Allt í góðu standi hér bara, hitabylgja á staðnum, mömmu til mikillar ánægju. Hún labbar bara um á hlýrabol og á tásunum, dag eftir dag :) Pabba finnst þetta alveg ótrúlegt, situr úti á svölum á kvöldin og dásamar veðrið. Finnst kannski heldur heitt yfir daginn en á kvöldin er alveg indæl. Þau gömlu eru orðin svo sjóuð í heimsóknum hér að þau labba sér í bæinn, fara út að borða, horfa á fótboltaleiki í bænum (aðallega pabbi þó) ofl. skemmtilegt. Ég og mamma fórum í 1. innkaupaferðina í bæinn í gær, alveg frábært að komast svona án strákanna í bæinn, já og án tímaþrengingar.......
Fyrstu mynd dagsins tók ég á leiðinni í vinnuna. Svo falleg þessi "Poppy" blóm :)
Ég, Seydi og Bärbel skelltum okkur út á lífið á laugardagskvöldið. Ætluðum svo rosalega á diskó en þar var bara tómt hús! Við renndum þá bara aftur heim og fórum hér í bæinn á pöbbarölt. Enduðum á bar þar sem hægt er dansa líka, ekkert mega stór dansgólf en alveg nóg. Skemmtum okkur konunglega......sem þýddi að sunnudagurinn fór í það að faðma setuna vel og lengi, já og verma rúmið sem lengst.........alveg merkilegt hvað bjórinn gerir við mig!
Næsta mynd er af þeim "gömlu" á 10 ára hátíð "Schnuppis" kórsins í leikskólanum.
Ýmislegt verður á dagskrá næstu daga. Í dag er Julian með bekknum í dýragarði í Dortmund, tannlæknisheimsókn seinni partinn, grill í fótboltanum á fimmtudaginn, fótbolti (Þýskaland-Argentína) á laugardaginn ofl. ofl.
Bestu kveðjur úr hitanum og til hamingju með daginn Guðmundur frændi og Viddi
Flott að heyra að þið hafið það gott þarna í hitanum,hér er 17 stiga hiti:)bið að heilsa mö og pa þínum og segðu þeim að njóta sín í botn í fríinu og þú líka elskan,gott fyrir þig að hafa þau, knús og kossar þín HD
SvaraEyðaBúin að skila kveðjunni mín kæra. Gaman að sjá þig hér :)
SvaraEyða...verð nú að segja að mér finnst þú slök að setja inn fréttir eða myndir. Hef farið reglu hérna inn til að taka stöðuna en hún virðist engin :-)
SvaraEyðakveðja
Mæruprinsinn
Já ég veit elsku bróðir, lét nægja að setja stuttar fréttir á fb meðan að ma og pa voru í heimsókn......Ég lofa að bæta úr þessu með lækkandi sól ;)
SvaraEyðaEf þú er prins, er ég þá prinsessa? hahaha
Knús,hlakka til að sjá þig