miðvikudagur, 12. maí 2010

Ekkert að frétta?!........

Lítið að frétta, veður er kalt svo ekki sé meira sagt........8° kuldi og skýjað í dag! Þetta fer í mínar fínustu, veðrið hefur svo greinilega áhrif á andlega heilsu, þó ég reyni nú að láta það ekki hafa of mikil áhrif. Strákarnir eru líka hálf pirraðir. Julian er með exem (ekkert veðrinu að kenna sjálfsagt) og Henrik með bronkítis (gæti verið veðursveiflum að kenna). Ég las á netinu að exem getur aukist við stress........kannski að þetta skóla/gæslustress hafi bara haft þessi áhrif, eða aukið þau allavega. Alveg spurning! Það gengur vel eins og er, Kevin er samt enn ekki alveg hættur að vera leiðinlegur. Julian sagðist hafa spurt afhverju hann væri svona og Kevin svaraði að ein ástæðan væri að hann má ekki heimsækja hann (Julian sko)! Ég meina "halló", hvern langar til að leika við einhvern sem honum finnst ekkert skemmtilegur.........? Julian vill frekar eiga fáa góða vini en að vera vinamargur og vinsæll. Hann er samt vel liðinn af hinum krökkunum og það hefur aldrei neitt komið upp á í sambandi við að hann væri að ergja aðra krakka. Hann segist eiga nýjan vin úr gæslunni, hann sé í 1.bekk og ætli Julian sé ekki svona smá fyrirmynd. Hann virðist vera mjög næmur á það hvernig börn eru, forðast helst "villingana". Reyndar erfitt þegar sumir hanga í honum og fara allt sem hann fer, eins og þessi Kevin. Nóg um hann.....

Julian gerði  mæðradagsgjöf handa mér í gæslunni. Límdi servíettur á flís (ekki efnið samt) ofl. Sjá mynd:

Mæðradagur var annars svona la la.....ég ætla að hætta að óska mér þess að synir mínir séu extra þægir og góðir á svona dögum! Hætta að gera mér einhverjar grillur um það, allavega í bili. Kannski ég fái einhvern tímann morgunmatinn í rúmið? Myndi alveg trúa Julian til þess að gera svoleiðis. Henrik finnst ég nú svo leiðinleg, ég segi sko stundum "nei" við hann! Þá er ég sko extra leiðinleg og geri ALDREI neitt fyrir hann og kaupi ALDREI neitt handa honum........ Voðalega kannast ég við þetta úr minni æsku, ég fékk aldrei neitt ;)  Hann er samt svo indæll stundum. Ég fór í bað um daginn og hann strauk á mér appelsínuhúðina og sagði "oh, mamma,þú ert með svo mjúka húð" :) Annan daginn spurði ég strákana hvort þeir væru nú ekki búnir að fá nóg af mömmu gömlu, þann daginn sko (það var kvöld). Þá segir Henrik, "Nei, þú ert falleg og við elskum þig"........svo mikill sjarmör þessi elska.

Við ætlum að heimsækja ættingja Seydi um helgina. Frídagur á morgun og skólafrí á föstudaginn. Vona að það rigni ekki mikið og hitastigið mætti hækka líka.

Smá vor í lokin.........


Góða helgi og takk fyrir heimsóknina

7 ummæli:

  1. Sæl elskan.
    Ekki tala um kulda eg fæ bara hroll það er svo pirrandi þetta veðurfar.
    Gott að allt gengur vel hjá ykkur.
    Góða ferð um helgina.
    Kveðja mamma.

    SvaraEyða
  2. ...veðrið er svipað hér. Leiðinda kuldi og því þarf maður enn meiri gleði og hamingju og best að búa hana til sjálfur bara :-)
    Henrik er svona líka þver....

    hilsen....
    gaman að lesa svona yfir bloggið sem ég les aldrei... eða hvað :-)

    SvaraEyða
  3. æji hvað Henrik getur verið mikill sjarmör..."þú ert falleg og við elskum þig":).... en ég er alveg sammála því að það eru sennilega meiri líkur á að herramaður nr.1 færi elsku mömmu sinni morgunverð í rúmið;) Það kemur að því að þeir verða extra góðir á svona dögum, pottþétt:)

    Kveðja,
    Rakel

    SvaraEyða
  4. Góða kvöldið mín kæra systir. Gaman að lesa bloggið eins og alltaf, Henrik verður alltaf mesta krútt í heimi, Julian greinilega flinkur í höndunum og er því listamaðurinn í fjölskyldunni.

    Nú er bara alveg að koma euro og það spáir líka þessari fínu austanátt á mánudaginn þannig að askan fer beint yfir Keflavíkurflugvöll. Júhú klöppum fyrir því...

    Hver veit nema við verðum í Þýskalandi að halda euro á næsta ári??

    Knús og klemma á alla hjá þér. U.

    SvaraEyða
  5. Gleymdi einu, sérstakt afmælisknús á stærsta karlinn á heimilinu, U.

    SvaraEyða
  6. Ég var nú bara alveg við það að fara að blogga aftur þegar þið kvittið svona rosalega systur! Danke danke.

    ÆI Unnur, við vonum nú að það verði flogið. Ekkert að marka svona langtíma spá, er það nokkuð?

    Ég efast um að Euro verði hér að ári, annars er ég svo utangátta, hef ekkert kíkt á nema brot af lögunum.......

    Ég blogga aftur fljótlega ;)

    SvaraEyða
  7. Sæl elskan. Er bara ekkert að frétta í eina og hálfa viku það er gott, engar fréttir eru góðar fréttir.
    Það er eins hér.
    Bestu kveðjur, þín mamma.

    SvaraEyða