Mini kiwi sem Heri vinnumaður á verkstæðinu kom með :)
Í dag er Þakkargjörðin í USA, ekkert þannig hér, allavega ekki í sömu mynd. Reyndar er eitthvað svipað hér en það er í október,heitir "Erntedankfest" eða uppskeruhátíð. Ég væri alveg til í svona þakkargjörð með kalkún, fjölskylduna í heimsókn og endalaust át......verð að bíða fram að jólum, allavega með matinn. Er ekkert á leið til Ísland enda óhemju dýrt að fljúga með Icelandair, alveg óheyrilegt bara! Fyrst að ég kem ekki verður örugglega snjór, nokkuð víst held ég bara ;) Kannski fáum við snjó hér aftur, allavega er nógu kalt núna og spáð snjó í nótt. Kannski verður hált í fyrramálið, best að keyra varlega á morgun.
Jæja, önnur mynd
Jólamarkaðurinn opnaði á mánudaginn
Ég er svo að hugsa um að sleppa jólakortum í ár............EN eiginlega langar mig ekki til þess. Ætli ég panti ekki myndakort á netinu eins og síðustu ár. Nenni varla að skrifa á jólakort........úff, ég nenni bara engu! Á líka eftir að pakka inn jólagjöfum, kaupa nokkrar og baka smákökur. Gerði piparkökudeig í gær til að Julian gæti farið með það í skólann. Það heppnaðist bara feykivel :)
Læt þetta duga í dag........ætla að spjalla við mömmu á msn.
Knús
Sæl elskan og takk fyrir spjallið í dag.
SvaraEyðaAlveg sammála það er notalegt að versla í Dorsten, fer þangað aftur þegar eg kem næst. Er ekki annars félagi C&A þar?????
Farðu ekki yfirum í jólastressinu.
Kveðja þin mamma.
P.S. Passaðu þig á fj. hálkunni Kv.mamma
SvaraEyðaHæ mamma, jú jú, C&A vinur þinn er þar :)
SvaraEyðaÍ nótt snjóaði ekkert, en það er greinilega frost á bílum svo að götur gætu verið hálar en það var blautt á.
Ég ætla að reyna að njóta "jólastressins" :)