mánudagur, 1. nóvember 2010

Andinn fer að koma...

...örstutt. Andinn er ekki kominn, gef mér ekki tíma til að blogga almennilega, vildi samt láta vita af mér. Að ég sé enn lifandi þrátt fyrir lúsagang..........þessir óboðnu gestir settu allt úr skorðum í mínu lífi, ég fékk næstum því taugaáfall, varð "paranojuð" útaf mylsnu og húðflögum, hrikalega pirruð bara! Þetta bitnaði á öllum í fjölskyldunni, eins gott að hún er ekki stór. Ég klippti strákana vel í gær, greiði mér og  þeim oft á dag. Úff, þetta var ömurleg vika, þannig.
Skrifa meira seinna.........lofa því og þá fylgja myndir með.

6 ummæli:

  1. æji ég skil vel þennan pirring, lús er náttúrulega alveg ömurleg, virðist aldrei ætla að fara þegar hún sprettur upp:(
    en vonandi er allt að komast í réttar skorður í Reckling:)
    kossar og knús frá mér:*

    Rakel

    SvaraEyða
  2. Sæl elskan.
    Já það er miður skemmtilegt að fá svona óboðna gesti, en fyrst eg lifði þetta af um árið og Unnur með sitt síða premó hár þá ferð þú létt með það. Bara smá þolinmæði.
    Gangi þér vel.
    Kærar kveðjur úr vetrinum á vík.
    Þín mamma

    SvaraEyða
  3. ...ég minnist þess þegar Rakel fékk eitt sinn lús af dönsku eðalkyni sem þótti stærri en almennt hin íslenska. Sú hafði borist hingað með Kristey nokkurri og setti heimilislíf Gbr. 53 í einskonar óvissu.
    Í fyrsta kasti voru allir fjölskyldumeðlimir þvegnir svo höfuðleðrið ætlaði af en nokkrum dögum síðar sýndi sú danska mátt sinn en hún hélt lífinu þrátt fyrir svarta-péturþvott húsmóðurinnar Laufeyjar. Maður var stippaður á staðnum, lokaður inni, allt sett í þvottavél og því næst baðaður hátt og lágt með eitursterku efni sem enn loðið við mann.
    Sú danska beið í lægra haldi fyrir misþyrmingunum og hefur ekki látið sjá sig aftur á Gbr. 53 en húsmóðirin vopnuð eiturefnum og hörðum uppþvottabursta.
    Þannig að ég mæli með því að slaka á og láta þetta ganga yfir systir góð :)

    kveðja, sá lúsugi
    HjB

    SvaraEyða
  4. hahaha Hjálmar, þetta var FYNDIÐ :)

    Þetta er (vonandi) að hafast, fann reyndar 2 lýs í Henrik, þrátt fyrir stutt hár en þær voru greinilega nýskriðnar úr nitinu, pínulitlar.

    Mig sjálfa, klæjar svo í hausinn en ég greiði mér og greiði, finn samt ekkert lengur. Er orðin sár í leðrinu eftir þetta....

    Reyni að slaka á, já já.

    SvaraEyða
  5. Það er ýmislegt sem gengur á greinilega, eins gott að koma ekki óboðin til þín, það er bara eitrað fyrir manni... U.

    SvaraEyða
  6. Hahaha, þetta var líka fyndið Unnur, ég hló upphátt :D

    SvaraEyða