Eiginlega hafði ég svo mikið að segja en núna er eins og allt sé dottið út, ég held að þetta lúsaeitur hafi hreinsað til fyrir innan hauskúpuna líka. Alveg hreint ótrúlegt. Mig klæjar enn í hausinn og gríp í kambinn um leið og mig klæjar......hef ekki fundið lús í dag, 7,9,13, Þetta hjálpar sjálfsagt ekkert, hef hingað til ekki verið hjátrúarfull en mér finnst þetta bara passa við núna. Þessi lús hefur haft okkur í heljargreipum í viku! Henrik greiddi mér aðeins áðan og leit yfir hárið, fannst það nú heldur mikið samt. Ég sagði að lýsnar væru farnar og þá sagði dúllan "Getum við þá knúsast?" Auðvitað gerðum við það........Reyndar áttum við góða stund í gærkvöld, kúrðum öll (ég og strákarnir) áður en að þeir fóru að sofa. Það er toppurinn á tilverunni, sérstaklega hjá Julian.
Nú er aldeilis orðið dimmt seinni partinn. Síðan að klukkan var færð aftur um klukkutíma er fyrr dimmt á kvöldin en þeim mun lengur bjart á morgnana. Gott þegar skólar byrjar kl.8 en núna er ekki dimmt þegar við löbbum þangað. Henrik vill enn að ég fylgi honum og ég geri það, eins lengi og hann vill. Mér er alveg sama þó að það sé mælt með því að krakkar labbi einir eftir nokkrar vikur.......maður veit aldrei hvað getur gerst þó að þetta sé stutt leið. Julian vill ekki labba einn þegar hann þarf í 2.tíma og þarf helst að sjá einhvern til að labba inn á skólalóð. Vill vera viss á því að einhver sé þarna. Æi þeir eru báðir yndislegir blessaðir.
Hey, gleymdi næstum því að setja inn myndir.........
Þessi hjú auglýstu Þakkargjarðar markað í Hochlar bæjarhlutanum
Recklinghausen leuchtet=RE upplýst
Síðustu dagar laufsins á trjánum eru fallegastir
Nú eru laufblöðin alveg að hverfa, falla til jarðar ótt og títt, sérstaklega þegar hvasst er. Í gær lenti ég í stórhríð, þ.e. laufblaðastórhríð. Ég elska þessa hríð, ég fyllist angurværð í svona hríð. Yndislegt. Enn er frekar hlýtt í veðri, 14° í dag og spáð hlýrra á morgun. Svo er víst spáð kaldara, kannski að veturinn sé bara á næsta leyti.......hver veit? Vonandi ekki alveg strax, fyrst mega nú laufin falla alveg af trjánum en sum eiga nokkuð í land. Laufin eru varla fallinn til jarðar þegar einhver kemur og rakar þau í burtu, ef þú gerir það ekki og einhver fellur fyrir utan hjá þér er hægt að sakast við þig.......það er bara þannig. Á sumum götum koma þeir sem vinna hjá bænum og raka/blása saman laufunum, henda þeim svo í tilheyrandi tunnur. Það sést m.a.s. í svona græna tunnu á neðstu myndinni. Laufblásararnir eru háværir, hrikalega leiðinlegt hljóð í þeim, verra en slátturvélasuð eða trjásög. Sem betur fer eru þeir ekki mikið notaðir fyrir utan hjá mér því að bæjarstarfsmennirnir byrja oft MJÖG snemma að blása........
Læt þetta duga í dag, Henrik er kominn til að "trufla", hann vill að ég lesi allt bloggið fyrir hann. Erfitt fyrir hann að lesa íslensku en hann er orðinn ansi sleipur í þýskunni, þ.e. að lesa. Ég þyrfti að fá einkakennara til að vera með strákana í íslensku........Hjálmar, langar þig ekki bara að koma sem Au-Pair? Hahahaha. Yrði reyndar að fá mér stærra húsnæði til að taka á móti barnapíum. Ekkert gengur eða rekur í því, erum kannski ekki að leita með miklum móð en alltaf með augu og eyru opin. Lítið að hafa, annað hvort hús á hálfa milljón eða hreysi á 100 þús. Ég ætla ekki að kaupa hús, bara til að kaupa hús.......verð að velja vel. Kona sem við þekkjum vinnur sem fasteignasali og hún sagði "Númer 1 er staðsetning, nr. 2 er staðsetning og nr.3 er staðsetning"! Sjáum til hvað verður........
Kallinn kominn heim, bara snemma í því í dag, klukkan er bara hálf níu. Og ég sem eldaði ekki neitt, át bara samlokur með skinku og osti. Strákunum til mikillar gleði. Henrik át tvær :)
Bið að heilsa og við heyrumst síðar gott fólk.
Sæl elskan.
SvaraEyðaGaman að heyra frá þér.
Eg vona nú að ekki hafi allt þurkast út úr þínum kolli þótt lúsameðalið hafi verið kröftugt. vonandi eruð þið laus við þennann ófögnuð, öruggara að hafa gát á samt næstu vikurnar.
Bestu kveðjur og hafðu það gott, njóttu haustsins.
Þín mamma.
Allt þetta 7,9,13, dugaði skammt.........fann feita lús í mér í morgun, fulla af blóði! Vonandi var hún ein á ferð en mig klæjaði einmitt síðustu daga og mætti með kambinn í vinnuna.
SvaraEyðagetur reddað íslensku kennslunni með íslenskum AuPair ?
SvaraEyðaHeiða Elín
Já Heiða en málið er að við höfum ekki pláss fyrir Au-Pair ;) Þyrfti að kaupa hús til þess. Get nú ekki látið barnapíuna sofa á sófa inni hjá strákunum..... hehe
SvaraEyða