Ekki veit ég hverju ég ætla að klæðast á aðfangadag enda eru þetta kannski 2-3 tímar sem ég er fín og svo taka bara lummuheitin við, þ.e. heimadress og sjónvarpsgláp. Þegar ég fer til Íslands er allt annað upp á teningnum, þá þarf að eiga mörg dress...... eitt fyrir aðfangadag, annað á jóladag, þriðja á jólaball, fjórða á gamlárs og eitthvað fleiri þar á milli. Þvílíkt stress sem ég slepp við í ár, hahaha. Svo á ég nú eitthvað að fínni fötum sem hanga inni í skáp og rykfalla því að þau eru svo sjaldan notuð. Ég er eiginlega hætt að kaupa mér "ofur" fín föt þar sem ég sé varla fram á að nota þau, er meira þessi praktíska týpa og finnst auðvitað best að vera í gallabuxum og langerma bol, kannski vesti utan yfir ef það er kalt. Lopavestið frá Unni er í miklu uppáhaldi þessa dagana, ég er ansi hrædd um að ég þurfi að þvo það á næstunni......já hrædd um, því að ég er skíthrædd um að skemma það! Á ég að treysta ullarstillingunni á þvottavélinni??? Ég á alveg þvottaefni fyrir ull en ég bara má ekki láta vestið hlaupa.......það væri hálfgerður heimsendir.
Best að ath. hvort ég eigi mynd handa ykkur..........
Jólin, jólin, jólin koma brátt...
Ég veit, fyrir ykkur sem eruð á facebook er þetta ekki ný mynd en mamma, kvittarinn mikli, er ekki búin að sjá hana.....nema hún hafi fengið að kíkka hjá einkasyninum, efast samt um það. Mamma, fyrir þig :) Ég dreif bara í því að skreyta en Julian vildi endilega ná í jólatréð svo ég lét af þeirri ósk þó að hefð hafi verið fyrir því á Garðarsbraut 53, að skreyta tréð á Þorláksmessu. Ég bý bara til mínar eigin hefðir, blanda þeim við gamlar hefðir en læt engan segja mér hvenær ég geri hitt eða þetta........Ég ræð mér sjálf. Nei, nei, það var enginn að segja mér að gera neitt, er bara að reyna að blogga um eitthvað, allt og ekkert, hitt og þetta, hehe.
Mig langar svo til að komast í klippingu fyrir jól. Er samt ekki búin að finna neinn klippara sem ég myndi endilega fara aftur til og í strípur hef ég aldrei farið......hér í Þýskalandi sko. Treysti þeim ekki alveg, nema ég fari á einhverja fína stofu en það er varla stígandi þar inn nema vera með millur í veskinu, svo segja sögurnar. Mér fannst klippingin á fréttakonunni í "Megamind" bíómyndinni ansi girnileg en með mitt liðaða hár veit ég ekki hvernig hún kæmi út.......tek það fram að þetta er teiknimynd ;) Eða svona Pixar dæmi, þið vitið. Ef ég léti klippa mig frekar stutt núna væri ég komið með minn eigin háralit, geri aðrir betur.........Þó ég segi sjálf frá, þá er ég bara með nokkuð fallega brúnt hár, fyrir utan þessi nokkru gráu í vöngunum, mætti kannski vera meiri gljái en það má redda því. Sé til hvað ég geri.......
Þetta er skvísan úr Megamind :)
Jæja elskurnar, óska þess að jólastressið fari ekki alveg með ykkur. Mamma sagði alltaf fyrir jólin: Jólin koma þó að allt sé ekki tilbúið........

Sæl elskan.
SvaraEyðaGaman að sjá hvað er orðið jólalegt hjá þér.
Eg er nú ekki svo föst í hefðum um jólin það verðu hver að hafa það eins og hann vill og best væri að geta verið á náttfötunum öll jólin.
Eg mæli með því að þú látir klippa þig eins og þessi teiknimyndafígúra það mundi örugglega fara þér vel.
Hafðu það gott. Kveðja mamma.
rosalega jólalegt orðið hjá ykkur - glæsilegt! ég er alveg komin á amerísku hefðina með jólatréð, því við sækjum það í byrjun desember og njótum ilmsins allan mánuðinn og þrátt fyrir það þá er ég var til í að kveðja jólin á þrettándanum...
SvaraEyðaklippingin er flott, en hugsaðu málið vel og vandaðu valið enn betur á hárgreiðslumeistaranum - vil ekki heyra af þér ósáttri með nýja klippingu.
bestu kveðjur