sunnudagur, 10. október 2010

Breytingar enn og aftur.....

....nenni samt ekkert að blogga núna enda komið yfir miðnætti, það er sem sagt kominn 10.10.10. Örugglega margir sem gifta sig í dag. Ekki ég samt...... Kannski finn ég mynd til að senda með þessu breytta útliti, æi ég varð bara að setja eitthvað appelsínugult í tilefni af október, Halloween, graskerjum og svona. Hér er geggjað haustveður sem engan endi sér á, eitthvað á að kólna en það er allt í lagi meðan að blessuð sólin skín.
Sparkað í haustsólinni :) Þekkiði Henrik?

Segi bara góða nótt og sofið vel.

6 ummæli:

  1. Sæl elskan já eg er nærri viss um að Henrik er annar frá vinstri í rauðum búning, bláum sokkum og hvítum skóm. Etthvað kunnuglegt við baksvipinn. Mér finnst eg kannast við fleiri gaura flottir strákar.
    Hér er ekki kominn 10.10.10. hvenær verður klukkunni breitt???
    Við sjáumst og heyrumst.
    Bestu kveðjur mamma.

    SvaraEyða
  2. Ég er ekki að gifta mig frekar en þú. Þekki ekki Hendik á þessari mynd þeir eru svo langt í burtu.
    Lítið að frétta hér nema þá helst að ég tók upp kartöflurnar í dag hefði þótt tíðindi til dæmis í fyrra þá var allt í snjó en í dag var sól og 9 stiga hiti, bara gleði kveðjur á strákana Valla.

    SvaraEyða
  3. Sko þig mamma, þetta er Henrik :)

    Klukkunni er ekki breytt fyrr en 31.okt. Gott að það er frídagur 1.nóv :)

    Njótið veðursins á meðan það er systur

    SvaraEyða
  4. Já haustveðrið er fallegt þessa dagana. Sólin skín á Dalvík og gulu laufin eru útum allt. Sennilega verið frost í nótt því það lekur þvílíkt niður af þakinu í sólinni;) Mun betra veður en fyrir ári síðan eins og Valla frænka þín segir því ég á mynd sem tekin var daginn eftir afmælið hans Alexanders í fyrra og þá drógum við hann á sleða um bæinn... enginn snjór kominn enn sem betur fer:) Skelltum okkur til Siglufjarðar í gær í æðislegu veðri, frábært að komast þetta á hálftíma gegnum 3 göng, krökkunum fannst þetta frekar spennandi:) Haustkveðjur frá Dalvík, Maja

    SvaraEyða
  5. Hæ aftur, eg skal nú viðukenna að eg bar saman myndirnar á barnalandi og skoðaði búninginn og skóna, þeir eru hver öðrum líkir þessir gaurar. Bestu kveðjur mamma

    SvaraEyða
  6. Já var kominn snjór fyrir ári síðan? Mundi ekkert eftir því. Aldeilis munur að fá lengra haust. Ég kíkti í webcam á Dalvík í morgun og fannst glitta í frost á þökunum.
    Ég þarf endilega að kíkja á Siglufjörð þegar ég kem næst, hef ekki komið þangað nema 1 sinni og það var 1984 eða svo!

    Uss mamma, ekki segja frá svona, hehe.

    SvaraEyða