Magnolia tré
Leiksvæðið í garðinum er mjög skemmtilegt og nóg af opnu svæði líka til að sparka í bolta eða leika með frisbee. Einnig eru þarna leiktæki og sundlaugargarður. Vantar alveg svona garð í Recklinghausen.
Hluti af leiksvæðinu.
Eitthvað ætlar vorið að vera áfram svona "kalt". Við ætluðum kannski að fara í helgarferð eitthvert en ég hef enga löngun til að labba um einhvers staðar í rigningu. Vil þá frekar vera heima.......get þá labbað í bæinn meðan að það er þurrt, eða keyrt í einhverjar verslunarmiðstöð eða farið á innileikvöll. Sjáum til.
Ekkert bólar á páskaeggjunum......ætli póstburðarmaðurinn/konan hafi ekki bara borðað þau! Kannski maður fari að spyrjast um þau. Var þetta böggull mamma? Þá er sko ekki hægt að leita eftir númeri. Ég skil stundum ekki hvernig pakkar eða bréf "týnast". Birtast svo bara allt í einu eins og ekkert hefði í skorist. Hey, ætli einhver nágranni minn hafi tekið á móti pakkanum og étið eggin..........hahaha nei ætli það.
Þó að það sé kannski ljótt að segja það þá hlakka ég til hversagsleikans sem byrjar á mánudaginn. Engin nöldrandi börn um að þeim leiðist, komast í vinnuna, fara EIN í matvörubúð, regla á hlutunum og vonandi háttatími fyrir tíu! Helst fyrir níu sko........Mínir prinsar munu aldrei verða eins og mörg þýsk börn, fara að sofa milli sjö og átta. Ekki séns, þeir þurfa minni svefn en "venjuleg" börn og meðan að þeir vakna á morgnana til að fara í skóla/leikskóla þýðir lítið að breyta þessu. Sjáum til hvernig það verður að vekja Henrik svefnpurrku í haust..........hann er aðeins úldnari á morgnana heldur en Julian. Sefur þó lengur.
Vá hvað sólarlagið er fallegt. Logn, skýjað og bleik ský. Alger draumur í dós. Það verður sem sagt kalt í nótt.
Knús í hús
Sæl elskan.
SvaraEyðaLeitt með páskaeggin, þetta var bara smápakki. Hér er vorið held eg að koma.
Fer í Sultir á morgun með stelpunum og verð framm á sunnudag.
Vona að þið eigið góða helgi hvort sem þið farið eða verið.
Kveðja mamma
Finnurðu á þér þegar ég blogg eða hvað??? Ekki ertu nú á facebook en ég set þetta inn þar líka. Ótrúlegt.
SvaraEyðaGóða skemmtun með skvísunum. Eggin hljóta að skila sér.
Knús
ég hef misst af þessu bloggi - því ég datt úr blogggírnum mínum og þá fylgist ég ekki með neinu...
SvaraEyðaveðrið er það sama hér hjá mér, rokkar frá sumarhitum í virkilega kalda daga en það er samt að nálgast þokkalegt góðveðursjafnvægi núna.
ég skil þig svo að þrá regluna sem fylgir skóladögunum - ég finn mest fyrir skólafríunum þegar allt hverfið mætir hingað inn á lóð og mitt umhverfi verður eins og leikvöllur með látum og oft leiðindum ;-)
bestu kveðjur
ég er svo sammála þessu með veðursveiflurnar, ekkert meira svekkjandi en að finna að vorið/sumarið sé komið en svo allt í einu kemur kuldinn aftur.....en sumarið er að koma núna held ég:)
SvaraEyðakv.
Rakel