Hér er allavega kominn jólasnjór, alveg spurning hvort að hann verður enn þegar jólin sjálf koma. Við skelltum okkur á þotu í dag. Komum svo hundblaut heim enda var hálfgerð slydda og slabb og blautt úti. Ég hitaði því kakó handa okkur til að ylja kaldar tásur og putta. Best að sýna ykkur fína snjókarlinn minn :)
Flottur með 66°N húfu, samt smá fúll greyið....
Ég labbaði ein í bæinn áðan, mikið var það nú gott, þrátt fyrir slabb og læti. Og viti menn....ég fann bæði dagatalakerti og aðventuljós, jibbí. Eitthvað sem er alger hefð hjá mér en aðventuljósið sem ég keypti í fyrra á flóamarkaði er klikk, fæ engar perur í það og ég var búin að leita að dagatalakerti útum allt! Fann það svo í dm-drogeriemarkt þrátt fyrir að starfstúlkurnar þar hefðu sagt mér um daginn að þau væru ekki til....... örugglega kerti frá því í fyrra eða hitteðfyrra (er þetta orð skrifað svona??). Þegar ég kem heim úr bænum, búin að ryðja þunga snjónum af bílunum okkar, mæti ég köllunum mínum á leið til tengdó. Æi, ég ákvað bara að vera heima og hlusta á jólastjörnuna, blogga og skoða facebook, hahaha. Er enn smá kvefuð og ákvað að taka töflurnar mínar góðu við nefholustíflum og þær eru að virka en í gær fékk ég í vinstra eyrað.....ég sem fæ aldrei í eyrun, ekki einu sinni sem krakki. Er skárri í dag en verð að passa mig.
Þokkalegt blogg í dag.......að ég skuli nenna þessu.
Knús á sunnudegi og gleðilegan annað í aðventu. Já og vitiði hvaðan aðventurkransinn er??? Nú auðvitað frá Þýskalandi, hvað annað :)
Sæl elskan.
SvaraEyðaBara enginn búin að kvitta er eg sú eina sem les þetta?????????????
Voðalega ert þú dugleg að undirbúa jólin, hér er bara ekkert að gerast í þeim efnum. Skárum að vísu laufabrauðið í dag vonandi fynnst tími á morgun til að steikja. En jólin koma nú alltaf aftur og aftur þótt ekki komist allt í verk sem maður vill gera eða langar til. Vonandi ertu laus við kvefskitinn. Gaman að sjá snjókallinn þinn mað 66°húfuna. Hafðu það gott.
Kveðja mamma.
Neibb, ég er farin að halda að fólk annað hvort lesi ekki eða bara kvitti ekki. Veit reyndar að Valla reyndi að kvitta en það klikkaði eitthvað.
SvaraEyðaÞið hljótið nú að finna tíma til að steikja, annars hélt ég að þið myndið gera þetta um helgi? Ég man nú að þitt mottó fyrir jólin var alltaf "jólin koma sama hvað verður"....það er gott móttó.
Kvefið er betra, tek töflurnar en ég er samt ansi þreytt í augunum, verð bara að sofa meira líka.....
Knús og kveðjur
Sæl Inga mín.
SvaraEyðaÞað er alltaf jafngaman að lesa bloggið þitt. Kíki nokkuð reglulega hérna inn (en kvitta ekki eins oft ;).
Jólaundirbúningurinn er á fullu á mínu heimili, einkasonurinn á afmæli á föstudaginn og þá höfum við haft það fyrir sið undanfarin ár að hafa næstum allt tilbúið og jólin mega bara koma þá :) Þá eru yndislegar 2 vikur til jóla sem fara í kaffihúsarölt og rólegheit :)
Hafðu það sem allra best nú sem endranær.
knús og kossar frá Hafnarfirði
kv. Guðlaug
Hæ Guðlaug mín. Takk fyrir kvittið :)
SvaraEyðaÞetta finnst mér sniðugt hjá ykkur, láta bara jólin koma í rólegheitum, magnað.
Já og einkasonurinn bara að verða unglingur! Hvað tíminn líður hratt.....
Kveðja til ykkar
Sæl elskan.
SvaraEyðaEg sé að það er -2°hjá þér. Hér er +10°á óopinberum mæli við eldhúsgluggann.
Smá munur.
Kveðja mamma