laugardagur, 16. október 2010

Bleyta

Engin haustblíða lengur, heldur er komin rigning og hitastigið ekkert til að hrópa húrra yfir, rétt skríður yfir 10° þessa dagana. Suma morgna í síðustu viku var svo kalt að það var frost við jörðu og sumstaðar þurfti að skafa rúður! Þegar það er svona bjart yfir er frostið fljótt að koma. Mætti halda að ég hefði ekki um neitt að skrifa nema veðrið......gerir maður það ekki þegar ekkert er að frétta? Er kannski eitthvað að frétta? Alveg spurning.

 Ég er allavega búin að losa mig við þessi aukakíló sem ég bætti á mig þegar ég kom frá Tyrklandi. Ekki að ég hafi samt verið dugleg að labba úti, nei, því er af og frá. Ég byrjaði rosa dugleg en svo fékk ég helvítis kvefið og þegar það var farið var orðið svo dimmt úti klukkan 6 á morgnana, að ég hætti mér ekki út. Ætla mér frekar að hætta fyrr í vinnunni og hreyfa mig áður en ég næ í strákana. Geri það þegar skólinn byrjar aftur en núna er haustfrí. Var nú svo vond mamma að ég sendi gaurana í gæslu þar sem ég er í vinnu. Julian er nú ekki beint hrifinn af því að þurfa báðar vikurnar í gæsluna, þetta sé sko ekkert frí, segir hann. Við ræðum kannski við "bossinn" um að fá frí einhverja daga í næstu viku ;)

Best að koma með eina mynd eða svo.......
 Séð frá göngubrú rétt hjá slökkvistöðinni

Mikið var gott að vera í fríi í mánudaginn en ég þurfti til kvennsa kl.10 og ákvað að vera bara í fríi. Ég vafraði svo um bæinn eftir læknisheimsóknina en fann bara ekkert sem mig langaði í.......fattaði ekki fyrr en eftir á að auðvitað hefði ég átt að nota tímann til að kaupa jólagjafir. Alveg asni get ég verið, alltaf með jólagjafirnar á síðustu stundu. Ég hlýt að finna mér tíma til að kaupa eitthvað fallegt handa vinum og vandamönnum, ef ekki panta ég bara gjafir á netinu og læt færa mér heim. Allt hægt að fá á netinu, næstum því allavega. Ætli ég muni eftir að kaupa litlar og léttar jólagjafir í ár???? Efast um það, í fyrra sendi ég tæplega 8 kg. pakka til Íslands! Sem er náttúrulega alger bilun en ég er aldrei vitur eftir á þegar kemur að jólagjöfum, úbbs.

Laugardagur í dag, Seydi farinn að kaupa bíla, strákarnir leika sér, ég búin að baka "cup cakes" úr pakka. Bíð eftir að þær kólni svo ég geti sett kremið á, þarf reyndar að hræra það fyrst. Hálf hráslagalegt úti núna, rigning af og til og þungskýjað. Nóvemberlegt veður, segja spekingarnir. Þarf að fara að huga að graskeri til að skera út í. Keyri nú framhjá graskerja söluskúr á hverjum degi, þarf bara að gefa mér tíma og stoppa einn daginn. Hlusta á Rás 2 á laugardegi, indælt.......ha, á að snjóa fyrir norðan á mánudaginn? Svo segja þau á Rás 2. Veturinn er sem sagt ekki langt undan, bæði hér og á Íslandi. Vona að skíðaíþróttir fari að byrja í TV, hlýtur að styttast í það.
Góða helgi allir.


6 ummæli:

  1. Blessuð, takk fyrir pistilinn. Hér er fínt veður, 11 stiga hiti og sunnan andvari. En veturinn er víst væntanlegur í næstu viku, það verður ágætt. Ég held að það sé engin tilviljun að ég heiti MJÖLL, ég elska snjóinn.
    Þetta með jólagjafirnar, ég var einmitt að hugsa um þær í gær, maður verður að fara að huga að þeim. Tíminn líður svo svakalega hratt. Knús á alla hjá þér, best að fitja upp á einhverju sniðugu í jólapakkann. U.

    SvaraEyða
  2. Ég laug nú bara blákalt með hitann, þó að hann segði 10° hér upp á svölum, þá er hann í raun 7°!! Bara skítakuldi og dimmt.
    Endilega fitja upp á einhverju sniðugu, mér líkar það. Ekki geri ég mikið af því ;)

    Ég gæti alveg líka heitið Mjöll, sakna þess stundum að fá ekki almennilegan snjó. Síðasti vetur var undantekning.
    Knús í hús

    SvaraEyða
  3. o já það er ótrúlega stutt í jólinn og maður ekkert farinn að huga af jólagjöfum.við verðum að fara spýta í lófana vinkona með það:)já það er voða fallegt haustveður hér á Víkinni núna en já ég gæti líkað heitið Mjöll elskan snjóinn allavegana í hófi:) Hafið það gott í hasutfríinu,Risknús frá Víkinnim kv HD

    SvaraEyða
  4. Ég lýg nú aðeins í samb. við jólagjafir, er búin að kaupa eina og útbúa aðra. Ég er svo að hugsa um að redda einhverju á netinu og koma þessu tímanlega frá mér svo að pakkinn komi ekki á aðfangadag til Húsavíkur!

    Knús

    SvaraEyða
  5. Hljómar svo notaleg tilveran þín - yndislegt!

    Getur þú sent pakka heim án þess að tollurinn rífi allt upp og rukki viðtakendur gjafanna? Ég sendi litla Tóbíasi frænda tvenn náttföt um daginn, og það barst kvittanna beiðni til Soffíu frá tollinum og við enduðum á því að borga 24.5% toll og svo einhvern aukaskatt 15% ofan á það - fyrir utan það ég borgaði haug í flutningskostnað fyrir þetta sem var ekki neitt, það hefði mátt kaupa gullisleginn náttföt á Íslandi fyrir þann verðmiða sem blessuð Disney náttfötin nú stæra sig af...

    Ekki veit ég hvernig þinn gjaldmiðill er í samanburði við krónuna eða flutningskostnaðurinn útreiknast austan megin Atlantshafsins en ég mun ekki senda einn einasta pakka heim um jólin - sendi bara gjafakort frá íslenskum verslunum á alla í ár. dollarinn sterkur og ég get gefið betur ef ég er ekki að gefa póstþjónustunni jólabónus...

    Við verðum að standa okkur, brottfluttu B stofu stelpur, og halda bloggheiminum á okkar herðum, ég held við séum að verða einar um það að skila frá okkur pistlum.

    Bestu kveðjur á þig og strákana þína

    SvaraEyða
  6. Ha Stella, hljómar tilvera mín notaleg, hehe, ég hugsa einmitt alltaf þannig um þig :)

    Ætli það sé ekki vegna þess að Ísland er í EES sem að ég get sent pakka án þess að kíkt sé í. Sendi m.a.s. oft eitthvað smávægilegt sem bréf (kostar skít á spýtu), án nokkurs tollmiða og það kemst alveg til skila. Engir tollar á þessu, nei nei.

    Já við bloggum fram í rauðan dauðann Stella!
    Mér finnst þetta skítt með þína pakka og myndi kanna þetta betur.

    SvaraEyða