þriðjudagur, 29. júní 2010

Smá fréttir

Allt í góðu standi hér bara, hitabylgja á staðnum, mömmu til mikillar ánægju. Hún labbar bara um á hlýrabol og á tásunum, dag eftir dag :) Pabba finnst þetta alveg ótrúlegt, situr úti á svölum á kvöldin og dásamar veðrið. Finnst kannski heldur heitt yfir daginn en á kvöldin er alveg indæl. Þau gömlu eru orðin svo sjóuð í heimsóknum hér að þau labba sér í bæinn, fara út að borða, horfa á fótboltaleiki í bænum (aðallega pabbi þó) ofl. skemmtilegt. Ég og mamma fórum í 1. innkaupaferðina í bæinn í gær, alveg frábært að komast svona án strákanna í bæinn, já og án tímaþrengingar.......

Fyrstu mynd dagsins tók ég á leiðinni í vinnuna. Svo falleg þessi "Poppy" blóm :)

Ég, Seydi og Bärbel skelltum okkur út á lífið á laugardagskvöldið. Ætluðum svo rosalega á diskó en þar var bara tómt hús! Við renndum þá bara aftur heim og fórum hér í bæinn á pöbbarölt. Enduðum á bar þar sem hægt er dansa líka, ekkert mega stór dansgólf en alveg nóg. Skemmtum okkur konunglega......sem þýddi að sunnudagurinn fór í það að faðma setuna vel og lengi, já og verma rúmið sem lengst.........alveg merkilegt hvað bjórinn gerir við mig!

Næsta mynd er af þeim "gömlu" á 10 ára hátíð "Schnuppis" kórsins í leikskólanum.

Ýmislegt verður á dagskrá næstu daga. Í dag er Julian með bekknum í dýragarði í Dortmund, tannlæknisheimsókn seinni partinn, grill í fótboltanum á fimmtudaginn, fótbolti (Þýskaland-Argentína) á laugardaginn ofl. ofl.

Bestu kveðjur úr hitanum og til hamingju með daginn Guðmundur frændi og Viddi

sunnudagur, 20. júní 2010

Long time ago....

Langt síðan síðast........alveg meira en 10 dagar. Það er svo erfitt að finna rétta augnablikið til að rita nokkur orð svo ég ákvað bara að rita, án þess að það væri rétta augnablikið......ég er nefnilega að drepast úr hausverk! Ætti frekar að sofa bara. Er reyndar búin að dotta og lúra í mest allan dag, horfði á leikina á HM, dottaði af og til, missti af seinna marki Paraguay t.d. Hjá mér kemst nú lítið annað að en HM þessa dagana, líka afsökun fyrir bloggletinni.

Er þó farin að hlakka til að huga að komu foreldra minna á næsta fimmtudag. Alveg farin að skipuleggja hitt og þetta. Fyrst af öllu að huga að því hvenær ég þurfi að leggja af stað til að ná í þau.......Lending er 6:20- skemmtilegur tími- og það tekur mig um 40 mín. að keyra til Dusseldorf. Þyrfti því að leggja af stað svona rúmlega 6, það tekur oft stuttan tíma að afgreiða farþega/töskur svona snemma morguns og þau gömlu gætu verið komin út fyrir 7. Vil nú ekki láta þau standa lengi og bíða eftir mér. En þetta reddast nú alveg, eldgosið er búið svo að ekki er hætta á ösku í lofti.

Tók mynd af rósum í gær en þær eru í blóma hér útum allt. Þyrfti eiginlega að fara í blómarósa-myndaleiðangur. Þarf ekkert að fara langt, bara í næstu götu. Þessi mynd er tekin í náttúrugarði sem náttúrusamtök (NABU) hér tóku yfir og umturnuðu en húsið sem fylgir með var að grotna niður. Mjög flott hjá þeim en leikskólinn mætti þangað í gær og við fórum í allskonar þrautir/leiki m.a. að veiða úr hálfgerðum drullupolli með sigti úr plastflösku og rýju, svo átti að hlusta/lykta/snerta hluti, búa til hús fyrir skordýr ofl. Hægt var svo að kaupa pylsur og vöfflur. Indæl stund þó að veðrið hafi ekki verið sumarlegt, um 15° og skýjað.


Þann 12.júní voru Scorpions með tónleika hér í almenningsgarðinum við leikhúsið. Tónleikarnir voru úti svo það var hægt að standa við hliðin og kíkja inn, ég og Bärbel gerðum það.....og margir aðrir. Löbbuðum svo um svæðið, keyptum okkur bjór og kíktum aftur á tónleikana. Veðrið var alveg æðislegt, logn og hlýtt. Þar sem þetta var síðasta kvöld Listahátíðarinnar í Recklinghausen ( Ruhrfestspiele) , var laser/flugeldasýning um kvöldið. Alveg magnað.....líka magnað að bjórinn var lækkaður í 1 Evru á flöskuna :) Ég drakk samt ekkert mikið og það er gott að geta labbað heim frá garðinum. Var bara ekki komin neitt seint heim en það var gott að komast út að skemmta sér aðeins. Stefnan er svo tekin á "Yfir 30" partý um næstu helgi, tökum Seydi með þar sem við verðum með bestu barnapíur í heim........


Æi,. þetta er orðið gott í bili. Veit ekki hvort ég blogga mikið á næstunni þar sem aðal kvittarinn verður staddur hjá mér ;)

Góðar stundir

þriðjudagur, 8. júní 2010

Smá tími til að blogga...

...áður en ég þarf að sækja Henrik í leikskólann.  Best að gera það þá........

Eins og flestir vita skruppum við til Danmerkur um helgina sem var löng vegna frídags á fimmtudag og skólafrís á föstudaginn. Þetta passaði alveg því að Helga Dóra og vinkona voru stödd hjá Elfu svo það var upplagt að skella sér. Strákarnir voru rosa hrifnir og skemmtu sér vel, sérstaklega í Legolandi. Ég átti yndislega helgi með góðu og skemmtilegu fólki. Ógleymanleg dvöl í alla staði. Keyrslan var ekkert spes en hún tók heldur langan tíma þar sem Þjóðverjar eru svo duglegir að breikka og laga hraðbrautirnar.......ég sem hélt að ríkið væri á hausnum! Ég mátti því oft bara keyra á 80 km og það er heldur hægt svona á hraðbraut. En þetta hafðist og Recklinghausen tók á móti okkur með þrumum og látum eftir indælis veður alla dagana.

 Aðalskvísurnar í heimsókn í Álaborg

Ó já, við Helga skelltum okkur EINAR í heimsókn til Hrafnhildar og co. í Álaborg. Snilldar hugmynd hjá HD að við færum bara tvær, barnlausar. Nutum dagsins í botn alveg hreint. 

Næsti pöbb takk fyrir :)

Ég er alveg ákveðin í því að fara til Danmerkur aftur, ekki spurning. Voða hyggelig að vera þar.

Seydi kom ekki með en hann skrapp til Tyrklands og kemur heim í dag. Kannski hefur hann keypt eitthvað handa elskunni sinni.......meira um það seinna. Vona allavega að hann hafi keypt smátterí handa strákunum.  

Nú eru bara rúmlega 2 vikur í að mamma og pabbi komi. Það verður alveg frábært og mikið um að vera. Hátíð í leikskólanum, HM í fótbolta á skjá niðri í bæ, útskrift Henriks, íþróttadagar í skólanum, lokagrill í fótboltanum, hjólahátíð í bænum ofl. ofl.  Ætli við Seydi notum ekki tækifærið og förum út að borða saman, bara við tvö að kvöldi til en eins og er komumst við bara á hádeginu. Ekkert slæmt við það en alltaf smá í tímaþröng.  Þetta verður alveg magnað sumar, byrjaði allavega vel um helgina :)  

Sumarkveðja