laugardagur, 17. apríl 2010

Kaos

Ekkert kaos hjá mér EN þar sem flugsamgöngur liggja niðri er mikið kaos á flugvöllum hér og á öðrum stöðum í Evrópu. Eldgosið, já og aðallega þetta öskuský, er aðalfréttin hér, bæði í blöðum, í útvarpi og sjónvarpi. Mörg þúsund manns sitja fastir á flugvöllum, lestir fyllast og bílaleigur og taxar gera viðskipti ársins núna. Heyrði t.d. af fólki sem millilenti í Frankfurt frá USA og komst ekki áfram t.d. til Asíu.......hefur enga vegabréfaáritun fyrir Þýskalands og verður því að sofa á flugvellinum, þar var komið upp beddum og átti að redda þessu blessaða fólki m.a. hreinum nærfötum og svona. Spyr mig samt núna.......afhverju hreinum nærfötum?? Mátti fólkið ekki fá töskurnar sínar?? Ekkert um það í fréttunum. En hvað um það, Bild blaðið er heimsmeistari í að gera úlfalda úr mýflugu, RISA fyrirsögn á blaðinu í dag, sá það hjá kjötkaupmanninum, "Das Aschemonster" eða öskuskrýmslið og mynd af þessum gígum sem mynduðust á jöklinum!!! Ekkert minnst á það (á netinu allavega) að þetta sé mynd af jöklinum. Þeir mega samt eiga það að þeir sendu fréttamann til Íslands en hann segir að á Íslandi gangi lífið sinn vanagang, fólk sé í búðum, að taka bensín osfrv. Allt með hinni stökustu ró........ Annað finnst mér ég svo lesa í ísl. fjölmiðlum um öskufall, skemmd tún ofl. Bild er auðvitað þekkt fyrir æsifréttamennsku en er samt mest lesna blaðið hér, held ég....... Fólk elskar dramað.


Nóg um þetta eldgos. Hér er heiður himinn og spáð 18° hita í dag, fallegur vordagur framundan. Ég ætla að skreppa á verkstæðið á eftir, klára nokkra reikninga og leyfa strákunum að hjóla á meðan. Henrik þarf að æfa sig meira að hjóla án hjálparadekkja. Kannski við skreppum í bæinn í Dorsten, alltaf gaman að labba þar um.  Á morgun ætla ég með strákana til Düsseldorf að hitta Bjarnhildi og Heiðar en þau voru í Köln og eru núna í DUS.  Bjarnhildur er með góðgæti handa mér......bæði nammi og Season All. Jibbí, loksins fæ ég uppáhalds kryddið mitt. Best að muna að lokið er eitthvað öðruvísi, passa mig vel á því :) Það verður gott og gaman að spjalla á íslensku.......fæ alltaf svör á þýsku til baka frá sonum mínum! Ég held að ég verði að fara að hafa íslenskutíma handa þeim, hafa heimaskóla, nóg á ég af bókum. Líka svo þeir læri að lesa á íslensku og þekkja framburðinn á orðunum. Drífi í því sem fyrst.

Endilega kíkja á síður strákanna á barnalandi. Ég var í hópi þeirra sem fengu nýja útlitið, eða mátti breyta og ég gerði það. Er að kynnast þessu svo að það er kannski ekki allt alveg tilbúið en mér líst vel á breytingarnar. Smá vormynd að lokum.

 Magnolia í þarnæstu götu

2 ummæli:

  1. Sæl elskan. Það er nú ekki skrítið að evrópubúar séu ekki ánægðir með sendinguna frá Íslandi, þetta eru nú ekki nema nokkrir bæir sem verða fyrir tjóni ennþá það er nú vel sloppið vonandi fer þessu að ljúka.
    Eg er nú ekki ánægð ef strákarnir eru hættir að tala Íslensku, það verður nú að bæta úr því fyrir sumarið (ef við komumst þá út fyrir ösku).
    Vonandi eigið þið Bjarnhildur gott spjall.
    Bestu kveðjur í sumarið úr vetrinum á Íslandi.
    Þín mamma.

    SvaraEyða
  2. Já mamma, við skulum nú vona að þetta ský verði farið (ef það var yfir höfuð hérna) í júní!!!
    Við áttum fínan dag í DUS, Julian var reyndar ekki nógu "skemmtilegur"...kvartaði útaf öllu. Voða leiðinlegt. Veðrið var hins vegar geggjað og verður áfram, á að kólna smá.
    Knús, Inga

    SvaraEyða