Ætli ég finni ekki einhverja mynd handa ykkur.........
Danssýningartjaldið á ráðhústorginu
Á síðasta fimmtudag fórum við á danssýningu í þessu tjaldi. Unglingar frá 8 löndum sýndu ýmsan dans. Julian fannst gaman en Henrik leiddist, var kannski heldur lítill en honum fannst þó gaman þegar dansað var hipp hopp. Örugglega gaman að vera unglingur í þessari sýningu, ferðast um og dansa :)
Oft dettur mér eitthvað sniðugt í hug til að blogga um en akkúrat þá gef ég mér ekki tíma til að setjast niður og blogga........sagði ég þetta ekki síðast líka..........setti ég eitthvað á Post-it miða.......NEI. Því verður þetta ekkert spennandi blogg, frekar en vanalega. Ég sit bara hér, horfi á fréttir og drekk heimatilbúinn "smoothie". Fór ekkert út að ganga í gærmorgun, var of slöpp. Sé til hvort ég kem mér út í fyrramálið........Veðrið er nefnilega alveg indælt, rólegt haustveður og hlýtt. Má alveg vera svona áfram.
Bis dann
...alltaf vera með post-it í vasanum, eða henda nauðsynlegum upplýsingum í fílafaxið;)
SvaraEyðaEn annars skil ég þig vel, á venjulegum heimilum eru nú ekkert sirkus&blöðrur alla daga;)
Bataknús á þig:*
Rakel
Fílófax......heldur þú að ég sé með svoleiðis í vasanum??? Ég var ein af fáum sem voru EKKI með blað og penna á bekkjarfundinum.....flestar mömmurnar glósuðu og glósuðu, hehe. Í gær var svo miði með öllum "termínunum", alveg óþarfi að glósa, maður missir ekkert af neinu ;)
SvaraEyðaÉg ætti bara að blogga oftar, setjast niður þegar einhver hugdetta kemur.
Knús til baka
Sæl elskan. Takk fyrir bloggið.
SvaraEyðaJá haustkvefið er pirrandi eg sem fæ nánast aldrei kvef (7-9-13) slepp ekki alveg er þung í hausnum og fæ hóstaköst. Við hristum þetta af okkur kerlingarnar.
Vonandi verður þú hress í fyrramálið.
Kveðja mamma.
Hæ mamma, er miklu skárri og með lítinn hausverk, losnað hefur um horið.....
SvaraEyðaEr í vinnunni og sólin skín, þú ættir að vera hérna núna í 21° hita :)
Hæ hæ. Gott að heyra, eg er líka skárri í dag.
SvaraEyðaJa eg mundi alveg vilja vera komin til þín.
Kveðja mamma