föstudagur, 31. desember 2010

Ósk um gleðilegt ár

Rennið vel inn í nýja árið, eins og sagt er hér.......hérna munu örugglega margir renna í alvörunni því að  það er glerhált, í morgun var íshúð á gangstéttum og bílum. Ég datt samt ekki á leið í bakaríið og til kjötkaupmannsins. Eftir hádegi fór ég EIN í bæinn, það var kærkomin stund og þegar heim var komið var ég áfram ein, það var indælt svo ég skellti í kurltoppa, reyndar ekki alvöru, setti annað súkkulaði........ætla að luma á lakkrískurlinu aðeins lengur. Þar sem topparnir pössuðu ekki allir á eina plötu gerði ég bara botn úr restinni, skellti rjóma á hann og frosna trópíska ávextir þar ofan á.......ætla með tertuna til Sultan mágkonu á eftir. Við munum eyða áramótunum þar, förum alveg að leggja í´ann. Sitjum bara hér og horfum á TV, höngum á netinu og fleira mis gáfulegt. Ég er tilbúin, þarf kannski aðeins að laga á mér hárið og taka til dót í handtösku til að fara með. Ætla líka að taka slatta af heimabarnum með, þarf endilega að losna við eitthvað af þessu.

Ég set mér engin áramótaheit, ekki þannig. Mætti samt alveg slaka aðeins á, ekki stressa mig svona á smáhlutum ..... taka hlutunum með ró, ekki æsa mig og svo framvegis. Það er fínt áramótaheit. Njóta líka þess sem ég hef með bros á vörum. Neikvæðni fer illa með mann, ójá.

Gangið hægt um gleðinnar dyr kæru lesendur. Sjáumst á nýju ári.

2 ummæli:

  1. um að gera að njóta lífsins bara alveg eins og það er - því lukkulegt er það! takk fyrir samskiptin á árinu, við sjáumst vonandi í sumar (engir farmiðar komnir enn)- njótið kvöldsins...

    SvaraEyða
  2. Gleðilegt ár elsku Inga mín og þið öll.
    Þetta er ágætt áramótaheit, stattu bara við það.
    Njóttu nýja ársins.
    Kveðja mamma.

    SvaraEyða