miðvikudagur, 8. september 2010

Haustið nálgast

Ég er alltaf að fara að blogga........stundum er ég ekki búin að setja inn myndir í tölvuna, stundum hef ég ekki tíma, gef mér ekki tíma eða eitthvað þannig, stundum hef ég ekkert að segja en oftast er ég bara ekki í rétta stuðinu, alltaf eitthvað sem truflar mig. Núna læt ég ekkert trufla mig, strákarnir eru að horfa á TV og ég nýbúin að borða kartöflu/hrísgrjóna "eitthvað", svona mitt á milli súpu og "Eintopf" eða German stew, hvað á að kalla þetta á íslensku????

Áður en ég skrifa meira, mynd af veðrinu hérna um daginn.....þessu fylgdi þokkaleg rigning!

Veðrið hefur verið bæði gott og minna gott, haustið er ekki langt undan svo að það eru oft sveiflur í lofti. Einn daginn 25° hiti og sól en þann næsta kannski 15° og rigning. Í síðustu viku var frekar svalt á morgnana, svo svalt að það koma "reykur" út um munninn. Haustinu fylgir oft "depurð".......reyndar finnst þér þetta orð ekki passa við orðið "Melancholie" en ég er að meina það. Google Translate segir depurð, hmmmm. Hér er þetta orð oft notað fyrir vissa þægilega tónlist sem sendir mann í draumaheima. Verð að kanna þetta betur. Þangað til segi ég bara "melankólísk" :) Er það allavega á norsku svo að þetta hlýtur að skiljast. Ég er allavega allt annað en döpur, svo mikið er víst.

Varð reyndar döpur þegar ég leit á vigtina fyrir nokkrum dögum...........SCHEISSE hvað hún sýndi mikið. Ég fór beint út að hjóla og er núna tvisvar búin að fara út að labba kl. 6 að morgni og stefni á að gera það 3var í viku, plús kannski hjólatúra já og að borða minna..........sérstaklega minna nammi! Ég þyngdist sko ekkert í Tyrklandi, sennilega útaf mikilli vatnsdrykkju, litlu sem engu nammi og sökum hita er matarlystin ekkert voðalega mikil. Eftir að ég kom heim hefur matarlystin aukist mjög og í skápnum var íslenskt nammi sem Hjálmar kom með.....mmmmmmmmmmmmm. Skammta sér Inga, go Inga, go Inga.

Oft dettur mér eitthvað mega sniðugt til að blogga um en þegar ég sest og blogga man ég það nú ekkert.... Læt þetta því duga í dag, verð að skrifa Post-it miða næst ef ég á að muna eitthvað sniðugt :) Regnbogamynd að lokum gott fólk.

3 ummæli:

  1. Sæl elskan. Gott að fá smá blogg.
    Eitthvað er nú þessi skýjamynd kunnugleg og eg sé fyrir mér bæði þrumur og eldingar.
    Hér er nú ennþá sól og sumar, bara farið að dimma á kvöldin sem mér fynst bara notalegt, sennilega haust"eitthvað" depurð eða rólegheit.
    Gangi þér vel í morgumgönguferðunum.
    Kveðja mamma.

    SvaraEyða
  2. sko mína, líst laglega vel á þig - við löbbum bara saman í sitthvoru landinu, ég mun allavega senda þér góðar hugsanir. ég er að slást við að slaka ekki of mikið á núna því ég er svona allt eða ekki neitt og ég kemst engan veginn alla daga núna og þá er svo fljótt að koma í mig uppgjöf - en ég er að prenta inn að annan hvern dag er nóg...

    Melancholie, melancholic - fær margar þýðingar hér en ég ætla gefa mér það bessaleyfi að segja að það þýðist best sem angurvær eftirsjá...

    haustið mitt er aðeins að byrja hér, næturnar kaldari og einhvern örlítinn gulan blæ má sjá þegar litið er yfir skógi vaxin svæði. það rignir í dag og ég stefni á heimilisþrif.

    góða helgi

    SvaraEyða
  3. Jamm Stella, mér datt þetta orði hug eftir að hafa séð mynd á mbl.is EN það er þýtt öðruvísi hér. Melancholie er upphaflega komið úr læknisfræði sem þunglyndi, allavega samkv. Wiki.
    En mér finnst angurværð fínt orð.

    Góða helgi líka og við löbbum saman.

    SvaraEyða