sunnudagur, 3. október 2010

Blíða og ekkert nema blíða

Var byrjuð að blogga í morgun þegar Seydi kom óvænt heim, hætt við fótboltann, mættu of fáir......ég ákvað því að geyma það aðeins að blogga, þarf frið til þess. Hef hann núna, í smá stund allavega. Seydi sefur, eða svaf, dyrabjallan hringdi og truflaði. Strákarnir leika inni í herbergi en þeir heimsóttu afa sinn og ömmu eftir bæjarferðina okkar. Í dag er víst þjóðhátíðardagur, reyndar sameiningardagur austur- og vestur Þýskalands. Það ber lítið á þessum degi hér, í bænum er bæjarhátíð, í Dorsten líka, búðir opnar og alles. Veðrið er alger æði, stuttermabola veður og sól. Má alveg vera svona áfram svo við fáum gullinn október, eins og sagt er hér.
Um daginn var svona þoka...
Í gær fyrir framan skólann
og í dag 22° hiti og sól :)
Æi,nú er friðurinn úti.......ég ætlaði að skrifa meira en Henrik vill spila ólsen, ólsen og ætli við verðum ekki að borða eitthvað.......
Heyri í ykkur seinna

PS. ég sé að myndavélin er með vitlausa dagsetningu......verð að breyta því NÚNA!



4 ummæli:

  1. Fyrst...

    Er mamma kannski að bíða eftir að ég kvitti? U

    SvaraEyða
  2. Halló halló. Eg gerði tilraun til að kvitta í gær en fékk bara ERROR eitthvað.
    Var búin að lesa bloggið á sunnudaginn en vegna slátur stússsins gaf eg mér ekki tíma í kvitt.
    Vona að þetta komist til skila í blíðuna með bestu kveðju úr súldarveðrinu hér.
    Þín mamma.

    SvaraEyða
  3. Hvurslags kvitt er þetta systir góð? ÆI bloggið var nú líka heldur snubbótt og endasleppt..... lofa að gera betur næst.

    Knús úr blíðunni

    SvaraEyða
  4. Þetta var fínt blogg mín kæra, ég var bara að flýta mér að kvitta. Alltaf gaman að lesa nýtt blogg og myndir frá fallegu borginni þar sem þú býrð. Þarf að þjóta, U.

    SvaraEyða