Við ráðhúsið
Í dag er hlýtt en síðustu daga hefur verið frekar kalt, sérstaklega á morgnana. Ég er komin með svo nóg af þessum kulda, nenni bara ekki að klæða mig í þykka jakka og jafnvel hanska.....já ég tók með mér hanska á fótboltaæfingu hjá Henrik á fimmtudaginn. Það kom sér vel enda er oft ansi hvasst þar þegar vindurinn blæs. Ég vona svo innilega að þessum næturkulda sé lokið núna, ég vil fara að planta blómum í pottana á svölunum, labba um í sumarjakka, jafnvel á bol eins og í dag. Ég er ekkert að biðja um hásumar, bara svona 20°-25° hita. Það er alveg nóg svona á vorin.
Ég hef samt ekkert að segja, lífið gengur sinn vanagang, ég vinn til rúmlega 13, næ í Henrik, dúlla mér með honum og næ svo í Julian klukkan 16. Hann treystir sér ekki til að labba heim þó að margir jafnaldrar hans geri það. Ég ýti ekki á hann að labba einn, hann fær alveg að ráða þessu sjálfur. Stundum er hann með voða lítið hjarta og undanfarið er hann eins og skugginn minn......víkur varla frá mér, ég má varla fara upp á þvottaloft, hann fer með niður ef ég þarf að ná í eitthvað í bílinn (Henrik bíður uppi), hann kemur og kúrir hjá mér á hverju kvöldi og virðist eitthvað hræddur um að ég láti mig hverfa! Ég veit ekki alveg afhverju hann er svona, ég hef aldrei gleymt honum neins staðar.........En ef hann vill þetta er það í góðu lagi, mér finnst voða gott að knúsa hann og kremja. Henrik má ég hins vegar ekki kyssa þessa dagana.........
Eftir viku verður kominn maí! Hrikalega sem tíminn líður hratt......ég verð orðin 100 ára áður en ég veit af! Veit reyndar ekki hvernig ég lít út þá...... maður er nú orðinn nógu krumpaður og grár. Nú fara sundlaugar að opna og ef veður er gott fer maður að spóka sig á bikiní.......já, ég er lítið fyrir sundboli, verð að vera brún á maganum sko :) Ég gleymi því aldrei hvernig ég leit út þegar ég kom frá USA, hnöttótt með sundbolafar...... aldrei aftur takk. Er ansi hrædd um að næstu vikur verði ég að minnka skammtana á disknum, hætta að borða nammi á kvöldin og hreyfa mig meira. Mig langar, svona innst inni, að vita hvernig það er að vera grönn. Bara prófa, hef aldrei verið það........ Langar til að hafa granna leggi, lítinn sætan rass osfrv. Maður má nú láta sig dreyma...............
Eigið góða viku framundan, síðustu vikuna í apríl.
Sæl elskan.
SvaraEyðaJá eg vona svo sannarlega að vorið fari að koma, hér snjóar ennþá og það dugar ekkert nema snjóbuxurnar og dúnúlpan ef farið er út úr húsi.
Eigðu góða viku sjálf framundann og þið öll.
Bestu kveðjur þín mamma
ég get nú bara sett "ditto" á þennan pistil og kallað hann minn eiginn ;-)
SvaraEyðabestu kveðjur
Góðan daginn, takk fyrir bloggið.
SvaraEyðaAllt gott að frétta hér, fyrirtaksgluggaveður, afmæli hjá ömmu framundan seinnipartinn, og svo hversdagsvitleysan næstu 3 vikur og svo bara Heja Norge. Allt að gerast í eurodeild heimilisins. Bestu kveðjur á alla hjá þér, U.