þriðjudagur, 25. maí 2010

Engar fréttir, góðar fréttir...

...eða bara bloggleti, erfitt að finna rétta augnablikið til að blogga, ekkert merkilegt að segja. Hvar á ég að byrja?

Síðustu daga hefur verið þvílík blíða, alveg um 25° hiti og sól, alveg fínasta sumarveður. En það hefur líka sínar dimmu hliðar.........ég neyðist til að fækka fötum, sína leggina osfrv. Þýðir sem sagt að ég tók fram MEGA plokkarann og skellti á leggina, tók smá tíma því að blessuð hárin voru orðin ansi löng enda er ég nýsloppin úr trénu og náskyld öpunum frændum vorum. Það sem ég öfundaði bekkjarsystur og vinkonur sem voru með engin eða ljós hár á leggjunum, já ég viðurkenni það alveg. Það er bölvun að vera svona eins og ég er og hefur heft mér að mörgu leyti, förum samt ekkert nánar út í það! USA dvölin opnaði reyndar fyrir mér nýjar víddir, þar eru ÖLL hár af löppum rökuð af, reglulega. Hár á löppum, já og bara alls staðar, þykir sóðalegt og óhugsandi. Í dag er þetta auðvitað komið hingað og brasilískt og ég veit ekki hvað, líka. Og NEI, ég hef ekki farið í þannig lagað og ætla mér það ekki, nei nei. En jæja, ég skellti á mig brúnkukremi 3 daga í röð til að fá smá lit, sé svo í gær að mér hefur ekki alveg tekist að gera þetta jafnt á leggjunum.....æi skítt með það, hef séð myndir af stjörnunum með misheppnað "tan".

Ætli ég finni einhverja mynd til að setja inn......hmmmmmmmm. Smá vor kannski.
 Julian hjólar í vorinu
Sumarblómin :)

Já, sumarblómin eru komin á svalirnar. Ég og Bärbel hentumst í búð og ég fjárfesti í þessum fínu blómum og við settum þau í pottana. Vona að þau deyi ekki alveg strax.........

Akkúrat NÚNA situr Unnur systir í Osló og bíður spennt eftir fyrra úrslitakvöldi í Eurovision. Fékk sms frá henni áðan, hún er víst í trans. Ég er ekki hissa, þetta er draumur að rætast hjá henni. Alltaf gaman þegar draumar rætast. Ég lofa að hringja fyrir Ísland í kvöld en sem betur fer sýnir Þýskaland fyrra kvöldið en hitt kvöldið er ekki sýnt og við getum því ekki hringt. Bara 40 mín. til stefnu, ég fer að setja mig í stellingar, koma strákunum í ró, þeir eru reyndar voða rólegir eins og er. Kannski opna einn öllara og fá mér snakk. 

Knús og kveðjur, takk fyrir innlitið



9 ummæli:

  1. Sæl elskan.
    Takk fyrir fréttirnar. Eg öfunda þig af veðurblíðunni, hér er svooooooooooooo kalt að það er hryllingur og gerði smá él áðan sá eg útundan mér (var að horfa á júró).
    Gott að Unnur mín gat látið drauminn rætast, vonandi er gaman hjá þeim stöllum í Norge.

    Bestu kveðjur í blíðuna frá mömmu

    SvaraEyða
  2. Skil þig svo vel elsku mamma, svona kuldi í maí er ömurlegur. Mér finnst nú nógu kalt hér í dag, um 13° og skýjað, rigning annað slagið. Spáð hlýnandi.

    Sorry að ég var ekki við á msn á mánudaginn en við fórum á flóamarkaðinn. Sjáumst bara aftur síðar.

    Knús

    SvaraEyða
  3. ég er með lausn við hárunum, bara alltaf að raka leggina þegar þú ferð í sturtu, tekur 2 mín. því þá verða hárin aldrei löng...því ég geri ráð fyrir sturtu daglega;)
    Hér er einmitt líka þvílík sumarblíða, hátt í 20 stig og yndislegt. Henti mér á Esjuna bæði á mánudag og í gær vegna veðurs...og svo er maður að fara norður í snjókomu!! ómæ. Við Kristey ætlum að halda upp á júró saman þetta árið í Steinagerðinu, hefði nú verið nær að hún kæmi hingað í sumarið, úff.
    Góða skemmtun yfir júró á morgun, ég held að Tyrkland verði framarlega ef þeir ekki bara vinna, ég er algjörlega að fíla þá líka einsog þú:)
    knús og kossar frá mér til þín:*

    SvaraEyða
  4. ég gef þér bara sama ráð og Rakel, bara sápa sig vel og raka daglega - ekki það að ég sýni nokkurn tímann mína hárlausu leggi hvort eð er en einhvern veginn er það bara betri tilfinning að renna buxunum upp leggina þegar ekki eru hárin að tefja ;-)

    yndislegt að heyra af Unni í Noregi, snilldin ein!

    ég hef ekkert ráðist á brúnkukremin enn sem komið er, slæst við sebramunstrið þegar sundlaugarnar opna eftir helgina.

    bestu kveðjur frá sléttunum miklu (25 stiga hiti hér)

    SvaraEyða
  5. Hahaha, þið þarna "hárlausu" ætlið að gefa mér "apanum" ráð um háreyðingu, hahaha. OK, takk samt.
    Tekur nú aðeins meira en 2 mín að raka mína fótleggi, ekki bara neðri sko ;) Svo eru þeir stórir líka.........ég mæli með "epilierer" eða mega plokkara á leggi. Best að skella honum á núna, gott veður í dag :)

    Góða skemmtun í kuldanum fyrir norðan Rakel.

    Áfram Tyrkland.......

    SvaraEyða
  6. heheh, ég var kannski með ljós hár á leggjunum hér í denn - en þá var tíðin önnur!! eftir að hafa byrjað að raka að fyrirskipun "hóst"mömmunnar hér þá fóru hárin að verða grófari og í síðar tíð dekkri í ofaná lag - svo nú eru bara keyptir ofurpakkar af einnota rakvélum í Aldi og rakað daglega!

    SvaraEyða
  7. hahaha, "host" mamma mín sendi mig nú fyrst að kaupa b-haldara.....ég gæti nú ekki farið haldaralaus í skólann! Ég hafði þangað til bara notað b-h í íþróttum.

    Ég á þessu fínu Gilette Venus, hún er best.

    SvaraEyða
  8. Hæ. Ég ætla ekki að kvitta um leggjahár.

    Í íslensku er ekki til orð yfir þá upplifun sem ég varð fyrir í Noregi, óviðjafnanlega ólýsanlegt er vægt til orða tekið. Vil bara minna á kvittið mitt hér á blogginu frá 19. maí... Já athugið það gott fólk.

    Knús á alla, U.

    SvaraEyða
  9. Nei Unnur, enda ert þú ein af þessum "hárlausu" sem kallast, hehe.

    Ég get vel trúað því að þessi ferð sé ólýsanleg fyrir okkur hin. Takk fyrir póstkortið, sem kom á laugardaginn.

    Sjáumst í maí á næsta ári ;)

    SvaraEyða