Ég þori allavega að staðhæfa það að lúsirnar eru farnar, allar sem ein. Ég veit ekki hvað er búin að reyta mörg hár úr mínu höfði en í hvert skipti sem mig klæjaði, eða að mér fannst vera hreyfing í hárinu, greip ég í kambinn góða og þjösnaðist í hárinu........eins gott að ég er með þykkt og mikið hár! Annars væri ég hálf sköllótt. Ég óska engum þess að fá þessa óboðnu gesti en ég sá í sjónvarpinu og m.a.s. súperstjörnur eins og Madonna fá líka svona gesti, hehe.
Smá haustlokamynd til að lífga upp á stemminguna.
Nú er mig virkilega farið að langa í að komast EIN í búðir, þarf svo að fara að huga að jólagjöfum. Ég sé ekki fram á það á næstunni, alltaf eitthvað um að vera, mikið að gera í vinnunni líka. Ætli það endi ekki með því að ég panta flest á netinu, ætti kannski að huga að því, ekki svo vitlaus hugmynd. Mig langar samt að komast ein í búðir, helst með þúsund evrur með mér.......bara spreða. Er samt viss um að ég myndi ekki finna neitt sem mig langar í en það er annað mál ;)
Í næstu viku eru foreldarviðtöl í skólanum og ég gæti skrifað heila ritgerð um hvernig það gekk að fá réttan tíma hjá kennurunum. Best að hafa þetta stutt samt....... Fyrst fékk ég blað til að fylla út, hjá Henrik hvenær ég kæmist ekki, hjá Julian hvenær ég kæmist......OK. Hjá H. fékk ég tíma á mánudaginn kl.13:45, hjá J. á þriðjudaginn kl.14:40.......fattaði þá að ég þarf að fara með H. í heyrnarpróf á þriðjudaginn kl.15:15, í bæ sem er í um hálftíma fjarlægð.....OK, ég bið um nýjan tíma fyrir J. Fékk það og hann er á mán. kl.13:40.... .....glæsilegt.......gleymdi að segja hvenær ég ætti tíma hjá H. Þvílík hringavitleysa, ég var algerlega komin með rugluna í gær. Skrifaði bréf til kennara J. um að fá enn nýjan tíma EN J. gleymdi að láta hana hafa miðann.......SHIT, hvað geri ég nú??? OK, ég skrifa bara bréf til beggja kennaranna um að ég muni vera á staðnum, mæta þar sem ég kæmist fyrst að (oftast þarf maður að bíða, sumir foreldrar hafa mikið að spyrja osfrv.). Vona svo að strákarnir sýni nú kennurunum bréfin á mánudaginn. Náðuð þið þessu......ef ekki, skiptir ekki máli. Það er föstudagur og það er uppáhaldsdagurinn minn. Ég fór í bakaríið og keypti bakkelsi, borðaði það og drakk örbylgjuhitað kaffi með. Úti er haustveður, hvasst og þungbúið. Best að vera bara inni, þvo þvott og hanga á netinu........
Góða helgi og takk fyrir innlitið.
Sæl elskan.
SvaraEyðaGaman að heyra frá þér.
Já það getur verið erfileikum háð að fá tima í foreldraviðtal á "réttum" tima með tvö börn í sama skóla man eftir því, það kom sér stundum vel að hafa stutt að hlaupa þegar ekki var hægt að samræma viðtölin.
Vona að þú komist ein í búðir við tækifæri.
Eigðu góða og rólaga helgi það verður eins hér ekki hundi út sigandi kvast, kalt og snjókoma.
Bestu kveðjur þín mamma