þriðjudagur, 8. júní 2010

Smá tími til að blogga...

...áður en ég þarf að sækja Henrik í leikskólann.  Best að gera það þá........

Eins og flestir vita skruppum við til Danmerkur um helgina sem var löng vegna frídags á fimmtudag og skólafrís á föstudaginn. Þetta passaði alveg því að Helga Dóra og vinkona voru stödd hjá Elfu svo það var upplagt að skella sér. Strákarnir voru rosa hrifnir og skemmtu sér vel, sérstaklega í Legolandi. Ég átti yndislega helgi með góðu og skemmtilegu fólki. Ógleymanleg dvöl í alla staði. Keyrslan var ekkert spes en hún tók heldur langan tíma þar sem Þjóðverjar eru svo duglegir að breikka og laga hraðbrautirnar.......ég sem hélt að ríkið væri á hausnum! Ég mátti því oft bara keyra á 80 km og það er heldur hægt svona á hraðbraut. En þetta hafðist og Recklinghausen tók á móti okkur með þrumum og látum eftir indælis veður alla dagana.

 Aðalskvísurnar í heimsókn í Álaborg

Ó já, við Helga skelltum okkur EINAR í heimsókn til Hrafnhildar og co. í Álaborg. Snilldar hugmynd hjá HD að við færum bara tvær, barnlausar. Nutum dagsins í botn alveg hreint. 

Næsti pöbb takk fyrir :)

Ég er alveg ákveðin í því að fara til Danmerkur aftur, ekki spurning. Voða hyggelig að vera þar.

Seydi kom ekki með en hann skrapp til Tyrklands og kemur heim í dag. Kannski hefur hann keypt eitthvað handa elskunni sinni.......meira um það seinna. Vona allavega að hann hafi keypt smátterí handa strákunum.  

Nú eru bara rúmlega 2 vikur í að mamma og pabbi komi. Það verður alveg frábært og mikið um að vera. Hátíð í leikskólanum, HM í fótbolta á skjá niðri í bæ, útskrift Henriks, íþróttadagar í skólanum, lokagrill í fótboltanum, hjólahátíð í bænum ofl. ofl.  Ætli við Seydi notum ekki tækifærið og förum út að borða saman, bara við tvö að kvöldi til en eins og er komumst við bara á hádeginu. Ekkert slæmt við það en alltaf smá í tímaþröng.  Þetta verður alveg magnað sumar, byrjaði allavega vel um helgina :)  

Sumarkveðja

2 ummæli:

  1. Sæl elskan.
    Já þetta hefur verið alveg frábært hjá ykkur vinkonunum, gaman að allir skemmtu sér vel. Það styttist í árásina frá Íslandi, vonandi vrður þrumuveðrið hætt þá (er búin að fá minn skamt).
    Hlakka til að hitta ykkur. Kveðja mamma.

    SvaraEyða
  2. yndislegt að hafðir tækifæri til að heimsækja gellurnar...

    SvaraEyða