Hér er alger afslöppun í gangi, bara verið að þvo þvott, versla, ganga frá eftir fríið, redda síðasta skóladótinu, laga til osfrv. Seydi skreppur af og til í vinnu, ég er "bara" heima ennþá en í næstu viku byrjar fjörið. Skólinn byrjar á mánudag en skólasetning 1.bekkjar er á þriðjudaginn. Spennandi tímar framundan og nú kemst enn meiri rútína á þar sem strákarnir verða báðir í gæslu til allavega 15. Kannski ég geti hætt af og til kl. 13 í vinnunni og haft smá tíma fyrir mig, kannski tekið mig til og farið út að ganga eða eitthvað annað gáfulegt..........
Þar sem flestir eru á facebook mun ég sennilega ekki setja inn mikið af myndum úr fríinu hér á bloggið. Mamma: Þú verður bara að skoða hjá HBH, ef þú ert ekki búin að því :)
Nú er alveg spurning hvort ég fari eitthvað út í ferðasögu.........ég held bara ekki, nema í grófum dráttum. Keyrðum 8500 km allt í allt, Búlgaría er mest hataða landið í minni fjölskyldu, í Tyrklandi var hitabylgja, það var verslað mikið af fötum, farið oft út að borða, legið í sólinni......hóflega þó, hlustað á tilheyrandi "holiday" tónlist.........eitthvað fleira?? Alveg örugglega, kem ekki meiru fyrir mig í augnablikinu. Set frekar inn myndir.
Frændur í kvöldsólinni í Silivri, Tyrklandi
Verslunarferð til Eskisehir
SPLASH
Hér er rigning en hlýtt. Samt skrýtið að þurfa að vera í síðbuxum, sokkum og peysu.......jafnvel í jakka þegar farið er út. Haustið er örugglega ekki langt undan. Allavega virðist ekki vera langt í jólin.........sá jólasætabrauð í Netto í morgun!! Ætti ég að fara að huga að jólagjöfum??? Er reyndar búin að kaupa eina. Nei, ég held að ég hugi fyrst að afmælisgjöf handa mömmu. Hvað langar þig í mamma???
Góða helgi
Sæl elskan. Eg er ekki búin að skoða myndirnar hjá HBH bara hjá strákunum, geri það seinna.
SvaraEyðaAlltaf gott þegar haustrólegheitin koma og lífið fellur í fastar skorður.
Mig vanhagar nú ekki um neitt fataskápurinn er að springa og eg er lítið fyrir glingur,það væri þá frekast Fólksmússík aldrei of mikið af henni þér dettur eitthvað í hug.
Gangi þér vel að koma gaurunum í skólann.
Bestu kveðjur mamma.
Sæl elskan. Já þetta er greinilega einka síða fyrir mig og kanski Unni hún fer bara svo sjaldan í tölvuna.
SvaraEyðaEg renndi yfir myndirnar þínar í dag á Facebook.
Það er auðséð að HBH er verri en eg í innkaupunum hann er með fleiri poka en eg var nokkurntíman (að vísu fór eg fleiri ferðir í bæinn). Hann er líka mikið duglegri að nota nýju fötin heldur en eg sem er alltaf í sömu gömlu druslunum.
Annars er gott að sjá hvað þið hafið verið heppin með veðrið (nema einusinni) og gaman hjá ykkur.
Vonandi ertu komin til botns í óhreinaþvottakörfunni.
Bestu kveðjur þín mamma.
Ég var einmitt að pæla í því að þetta væri orðin einkasíða fyrir þig..... skiptir ekki máli, ég blogga áfram.
SvaraEyðaÉg þurfti nú ekki að þvo mikið enda þvoði tengdamamma allt þegar við komum frá Antalya :) Þetta var því bara 1 poki sem var óhreinn þegar ég kom heim.
Núna er bara komið haust held ég bara, núna getur þú fylgst vel með veðrinu hjá mér :) Í dag er rigning og 15°.
Sæl á sunnudegi. Sá veðursíðuna það er flott. Við Unnur og Hlynur skuppum í berjamó í morgun eins gott því nú er farið að rigna.
SvaraEyðaVið erum svona gömlurnar megum ekki vita af óhreinum þvotti þá með hann í þvottavélina.
Heyrumst, bestu kveðjur mamma.
hæ:) ég hef "hunsað þig" að undanförnu og ekkert lesið, sorrrrrý:/ Einsog þú segir, þá einhvern veginn er facebook tekið við, en auðvitað er það ekkert annað en stikkorð með mislöngu millibili, spurning hvort maður fer ekki að nota bara símann meira, ætla að kanna hvert mínútuverðið er, alveg glatað að heyrast aldrei.
SvaraEyðaég mæli með að nýta tímann eftir hádegi til að taka hressilega á því og svitna svolíð, mjög streitulosandi og gott í alla staði:)
kv. litla R-ið
No problem Rakel mín. Þetta blogg er líka stundum streitulosandi og gott í alla staði, hægt að losna við ýmislegt með því að rita ;) En ég ætla líka að reyna að koma mér í betra form með því að hreyfa mig meira......maður verður víst ekki yngri ;)
SvaraEyðaLáttu mig nú frekar hringja í þig, held að verðið hér sé "ósigrandi" eða um 2 cent/mín.
Knús