sunnudagur, 20. júní 2010

Long time ago....

Langt síðan síðast........alveg meira en 10 dagar. Það er svo erfitt að finna rétta augnablikið til að rita nokkur orð svo ég ákvað bara að rita, án þess að það væri rétta augnablikið......ég er nefnilega að drepast úr hausverk! Ætti frekar að sofa bara. Er reyndar búin að dotta og lúra í mest allan dag, horfði á leikina á HM, dottaði af og til, missti af seinna marki Paraguay t.d. Hjá mér kemst nú lítið annað að en HM þessa dagana, líka afsökun fyrir bloggletinni.

Er þó farin að hlakka til að huga að komu foreldra minna á næsta fimmtudag. Alveg farin að skipuleggja hitt og þetta. Fyrst af öllu að huga að því hvenær ég þurfi að leggja af stað til að ná í þau.......Lending er 6:20- skemmtilegur tími- og það tekur mig um 40 mín. að keyra til Dusseldorf. Þyrfti því að leggja af stað svona rúmlega 6, það tekur oft stuttan tíma að afgreiða farþega/töskur svona snemma morguns og þau gömlu gætu verið komin út fyrir 7. Vil nú ekki láta þau standa lengi og bíða eftir mér. En þetta reddast nú alveg, eldgosið er búið svo að ekki er hætta á ösku í lofti.

Tók mynd af rósum í gær en þær eru í blóma hér útum allt. Þyrfti eiginlega að fara í blómarósa-myndaleiðangur. Þarf ekkert að fara langt, bara í næstu götu. Þessi mynd er tekin í náttúrugarði sem náttúrusamtök (NABU) hér tóku yfir og umturnuðu en húsið sem fylgir með var að grotna niður. Mjög flott hjá þeim en leikskólinn mætti þangað í gær og við fórum í allskonar þrautir/leiki m.a. að veiða úr hálfgerðum drullupolli með sigti úr plastflösku og rýju, svo átti að hlusta/lykta/snerta hluti, búa til hús fyrir skordýr ofl. Hægt var svo að kaupa pylsur og vöfflur. Indæl stund þó að veðrið hafi ekki verið sumarlegt, um 15° og skýjað.


Þann 12.júní voru Scorpions með tónleika hér í almenningsgarðinum við leikhúsið. Tónleikarnir voru úti svo það var hægt að standa við hliðin og kíkja inn, ég og Bärbel gerðum það.....og margir aðrir. Löbbuðum svo um svæðið, keyptum okkur bjór og kíktum aftur á tónleikana. Veðrið var alveg æðislegt, logn og hlýtt. Þar sem þetta var síðasta kvöld Listahátíðarinnar í Recklinghausen ( Ruhrfestspiele) , var laser/flugeldasýning um kvöldið. Alveg magnað.....líka magnað að bjórinn var lækkaður í 1 Evru á flöskuna :) Ég drakk samt ekkert mikið og það er gott að geta labbað heim frá garðinum. Var bara ekki komin neitt seint heim en það var gott að komast út að skemmta sér aðeins. Stefnan er svo tekin á "Yfir 30" partý um næstu helgi, tökum Seydi með þar sem við verðum með bestu barnapíur í heim........


Æi,. þetta er orðið gott í bili. Veit ekki hvort ég blogga mikið á næstunni þar sem aðal kvittarinn verður staddur hjá mér ;)

Góðar stundir

7 ummæli:

  1. Hæ hæ,gaman að lesa bloggið þitt..æðislegar rósir, ég væri nú alveg til í svona í garðinn minn! Ég kíkti líka á síðurnar hjá þeim Henrik & Julian, þeir eru svo miklar dúllur drengirnir þínir :)
    Knús
    G

    SvaraEyða
  2. heheh þú meinar hinn aðalkvittarinn þar sem ég kemst ekki til þín í næstu viku ;-) (öfunda þig mig á því að vera fá foreldrana i heimsókn, held að háagerðishjúin ætli að koma í haust til mín en þó er það ekki komið á hreint enn sem komið er)

    æðislegur bakgrunnurinn þinn hérna og rósirnar flottar líka.

    kærar kveðjur

    SvaraEyða
  3. Sæl frænka

    Alveg lágmarks kurteisi að kvitta svona annað veifið fyrir, þannig að hér með kvittast;)
    Njóttu þess að fá þau "gömlu" til ykkar og þið Seydi skuluð nota hvert tækifæri sem gefst til að vera saman, ekki svo oft sem þið hafið svona maddnaðar barnapíur.
    Knús á ykkur öll
    Jóa frænka.

    SvaraEyða
  4. Já Guffý, ef ég væri með garð yfir höfuð, myndi ég kannski fá mér rósir. Þvílíkt fallegar sumar hér í kring.

    Einmitt Stella, meina hinn aðal kvittarann ;) Þú kemur bara seinna í heimsókn.

    Nú verður sko farið út á lífið næstu vikur, já og út að borða, bíó kannski og svona.

    Takk fyrir innlitið allar.

    SvaraEyða
  5. Sæl elskan.
    Nú nú það er bara svona á bara að láta mann púla, eins gott að vera vel undirbúin
    Hlakka samt til. Við sjáumst.
    Þín mamma (aðal kvittari.)

    SvaraEyða
  6. Það er ekkert púl að passa þessa yndislegu og þægu syni mína mamma :)
    Sjáumst

    SvaraEyða
  7. Hæhæ. Baða gínast.
    Kv. mamma

    SvaraEyða