemur hún seinna í dag. (Komin mynd). Langar mest að labba út í góða veðrið. Sé til hvernig Julian verður. Hann er enn á náttfötunum, bara að dunda.
Í gær hitti ég syni og dóttur Frau Philipps, sem bjó tveimur hæðum fyrir neðan mig og mig grunaði strax að nú væri þessi elskulega kona dáin. Það var svo, hún dó víst á síðasta föstudag og enginn hafði sagt mér neitt. Ég hafði heldur ekki hitt neinn úr stigaganginum til að spjalla. Jarðarförin er á morgun og ætla ég að votta mína samúð og mæta þó að ég sé nú ekkert voðalega spennt fyrir einhverju sem kemur að trú, hvað þá kaþólskri. Ég læt mig samt hafa það, bara fyrir Frau Philipps heitna. Bärbel ætla að passa strákana og ná í Julian í gæsluna.
Annars er ekkert mikið að frétta. Við erum að spá í Danmerkurferð um páskana. Heimsækja Elfu Helga. Ef Seydi vill eða kemst ekki með, fer ég bara ein með strákana. Þetta er um 6 tíma ferð. Ég ætti að redda því.
Vorkveðja
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Sæl elskan.
SvaraEyðaGott að vorið er komið vonandi til að vera, vildi að svo væri hér en það er vist ekki því að heilsa.
Eg vona að þið verðið öll hressari á morgun.
Blessuð sé minning Frau Philipps.
Bestu kveðjur þin mamma.