Nú eru þau "gömlu" lent á Íslandinu góða, veðrið fínt í borginni sýnist mér á fréttum. Vonandi taka þau bara sólina með sér norður svo að Mærudagar fari fram í sól og blíðu. Þau tóku allavega smá með sér héðan, ég mátti alveg við því að missa smá og tímdi því alveg. Ég sé Mærudaga ekki fyrir mér í roki og rigningu, fékk nú nóg af því á fimmtudagskvöldinu í fyrra!!! Nei, ég óska þess að það verði GOTT veður. Hér verður allavega gott veður svo langt sem spár ná, í dag var 24° og hálfskýjað. Fórum í afmæli til Jemain frænda strákanna en hann varð 5 ára gaurinn. Tók svo Demien bróðir hans með til okkar en honum finnst voða spennandi og gaman að sofa hér. Fínt líka fyrir strákana mína að hafa næturgest. Klukkan er nú að verða tíu og eini sem er sofnaður er Seydi...........hann hrýtur hér á sófanum. Ég sjálf fer nú að verða ansi þreytt eftir að hafa keyrt mö og pa til Dusseldorf um miðja nótt. Þau hljóta líka að vera þreytt en Rakel hlýtur að hafa keyrt eitthvað fyrir þau norður, trúi bara ekki öðru.
Best að setja inn einhverjar myndir.......augnablik.
Mamma blómarós með innkaupapoka (stal þessari hjá henni)
Sumarmynd ársins 2010
Nýi bíllinn okkar, Benzinn sko (stal þessari líka hjá mömmu)
Góðar stundir

hehe, ég er hér enn og les;)
SvaraEyðaAð sjálfsögðu var tekið höfðinglega á móti stellinu sem komu kát & glöð eftir veruna hjá ykkur...og ég er ekki frá því að nokkrar gráður á celsíus hafi fylgt með í töskunni:)
Við gamli skiptumst á að keyra, hann vildi ekki bara vera farþegi, var farinn að sakna þess að keyra kallinn.
Kossar frá mér til þín:*
Rakel DH
hey og já, þetta er sko pottþétt sumarmynd ársins, algjör SNILLD:)
Hæhæ, gaman að lesa bloggið þitt Inga mín og skoða myndirnar :) Búið að vera bongóblíða hér í sunny KEF og vonandi verður það bara áfram ,,, og fyrir norðan líka ;)
SvaraEyðaBestu kveðjur
Guffý
ljúft að sjá hve heimsóknin lukkaðist vel - (ég er með alla putta í kross og bið fyrir að þau hafi nælt í nokkuð margar hitagráður til að færa mærudögunum - óhæft að það verði ekki rjómablíða í ár)...
SvaraEyðaSæl elskan mín og takk fyrir allar góðu stundirnar hjá ykkur.
SvaraEyðaEg er svona rétt að ná áttum var ansi þreytt í gærkveldi, náði nú samt að steinsofna í flugvélinni (ótrúlagt).
Held okkur hafi tekist að hafa örfá hitastig með okkur alla vega er spáin góð fyrir næstu daga(kanski krossuðu puttunum á Stellu að þakka).
Saknaðar kveðjur, þín mamma.