Náttúran hefur samt tekið vel við sér og allt orðið vel grænt, já og bleikt, rautt,hvítt osfrv. Alltaf jafn fallegt. Verst hvað trén eru fljót að fara úr blóma. Myndina fyrir neðan tók ég þegar ég sat föst í teppu á leið til Oer-Erkenschwick að keyra Henrik í afmæli. Ein lokuð gata leiddi til þess að allir þurftu sömu leið og ég sat hálf föst í korter.
Repjuakur
Næsta mynd er tekin í næstu götu á leið í almenningsgarðinn. Ef vel er að gáð má sjá bæði Henrik og Seydi :)
Kirsuberjatré (koma samt engin kirsuber)
Löbbuðum á hátíðina í almenningsgarðinum á 1.maí eins og 100.000 aðrir. Veðrið var fínt, miklu betra en spáð var. Vorum samt ekkert lengi, synir mínir eru lítið fyrir mikinn mannfjölda og mikið labb.......Svo fannst þeim hávaði í músíkinni. Við keyptum því eplatertustykki og fórum með heim, ég hellti upp á kaffi og við höfðum það bara næs þangað til að við skruppum í grillveislu til kunningja Seydi. Hann grillaði m.a. heila geit. Ég sat beint við bakkann með geitinni og efri kjamminn blasti við mér en ég kippti mér nú ekkert upp við það enda alin upp við sviðahausa og -lappir ;) Smakkaði smá af kjötinu, ekki í 1.skipti samt, en mér finnst kjötið ekkert spes. Fékk mér frekar kjúllavængi. Eftir grillveisluna keyrði ég Seydi í teiti til fótboltafélaganna og Bärbel vinkona kom yfir og við fengum okkur nokkra drykki, spjölluðum og gláptum á imbann. Julian sofnaði seint og Henrik enn seinna eða eftir miðnætti......þolið í þessum drengjum er ótrúlegt.
Í morgun snéri ég eitthvað vitlaust upp á mig í sturtunni og er því með þennan heljarins hálsríg. Get varla litið til hægri og niður......verð að slaka á, ekki kannski það besta að sitja hér og blogga! Vonandi lagast þetta nú fljótt, er svo andskoti vont. Hætti núna.......takk fyrir innlitið.
Sæl elskan.
SvaraEyðaNú er klukkan að verða tíu og mælirinn minn sýnir 10,9 svo eg vona að vorið sé að koma hér, það er bara hlýrra en hjá þér.
Vonandi losnar þú við þennann hálsríg hann getur verið anndstyggilegur, ef ekki þá ferðu í heitt bað og slakar á eða ferð í nudd.
Hafðu það gott. Bestu kveðjur þín mamma
...við hálsríg mæli ég með góðri bíómynd og köldum bakstri á hálsinn og svo í sturtu :-)
SvaraEyðaTakk fyrir góð ráð. Nú er bara spurning, heitur eða kaldur bakstur, eða bæði.... misjafnt hvað fólk segir.
SvaraEyðaEr samt skárri í dag, allt að koma.