fimmtudagur, 25. nóvember 2010

Nennekki.....

.....að blogga þessa dagana, ætla ekki að fara að röfla um foreldra viðtalið hjá Julian sem fór alveg "úr böndunum". Læt duga að hafa skrifað í vefdagbók hans en þetta er geymt en ekki gleymt.........líður betur núna, þessi vika er búin að vera fín, nóg að gera í föndri, bakstri og amstri. Nokkrum jólagjöfum var reddað í dag. Hætti fyrr í vinnunni og skrapp í bæinn í Dorsten. Notalegt að versla þar, ekkert of mikið úrval en samt nóg. H&M, dm og co.klikka ekki. Náði svo í strákana og við beint til dokksa að láta bólusetja Henrik aftur við hlaupabólu (þarf að fara tvisvar) en í staðin fengum við okkur öll þrjú flensusprautu. Henrik fer bara aftur í næstu viku í bólusetningu. Ég er ekki frá því að ég sé hálf lasin núna, með kvef og örþreytt! Kannski eftir sprautuna?! Best að koma með myndir......
Mini kiwi sem Heri vinnumaður á verkstæðinu kom með :)

Í dag er Þakkargjörðin í USA, ekkert þannig hér, allavega ekki í sömu mynd. Reyndar er eitthvað svipað hér en það er í október,heitir "Erntedankfest" eða uppskeruhátíð. Ég væri alveg til í svona þakkargjörð með kalkún, fjölskylduna í heimsókn og endalaust át......verð að bíða fram að jólum, allavega með matinn. Er ekkert á leið til Ísland enda óhemju dýrt að fljúga með Icelandair, alveg óheyrilegt bara! Fyrst að ég kem ekki verður örugglega snjór, nokkuð víst held ég bara ;) Kannski fáum við snjó hér aftur, allavega er nógu kalt núna og spáð snjó í nótt. Kannski verður hált í fyrramálið, best að keyra varlega á morgun. 
Jæja, önnur mynd 
Jólamarkaðurinn opnaði á mánudaginn

Ég er svo að hugsa um að sleppa jólakortum í ár............EN eiginlega langar mig ekki til þess. Ætli ég panti ekki myndakort á netinu eins og síðustu ár. Nenni varla að skrifa á jólakort........úff, ég nenni bara engu! Á líka eftir að pakka inn jólagjöfum, kaupa nokkrar og baka smákökur. Gerði piparkökudeig í gær til að Julian gæti farið með það í skólann. Það heppnaðist bara feykivel :) 

Læt þetta duga í dag........ætla að spjalla við mömmu á msn.
Knús

föstudagur, 12. nóvember 2010

Gestir farnir

Ég þori allavega að staðhæfa það að lúsirnar eru farnar, allar sem ein. Ég veit ekki hvað er búin að reyta mörg hár úr mínu höfði en í hvert skipti sem mig klæjaði, eða að mér fannst vera hreyfing í hárinu, greip ég í kambinn góða og þjösnaðist í hárinu........eins gott að ég er með þykkt og mikið hár! Annars væri ég hálf sköllótt. Ég óska engum þess að fá þessa óboðnu gesti en ég sá í sjónvarpinu og m.a.s. súperstjörnur eins og Madonna fá líka svona gesti, hehe.

Smá haustlokamynd til að lífga upp á stemminguna.

Nú er mig virkilega farið að langa í að komast EIN í búðir, þarf svo að fara að huga að jólagjöfum. Ég sé ekki fram á það á næstunni, alltaf eitthvað um að vera, mikið að gera í vinnunni líka. Ætli það endi ekki með því að ég panta flest á netinu, ætti kannski að huga að því, ekki svo vitlaus hugmynd. Mig langar samt að komast ein í búðir, helst með þúsund evrur með mér.......bara spreða. Er samt viss um að ég myndi ekki finna neitt sem mig langar í en það er annað mál ;)

Í næstu viku eru foreldarviðtöl í skólanum og ég gæti skrifað heila ritgerð um hvernig það gekk að fá réttan tíma hjá kennurunum. Best að hafa þetta stutt samt....... Fyrst fékk ég blað til að fylla út, hjá Henrik hvenær ég kæmist ekki, hjá Julian hvenær ég kæmist......OK. Hjá H. fékk ég tíma á mánudaginn kl.13:45, hjá J. á þriðjudaginn kl.14:40.......fattaði þá að ég þarf að fara með H. í heyrnarpróf á þriðjudaginn kl.15:15, í bæ sem er í um hálftíma fjarlægð.....OK, ég bið um nýjan tíma fyrir J. Fékk það og hann er á mán. kl.13:40.... .....glæsilegt.......gleymdi að segja hvenær ég ætti tíma hjá H. Þvílík hringavitleysa, ég var algerlega komin með rugluna í gær. Skrifaði bréf til kennara J. um að fá enn nýjan tíma EN J. gleymdi að láta hana hafa miðann.......SHIT, hvað geri ég nú??? OK, ég skrifa bara bréf til beggja kennaranna um að ég muni vera á staðnum, mæta þar sem ég kæmist fyrst að (oftast þarf maður að bíða, sumir foreldrar hafa mikið að spyrja osfrv.). Vona svo að strákarnir sýni nú kennurunum bréfin á mánudaginn. Náðuð þið þessu......ef ekki, skiptir ekki máli. Það er föstudagur og það er uppáhaldsdagurinn minn. Ég fór í bakaríið og keypti bakkelsi, borðaði það og drakk örbylgjuhitað kaffi með. Úti er haustveður, hvasst og þungbúið. Best að vera bara inni, þvo þvott og hanga á netinu........

Góða helgi og takk fyrir innlitið.

miðvikudagur, 3. nóvember 2010

Smá andi

Bara smá samt......veit ekki hve mikinn frið ég fæ til að skrifa nokkur orð. Strákarnir eru reyndar ný farnir inn í herbergi að dunda, eða eitthvað, er ekkert að trufla of mikið. Eina sem komið hefur var "Mamma, Henrik er að trufla mig".......alltaf sama sagan. Ég sagði bara, "Æi strákar" og hef ekki heyrt meira síðan.

Eiginlega hafði ég svo mikið að segja en núna er eins og allt sé dottið út, ég held að þetta lúsaeitur hafi hreinsað til fyrir innan hauskúpuna líka. Alveg hreint ótrúlegt. Mig klæjar enn í hausinn og gríp í kambinn um leið og mig klæjar......hef ekki fundið lús í dag, 7,9,13, Þetta hjálpar sjálfsagt ekkert, hef hingað til ekki verið hjátrúarfull en mér finnst þetta bara passa við núna. Þessi lús hefur haft okkur í heljargreipum í viku! Henrik greiddi mér aðeins áðan og leit yfir hárið, fannst það nú heldur mikið samt. Ég sagði að lýsnar væru farnar og þá sagði dúllan "Getum við þá knúsast?" Auðvitað gerðum við það........Reyndar áttum við góða stund í gærkvöld, kúrðum öll (ég og strákarnir) áður en að þeir fóru að sofa. Það er toppurinn á tilverunni, sérstaklega hjá Julian.

Nú er aldeilis orðið dimmt seinni partinn. Síðan að klukkan var færð aftur um klukkutíma er fyrr dimmt á kvöldin en þeim mun lengur bjart á morgnana. Gott þegar skólar byrjar kl.8 en núna er ekki dimmt þegar við löbbum þangað. Henrik vill enn að ég fylgi honum og ég geri það, eins lengi og hann vill. Mér er alveg sama þó að það sé mælt með því að krakkar labbi einir eftir nokkrar vikur.......maður veit aldrei hvað getur gerst þó að þetta sé stutt leið. Julian vill ekki labba einn þegar hann þarf í 2.tíma og þarf helst að sjá einhvern til að labba inn á skólalóð. Vill vera viss á því að einhver sé þarna. Æi þeir eru báðir yndislegir blessaðir.

Hey, gleymdi næstum því að setja inn myndir.........
 Þessi hjú auglýstu Þakkargjarðar markað í Hochlar bæjarhlutanum
Recklinghausen leuchtet=RE upplýst
Síðustu dagar laufsins á trjánum eru fallegastir

Nú eru laufblöðin alveg að hverfa, falla til jarðar ótt og títt, sérstaklega þegar hvasst er. Í gær lenti ég í stórhríð, þ.e. laufblaðastórhríð. Ég elska þessa hríð, ég fyllist angurværð í svona hríð. Yndislegt. Enn er frekar hlýtt í veðri, 14° í dag og spáð hlýrra á morgun. Svo er víst spáð kaldara, kannski að veturinn sé bara á næsta leyti.......hver veit? Vonandi ekki alveg strax, fyrst mega nú laufin falla alveg af trjánum en sum eiga nokkuð í land. Laufin eru varla fallinn til jarðar þegar einhver kemur og rakar þau í burtu, ef þú gerir það ekki og einhver fellur fyrir utan hjá  þér er hægt að sakast við þig.......það er bara þannig. Á sumum götum koma þeir sem vinna hjá bænum og raka/blása saman laufunum, henda þeim svo í tilheyrandi tunnur. Það sést m.a.s. í svona græna tunnu á neðstu myndinni. Laufblásararnir eru háværir, hrikalega leiðinlegt hljóð í þeim, verra en slátturvélasuð eða trjásög. Sem betur fer eru þeir ekki mikið notaðir fyrir utan hjá mér því að bæjarstarfsmennirnir byrja oft MJÖG snemma að blása........
Læt þetta duga í dag, Henrik er kominn til að "trufla", hann vill að ég lesi allt bloggið fyrir hann. Erfitt fyrir hann að lesa íslensku en hann er orðinn ansi sleipur í þýskunni, þ.e. að lesa. Ég þyrfti að fá einkakennara til að vera með strákana í íslensku........Hjálmar, langar þig ekki bara að koma sem Au-Pair? Hahahaha. Yrði reyndar að fá mér stærra húsnæði til að taka á móti barnapíum. Ekkert gengur eða rekur í því, erum kannski ekki að leita með miklum móð en alltaf með augu og eyru opin. Lítið að hafa, annað hvort hús á hálfa milljón eða hreysi á 100 þús. Ég ætla ekki að kaupa hús, bara til að kaupa hús.......verð að velja vel. Kona sem við þekkjum vinnur sem fasteignasali og hún sagði "Númer 1 er staðsetning, nr. 2 er staðsetning og nr.3 er staðsetning"! Sjáum til hvað verður........ 

Kallinn kominn heim, bara snemma í því í dag, klukkan er bara hálf níu. Og ég sem eldaði ekki neitt, át bara samlokur með skinku og osti. Strákunum til mikillar gleði. Henrik át tvær :)

Bið að heilsa og við heyrumst síðar gott fólk.





mánudagur, 1. nóvember 2010

Andinn fer að koma...

...örstutt. Andinn er ekki kominn, gef mér ekki tíma til að blogga almennilega, vildi samt láta vita af mér. Að ég sé enn lifandi þrátt fyrir lúsagang..........þessir óboðnu gestir settu allt úr skorðum í mínu lífi, ég fékk næstum því taugaáfall, varð "paranojuð" útaf mylsnu og húðflögum, hrikalega pirruð bara! Þetta bitnaði á öllum í fjölskyldunni, eins gott að hún er ekki stór. Ég klippti strákana vel í gær, greiði mér og  þeim oft á dag. Úff, þetta var ömurleg vika, þannig.
Skrifa meira seinna.........lofa því og þá fylgja myndir með.