sunnudagur, 5. desember 2010

Jólin nálgast óðum...

... og ég held að ég sé bara í góðum málum. Búin að kaupa allar jólagjafir sem fara heim, pakka þeim inn, skrifa á umslögin (er með standard kort handa öllum), kaupa kassa á pósthúsinu og koma þessu öllu í hann ásamt smá sætindum, skrifa á tollmiðann, meira sem þetta er orðið flókið allt saman........er víst ekki vel séð að skrifa bara "föt" (eða clothes á ensku) heldur á helst að skrifa "bómullar skyrta" osfrv........ég skrifaði þetta alveg eins skynsamlega og ég gat enda ekki endalaust pláss til að koma þessu öllu fyrir! Ekki gert ráð fyrir að fólk sé að senda marga tugi af mismunandi dóti eða hvað??? Æi, ég vona bara að pakkinn komist til skila fyrir jól, á að taka 5-10 daga að komast til Íslands. Nú svo þarf pósturinn á Íslandi endilega að vera með annað kóðakerfi en hér svo ég gat t.d. ekki fylgst með pakkanum á Íslandi í fyrra.........og hann kom á aðfangadag. Var löngu farinn úr landi, það gat ég séð. Vonum bara það besta.

Hér er allavega kominn jólasnjór, alveg spurning hvort að hann verður enn þegar jólin sjálf koma. Við skelltum okkur á þotu í dag. Komum svo hundblaut heim enda var hálfgerð slydda og slabb og blautt úti. Ég hitaði því kakó handa okkur til að ylja kaldar tásur og putta. Best að sýna ykkur fína snjókarlinn minn :)
Flottur með 66°N húfu, samt smá fúll greyið....

Ég labbaði ein í bæinn áðan, mikið var það nú gott, þrátt fyrir slabb og læti. Og viti menn....ég fann bæði dagatalakerti og aðventuljós, jibbí. Eitthvað sem er alger hefð hjá mér en aðventuljósið sem ég keypti í fyrra á flóamarkaði er klikk, fæ engar perur í það og ég var búin að leita að dagatalakerti útum allt! Fann það svo í dm-drogeriemarkt þrátt fyrir að starfstúlkurnar þar hefðu sagt mér um daginn að þau væru ekki til....... örugglega kerti frá því í fyrra eða hitteðfyrra (er þetta orð skrifað svona??). Þegar ég kem heim úr bænum, búin að ryðja þunga snjónum af bílunum okkar, mæti ég köllunum mínum á leið til tengdó. Æi, ég ákvað bara að vera heima og hlusta á jólastjörnuna, blogga og skoða facebook, hahaha. Er enn smá kvefuð og ákvað að taka töflurnar mínar góðu við nefholustíflum og  þær eru að virka en í gær fékk ég í vinstra eyrað.....ég sem fæ aldrei í eyrun, ekki einu sinni sem krakki. Er skárri í dag en verð að passa mig. 

Þokkalegt blogg í dag.......að ég skuli nenna þessu. 

Knús á sunnudegi og gleðilegan annað í aðventu. Já og vitiði hvaðan aðventurkransinn er??? Nú auðvitað frá Þýskalandi, hvað annað :)

5 ummæli:

  1. Sæl elskan.
    Bara enginn búin að kvitta er eg sú eina sem les þetta?????????????
    Voðalega ert þú dugleg að undirbúa jólin, hér er bara ekkert að gerast í þeim efnum. Skárum að vísu laufabrauðið í dag vonandi fynnst tími á morgun til að steikja. En jólin koma nú alltaf aftur og aftur þótt ekki komist allt í verk sem maður vill gera eða langar til. Vonandi ertu laus við kvefskitinn. Gaman að sjá snjókallinn þinn mað 66°húfuna. Hafðu það gott.
    Kveðja mamma.

    SvaraEyða
  2. Neibb, ég er farin að halda að fólk annað hvort lesi ekki eða bara kvitti ekki. Veit reyndar að Valla reyndi að kvitta en það klikkaði eitthvað.

    Þið hljótið nú að finna tíma til að steikja, annars hélt ég að þið myndið gera þetta um helgi? Ég man nú að þitt mottó fyrir jólin var alltaf "jólin koma sama hvað verður"....það er gott móttó.
    Kvefið er betra, tek töflurnar en ég er samt ansi þreytt í augunum, verð bara að sofa meira líka.....

    Knús og kveðjur

    SvaraEyða
  3. Sæl Inga mín.
    Það er alltaf jafngaman að lesa bloggið þitt. Kíki nokkuð reglulega hérna inn (en kvitta ekki eins oft ;).
    Jólaundirbúningurinn er á fullu á mínu heimili, einkasonurinn á afmæli á föstudaginn og þá höfum við haft það fyrir sið undanfarin ár að hafa næstum allt tilbúið og jólin mega bara koma þá :) Þá eru yndislegar 2 vikur til jóla sem fara í kaffihúsarölt og rólegheit :)
    Hafðu það sem allra best nú sem endranær.
    knús og kossar frá Hafnarfirði
    kv. Guðlaug

    SvaraEyða
  4. Hæ Guðlaug mín. Takk fyrir kvittið :)
    Þetta finnst mér sniðugt hjá ykkur, láta bara jólin koma í rólegheitum, magnað.
    Já og einkasonurinn bara að verða unglingur! Hvað tíminn líður hratt.....

    Kveðja til ykkar

    SvaraEyða
  5. Sæl elskan.
    Eg sé að það er -2°hjá þér. Hér er +10°á óopinberum mæli við eldhúsgluggann.
    Smá munur.
    Kveðja mamma

    SvaraEyða