Vorið er samt eitthvað að reyna, komnir hnappar á nokkra runna og tré, krókussar gægjast upp úr jörðinni og moldvörpurnar mættar.
En meðan að það er svona kalt, fer náttúran á "hold", stendur bara í stað. Vona bara að veturinn verði ekki eins langur og í fyrra.......
Veikindi hafa hrjáð okkur undanfarið. Henrik með bronkítis og Julian kvef og fékk svo hita í vikunni. Við urðum samt að sinna ýmsu, ég fór aðeins í vinnuna á fimmtudaginn, svo átti Henrik tíma hjá lækni til að hlusta og þar á eftir áttum við þrjú tíma hjá tannsa. Þar var gert við holur hjá báðum og mínar framtennur slípaðar, eins og vanalega......ég þurfti því að borga 10 evrurnar komugjald en fyrir bara skoðun þarf ég ekki að borga neitt. Tannsarnir eru svo ekki með í kerfinu hjá hinum læknunum svo að ef ég þarf til læknis á þessum fjórðung verð ég að borga 10 evrur þar líka, reyndar bara einu sinni og get þá farið til eins margra lækna og ég vil. Er nú samt ekkert mikið fyrir að fara til læknis, annað en flestir Þjóðverjar. Þeir eru heimsmeistarar í læknisheimsóknum eða um 18 sinnum á ári!! Get rétt ímyndað mér hvað sumir fara OFT en ég fer kannski þrisvar á ári...... Það þarf eitthvað að gera í þessu, t.d. að hafa komugjald í hvert skipti. Svo þarf að sameina sjúkrakassana og hafa þá færri en þeir eru bara of margir og hver með sitt batterí....... Alltaf að hækka gjöldin og taka aukagjöld. Get samt ekki kvartað yfir þessu kerfi t.d. fá strákarnir allt frítt.
Jæja, nóg komið af kvarti. Best að setja aðra mynd inn.
Gat loksins hengt út þvott, þrátt fyrir kulda.
Þetta er orðið ágætt í dag. Segi bara bless í bili

