fimmtudagur, 23. desember 2010
1 dagur til jóla
Ætla nú ekkert að blogga neitt mikið núna, bara nokkur orð svona á Þorláksmessu. Verði þeim að góðu sem borða skötu, ekki geri ég það en Seydi át þennan viðbjóð með bestu lyst hér um árið....
Ég fór í vinnuna fyrri partinn til að hjálpa smá til, tók strákana bara með. Þeir eru "örlítið" spenntir fyrir jólunum, smá þreytandi þessa stundina, mikið að kýta og nöldra.........er það ekki bara eðlilegt svona korter í jól???
Í fyrradag veiktist ég smá en mér leið svoooooooooooo illa seinni partinn, var viss um að eitthvað hefði nú verið í ólagi hjá Kínverjanum en við Seydi fórum út að borða í hádeginu. Ég fór því í bað og lagðist í rúmið og var þar þangað til daginn eftir, tja svona næstum því, náði nú í þvottinn og tók upp þátt fyrir Bärbel vinkonu. Fór ekkert í vinnu í gær, skellti mér til læknis sem heyrði smá hljóð í mallakút og lét mig hafa resept fyrir malladropum, MCP heita þeir nú og gera kraftaverk. Þar sem ég var í bænum notaði ég tækifærið og keypti jólagjafir handa strákunum, rogaðist svo með herlegheitin heim og pakkaði inn áður en ég náði í strákana úr gæslunni en í gær var síðasti skóladagurinn. Gæslan er reyndar opin í dag en við ákváðum bara að vera heima.
Núna er ég komin heim, sit við eldhúsborðið með þráðlausa netið mitt, hlusta á jólakveðjur. Hangikjötið er alveg að fara að sjóða og rauðkálið er byrjað að malla. Strákarnir leika sér í tölvunni og sjónvarpið er í gangi..... Þeir vilja helst opna pakka núna en það er bannað! Ég á eftir að kaupa mér eitthvað svo ég fari ekki í jólaköttinn, eiginlega gjöf handa Seydi líka en hann vill ekkert og segist ekki vanta neitt. Það eru opnar búðir í fyrramálið svo að ég ætla að drífa mig þá.
Óska öllum lesendum gleðilegrar hátíðar og farsældar á nýju ári. Reyndar getur alveg verið að ég bloggi aftur fyrir áramót en ef ekki, læt ég þetta standa líka. Hér verða hvít jól, grýlukerta jól. Ég þarf sem sagt ekkert að fara til Íslands til að fá hvít jól..........enda hefur það gengi brösulega að fá þau þessi síðustu tvö skipti sem ég kom um jólin, hahaha. Vantar bara fjall til að skíða í, þá væri þetta frábært. Get reyndar keyrt í fjöllin en það tekur um 2 tíma, veit ekki hvort að ég nenni því í þessu vetrarríki sem hér er núna.
Farið ykkur hægt og ekkert stress...........
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Gleðileg jól til þín og þinna...
SvaraEyðaSæl elskan mín, gleðileg jól, takk innilega fyrir gjafirnar.
SvaraEyðaHafðu það gott og bestu jólakveðjur.
Þín mamma.