sunnudagur, 25. apríl 2010

Hlýtt veður

 Við ráðhúsið

Í dag er hlýtt en síðustu daga hefur verið frekar kalt, sérstaklega á morgnana. Ég er komin með svo nóg af þessum kulda, nenni bara ekki að klæða mig í þykka jakka og jafnvel hanska.....já ég tók með mér hanska á fótboltaæfingu hjá Henrik á fimmtudaginn. Það kom sér vel enda er oft ansi hvasst þar þegar vindurinn blæs. Ég vona svo innilega að þessum næturkulda sé lokið núna, ég vil fara að planta blómum í pottana á svölunum, labba um í sumarjakka, jafnvel á bol eins og í dag. Ég er ekkert að biðja um hásumar, bara svona 20°-25° hita. Það er alveg nóg svona á vorin.

Ég hef samt ekkert að segja, lífið gengur sinn vanagang, ég vinn til rúmlega 13, næ í Henrik, dúlla mér með honum og næ svo í Julian klukkan 16. Hann treystir sér ekki til að labba heim þó að margir jafnaldrar hans geri það. Ég ýti ekki á hann að labba einn, hann fær alveg að ráða þessu sjálfur. Stundum er hann með voða lítið hjarta og undanfarið er hann eins og skugginn minn......víkur varla frá mér, ég má varla fara upp á þvottaloft, hann fer með niður ef ég þarf að ná í eitthvað í bílinn (Henrik bíður uppi), hann kemur og kúrir hjá mér á hverju kvöldi og virðist eitthvað hræddur um að ég láti mig hverfa! Ég veit ekki alveg afhverju hann er svona, ég hef aldrei gleymt honum neins staðar.........En ef hann vill þetta er það í góðu lagi, mér finnst voða gott að knúsa hann og kremja. Henrik má ég hins vegar ekki kyssa þessa dagana.........

Eftir viku verður kominn maí! Hrikalega sem tíminn líður hratt......ég verð orðin 100 ára áður en ég veit af!  Veit reyndar ekki hvernig ég lít út þá...... maður er nú orðinn nógu krumpaður og grár. Nú fara sundlaugar að opna og ef veður er gott fer maður að spóka sig á bikiní.......já, ég er lítið fyrir sundboli,  verð að vera brún á maganum sko :) Ég gleymi því aldrei hvernig ég leit út þegar ég kom frá USA, hnöttótt með sundbolafar...... aldrei aftur takk.  Er ansi hrædd um að næstu vikur verði ég að minnka skammtana á disknum, hætta að borða nammi á kvöldin og hreyfa mig meira. Mig langar, svona innst inni, að vita hvernig það er að vera grönn. Bara prófa, hef aldrei verið það........ Langar til að hafa granna leggi, lítinn sætan rass osfrv. Maður má nú láta sig dreyma...............

Eigið góða viku framundan, síðustu vikuna í apríl.

laugardagur, 17. apríl 2010

Kaos

Ekkert kaos hjá mér EN þar sem flugsamgöngur liggja niðri er mikið kaos á flugvöllum hér og á öðrum stöðum í Evrópu. Eldgosið, já og aðallega þetta öskuský, er aðalfréttin hér, bæði í blöðum, í útvarpi og sjónvarpi. Mörg þúsund manns sitja fastir á flugvöllum, lestir fyllast og bílaleigur og taxar gera viðskipti ársins núna. Heyrði t.d. af fólki sem millilenti í Frankfurt frá USA og komst ekki áfram t.d. til Asíu.......hefur enga vegabréfaáritun fyrir Þýskalands og verður því að sofa á flugvellinum, þar var komið upp beddum og átti að redda þessu blessaða fólki m.a. hreinum nærfötum og svona. Spyr mig samt núna.......afhverju hreinum nærfötum?? Mátti fólkið ekki fá töskurnar sínar?? Ekkert um það í fréttunum. En hvað um það, Bild blaðið er heimsmeistari í að gera úlfalda úr mýflugu, RISA fyrirsögn á blaðinu í dag, sá það hjá kjötkaupmanninum, "Das Aschemonster" eða öskuskrýmslið og mynd af þessum gígum sem mynduðust á jöklinum!!! Ekkert minnst á það (á netinu allavega) að þetta sé mynd af jöklinum. Þeir mega samt eiga það að þeir sendu fréttamann til Íslands en hann segir að á Íslandi gangi lífið sinn vanagang, fólk sé í búðum, að taka bensín osfrv. Allt með hinni stökustu ró........ Annað finnst mér ég svo lesa í ísl. fjölmiðlum um öskufall, skemmd tún ofl. Bild er auðvitað þekkt fyrir æsifréttamennsku en er samt mest lesna blaðið hér, held ég....... Fólk elskar dramað.


Nóg um þetta eldgos. Hér er heiður himinn og spáð 18° hita í dag, fallegur vordagur framundan. Ég ætla að skreppa á verkstæðið á eftir, klára nokkra reikninga og leyfa strákunum að hjóla á meðan. Henrik þarf að æfa sig meira að hjóla án hjálparadekkja. Kannski við skreppum í bæinn í Dorsten, alltaf gaman að labba þar um.  Á morgun ætla ég með strákana til Düsseldorf að hitta Bjarnhildi og Heiðar en þau voru í Köln og eru núna í DUS.  Bjarnhildur er með góðgæti handa mér......bæði nammi og Season All. Jibbí, loksins fæ ég uppáhalds kryddið mitt. Best að muna að lokið er eitthvað öðruvísi, passa mig vel á því :) Það verður gott og gaman að spjalla á íslensku.......fæ alltaf svör á þýsku til baka frá sonum mínum! Ég held að ég verði að fara að hafa íslenskutíma handa þeim, hafa heimaskóla, nóg á ég af bókum. Líka svo þeir læri að lesa á íslensku og þekkja framburðinn á orðunum. Drífi í því sem fyrst.

Endilega kíkja á síður strákanna á barnalandi. Ég var í hópi þeirra sem fengu nýja útlitið, eða mátti breyta og ég gerði það. Er að kynnast þessu svo að það er kannski ekki allt alveg tilbúið en mér líst vel á breytingarnar. Smá vormynd að lokum.

 Magnolia í þarnæstu götu

fimmtudagur, 8. apríl 2010

Veðursveiflur

Þær fara ekkert of vel í mig þessar veðursveiflur, í gær var t.d. 23° hiti og sól, í dag var rigning og 10° hiti, eða ætti ég frekar að segja "kuldi".........brrr mér var kalt í dag. Er svo tilbúin í vorblíðu, leið svo vel í Gysenberg garðinum í Herne í gær. Liggjandi á teppi með snakk og vatn, strákarnir að leika á leiksvæðinu eða við sparkandi í bolta. Tók þessa mynd þar.
 Magnolia tré

Leiksvæðið í garðinum er mjög skemmtilegt og nóg af opnu svæði líka til að sparka í bolta eða leika með frisbee. Einnig eru þarna leiktæki og sundlaugargarður. Vantar alveg svona garð í Recklinghausen.

 Hluti af leiksvæðinu.

Eitthvað ætlar vorið að vera áfram svona "kalt". Við ætluðum kannski að fara í helgarferð eitthvert en ég hef enga löngun til að labba um einhvers staðar í rigningu. Vil þá frekar vera heima.......get þá labbað í bæinn meðan að það er þurrt, eða keyrt í einhverjar verslunarmiðstöð eða farið á innileikvöll. Sjáum til.

Ekkert bólar á páskaeggjunum......ætli póstburðarmaðurinn/konan hafi ekki bara borðað þau! Kannski maður fari að spyrjast um þau. Var þetta böggull mamma? Þá er sko ekki hægt að leita eftir númeri. Ég skil stundum ekki hvernig pakkar eða bréf "týnast". Birtast svo bara allt í einu eins og ekkert hefði í skorist. Hey, ætli einhver nágranni minn hafi tekið á móti pakkanum og étið eggin..........hahaha nei ætli það. 

Þó að það sé kannski ljótt að segja það þá hlakka ég til hversagsleikans sem byrjar á mánudaginn. Engin nöldrandi börn um að þeim leiðist, komast í vinnuna, fara EIN í matvörubúð, regla á hlutunum og vonandi háttatími fyrir tíu! Helst fyrir níu sko........Mínir prinsar munu aldrei verða eins og mörg þýsk börn, fara að sofa milli sjö og átta. Ekki séns, þeir þurfa minni svefn en "venjuleg" börn og meðan að þeir vakna á morgnana til að fara í skóla/leikskóla þýðir lítið að breyta þessu. Sjáum til hvernig það verður að vekja Henrik svefnpurrku í haust..........hann er aðeins úldnari á morgnana heldur en Julian. Sefur þó lengur.

Vá hvað sólarlagið er fallegt. Logn, skýjað og bleik ský. Alger draumur í dós. Það verður sem sagt kalt í nótt.

Knús í hús





föstudagur, 2. apríl 2010

Halló apríl

Mér datt ekkert aprílgabb í hug svo ég að sleppti því að vera nokkuð að plata mann og annan. Ekki einu sinni á facebook. Margir reyndu að gabba vini sína með því að segjast vera trúlofaðir, nú eða einhleypir :) Ég plataði ekki einu sinni strákana, né Seydi. Rosalega léleg í þessu.

Fór loksins út að labba í dag þar sem Seydi var heima. Klæddi mig í íþróttaföt og skó og arkaði upp næstu götu og inn í skóg á útivistarsvæði. Mætti fullt af fólki, ýmist labbandi, skokkandi eða með hunda. Veðrið var fínt til göngu, um 10° og sól. Úr þessu varð næstum því klukkutíma gangur og ég hef ekki fundið fyrir neinum strengjum enn.....Þyrfti að komast oftar í göngutúra eða í hjólatúra. Mér finnst eiginlega skemmtilegra að hjóla. Geri það næst.
 Í lúterska kirkjugarðinum ofar í götunni

Á morgun fáum við heimsókn. Frændi Seydi kemur með familíuna, konu og 2 börn. Þá verður fjör hjá okkur. Ég veit ekki alveg hvenær þau koma en þangað til ætla ég að gera rækjutertu, skúra og fara með Henrik í klippingu. Hann vill endilega fara í klippingu, finnst hann kominn með smá sítt að aftan.......hann veit kannski að mér finnst sítt að aftan alger horror. Er svo fegin að Florian vinur þeirra lét klippa þessa lufsu af sér um daginn.

Æi, hef ekkert að segja. Nema bara gleðilega páska og ekki borða yfir ykkur. Við vonum að páskaeggin komi á morgun. Annars verður þýskt páskanammi bara að duga, nóg er nú til af því. Reyndar var lítið eftir í Lidl í gær en ég keypti samt nokkra poka.

Takk fyrir innlitið