Eins og flestir vita skruppum við til Danmerkur um helgina sem var löng vegna frídags á fimmtudag og skólafrís á föstudaginn. Þetta passaði alveg því að Helga Dóra og vinkona voru stödd hjá Elfu svo það var upplagt að skella sér. Strákarnir voru rosa hrifnir og skemmtu sér vel, sérstaklega í Legolandi. Ég átti yndislega helgi með góðu og skemmtilegu fólki. Ógleymanleg dvöl í alla staði. Keyrslan var ekkert spes en hún tók heldur langan tíma þar sem Þjóðverjar eru svo duglegir að breikka og laga hraðbrautirnar.......ég sem hélt að ríkið væri á hausnum! Ég mátti því oft bara keyra á 80 km og það er heldur hægt svona á hraðbraut. En þetta hafðist og Recklinghausen tók á móti okkur með þrumum og látum eftir indælis veður alla dagana.
Aðalskvísurnar í heimsókn í Álaborg
Ó já, við Helga skelltum okkur EINAR í heimsókn til Hrafnhildar og co. í Álaborg. Snilldar hugmynd hjá HD að við færum bara tvær, barnlausar. Nutum dagsins í botn alveg hreint.
Næsti pöbb takk fyrir :)
Ég er alveg ákveðin í því að fara til Danmerkur aftur, ekki spurning. Voða hyggelig að vera þar.
Seydi kom ekki með en hann skrapp til Tyrklands og kemur heim í dag. Kannski hefur hann keypt eitthvað handa elskunni sinni.......meira um það seinna. Vona allavega að hann hafi keypt smátterí handa strákunum.
Nú eru bara rúmlega 2 vikur í að mamma og pabbi komi. Það verður alveg frábært og mikið um að vera. Hátíð í leikskólanum, HM í fótbolta á skjá niðri í bæ, útskrift Henriks, íþróttadagar í skólanum, lokagrill í fótboltanum, hjólahátíð í bænum ofl. ofl. Ætli við Seydi notum ekki tækifærið og förum út að borða saman, bara við tvö að kvöldi til en eins og er komumst við bara á hádeginu. Ekkert slæmt við það en alltaf smá í tímaþröng. Þetta verður alveg magnað sumar, byrjaði allavega vel um helgina :)
Sumarkveðja
Sæl elskan.
SvaraEyðaJá þetta hefur verið alveg frábært hjá ykkur vinkonunum, gaman að allir skemmtu sér vel. Það styttist í árásina frá Íslandi, vonandi vrður þrumuveðrið hætt þá (er búin að fá minn skamt).
Hlakka til að hitta ykkur. Kveðja mamma.
yndislegt að hafðir tækifæri til að heimsækja gellurnar...
SvaraEyða