fimmtudagur, 22. júlí 2010

Bleikt og aftur bleikt

Allt í bleiku núna þessa dagana enda Mærudagarnir miklu. Mikið væri gaman að vera á staðnum en það er ekki hægt að vera alls staðar. Var reyndar að uppgötva, mér til mikillar skelfingar, að ef að Mærudagar eru helgina á undan Versló á næsta ári næ ég þeim varla..........nema að strákarnir skrópi síðasta daginn í skólanum en það er EKKI vel séð hér! Fólk jafnvel sektað........Sjáum til þegar nær dregur.
Óska öllum góðrar skemmtunar og gangið hægt um gleðinnar dyr.

 Þarf eitthvað að skrifa við  þessa mynd ;)

2 ummæli:

  1. Sæl elskan. Sko, ef þú getur tekið flugið á fimmtudagsmorgni frá Dusseldorf þá gætiturðu verið komin heim um kaffileitið með því að fljúga til Akureyrar.
    Mærudagar birja vel vantar bara ykkur +10-15 gráðu hita í viðbót þá væti þetta fullkomið.
    Kveðja mamma.

    SvaraEyða
  2. Sumarfríin byrja ekki fyrr en á mánudeginum 25.júlí á næsta ári svo að það væri afar illa séð ef ég sleppti 2 dögum.......nema ég fái læknisvottorð ;) Koma tímar, koma ráð

    Ég tými ekki að senda fleiri gráður.... verðið að láta þetta duga.

    Knús

    SvaraEyða