mánudagur, 27. september 2010

Rigningar mánudagur

Vikan byrjar blaut hér á bæ, köld og blaut. Já mér finnst 10° ekki beint hlýtt svona í september en því verður ekki breytt. Kannski verður veturinn mildur, allavega vona ég að hann verði eitthvað styttri en í fyrra en snjórinn má alveg láta sjá sig, helst um jólin takk....... Talandi um jólin, eru ekki minna en 100 dagar til jóla, það er allavega komið jólanammi í búðir, m.a.s. dagatöl! Heyrði í móður í Lidl í dag þar sem hún var að útskýra fyrir dóttur sinni að dagatalið yrði að bíða inni í skáp þangað til 1.des. Það ætti ekki að opna það fyrr. Ég meina, hvað eiga börn að halda......súkkulaði jólasveinar í september.......jafnvel í lok ágúst! Jæja, ein mynd til að byrja með.


 Ég keyrði til Gelsenkirchen á fimmtudaginn, þurfti að ná í mótorblokk úr slípun. Rakst þar á þetta fallega tré í haustlitinum. Sum eru komin lengra en önnur, sum eru búin að missa nær öll lauf, önnur eru algræn. Á leiðinni lenti ég líka á eftir "skítadreifarabíl".......komst bara ekki fram úr honum, aðstæður buðu ekki upp á það!

Eins gott að hann missti ekkert úr sér eða eitthvað gerðist.......um daginn klikkaði eitthvað hjá svona farartæki og fullt af húsum og bílum fengu skítasletturnar yfir sig! Gerðist í þorpi rétt hjá Köln. Það er víst enn skítalykt þar. 

Er bara heima núna, væri sko annars á fótboltavellinum eins og góðri "soccermom" sæmir. En sökum rigninga fellur æfingin niður enda eru engir leikir á næstunni, skiptir kannski ekkert svo miklu máli. Ég var bara fegin að þurfa ekki út úr húsi og fór beint í heimabuxur og ákvað að blogga. Svo tekur eldamennska við, kjúllavængir + kartöflur úr ofni. Var með kálfasnitsel í gær, svona er það þegar Seydi fer í "Tyrkjabúðina", hann kaupir kjöt fyrir marga daga en í fyrrdag voru kálfakótelettur!!

Ein mynd að lokum. Fór með Henrik í bæinn í gær en Julian var í afmæli. Mig hefur oft langað til að sýna flottu blómakörfurnar sem hanga á ljósastaurunum hér, voða sniðugt og gerir bæinn fallegri. Væri ekki hægt að setja svona á Víkinni góðu?


Jæja, þetta er gott. Ég er enn með dúndrandi hausverk en kvefið er betra og nef- og ennisholur nokkuð góðar. Ég lifi bara á aspirín og panodíl þessa dagana.......verð eiginlega að redda mér íbúfen. 
Eigið góða viku


5 ummæli:

  1. Sæl elskan.
    Já þú segir það, jólin bara á næsta leiti, það verður að fara að greiða skeggin á þessum bæ hó hó hó.
    Það væri nú flott að hafa svona bleika blómakörfu á staurnum hér við hornið á mæstu mærudögum við skoðum það.
    Eigðu góða viku og láttu þér batna.
    Kveðja mamma.

    SvaraEyða
  2. Hver þremillinn! Ég var búin að skrifa svona líka fínt kvitt og það bara hvarf þegar ég gerði post comment og mamma varð á undan mér. Ég sem ætlaði að vera fyrst að kvitta á nýja blogginu, takk fyrir það. Vonandi kemur þetta kvitt því annars mun líða langur tími til þess næsta...

    Annars er allt fínt að frétta, 15 stiga hiti og suðaustan gola á klakanum, þvílíkur klaki sem ég bý á. Kv. U.

    SvaraEyða
  3. Noh, er bara keppni hjá ykkur mæðgum??? Aldeilis fljótar að kvitta, vá.
    Æi já ég var komin með leið á þessum niðurdrepandi rigningarbakgrunn, nóg að hafa rigningu úti ;)

    Kjúllinn mallar í ofninum og Seydi er kominn heim! Já, hann mætti hérna fyrir 18.... reyndar var rafmagnið tekið af verkstæðinu vegna þess að það er verið að taka í gagnið sólarorku uppi á þaki.

    Knús á Klakann, hehe.

    SvaraEyða
  4. Sæl aftur.
    Við Unnur verðum nú að kvitta fyrst þú heldur þessu bloggi út fyrir okkur, sérviskupúkana sem vilja ekki vera á Fésbókinni.
    Takk fyrir það. Kveðja mamma.

    SvaraEyða
  5. Sko mamma, eiginlega er þetta ekki bara fyrir ykkur. Þó þið væruð á facebook myndi ég blogga, allavega segi ég það núna......

    Kveðja úr þoku

    SvaraEyða