sunnudagur, 30. janúar 2011

Ennþá kalt

Enginn endir á þessum kulda, allavega ekki í bili. En þar sem það er hæð yfir landinu er veðrið ofur rólegt, logn og í gær var sól. Fínt að hafa þetta bara svona, betra en aðeins hlýrra og rigning.

Vorið er samt eitthvað að reyna, komnir hnappar á nokkra runna og tré, krókussar gægjast upp úr jörðinni og moldvörpurnar mættar.


En meðan að það er svona kalt, fer náttúran á "hold", stendur bara í stað.  Vona bara að veturinn verði ekki eins langur og í fyrra.......

Veikindi hafa hrjáð okkur undanfarið. Henrik með bronkítis og Julian kvef og fékk svo hita í vikunni. Við urðum samt að sinna ýmsu, ég fór aðeins í vinnuna á fimmtudaginn, svo átti Henrik tíma hjá lækni til að hlusta og þar á eftir áttum við þrjú tíma hjá tannsa. Þar var gert við holur hjá báðum og mínar framtennur slípaðar, eins og vanalega......ég þurfti því að borga 10 evrurnar komugjald en fyrir bara skoðun þarf ég ekki að borga neitt. Tannsarnir eru svo ekki með í kerfinu hjá hinum læknunum svo að ef ég þarf til læknis á þessum fjórðung verð ég að borga 10 evrur þar líka, reyndar bara einu sinni og get þá farið til eins margra lækna og ég vil. Er nú samt ekkert mikið fyrir að fara til læknis, annað en flestir Þjóðverjar. Þeir eru heimsmeistarar í læknisheimsóknum eða um 18 sinnum á ári!! Get rétt ímyndað mér hvað sumir fara OFT en ég fer kannski þrisvar á ári...... Það þarf eitthvað að gera í þessu, t.d. að hafa komugjald í hvert skipti. Svo þarf að sameina sjúkrakassana og hafa þá færri en þeir eru bara of margir og hver með sitt batterí....... Alltaf að hækka gjöldin og taka aukagjöld. Get samt ekki kvartað yfir þessu kerfi t.d. fá strákarnir allt frítt.

Jæja, nóg komið af kvarti. Best að setja aðra mynd inn.

Gat loksins hengt út þvott, þrátt fyrir kulda.
Þetta er orðið ágætt í dag. Segi bara bless í bili


4 ummæli:

  1. Sæl elskan.
    Hvernig er það er eg sú eina sem les þetta. Það er nú ekki hægt að enginn kvitti.
    Knúsaðu kallana, kveðja mamma.

    SvaraEyða
  2. Það má vel vera mamma, fólk er hætt að lesa blogg. Maður þarf helst að skrifa í Pressuna eða á bleikt.is til að einhver lesi ;)

    Góða helgi og njóttu þess að vera "ein"

    SvaraEyða
  3. abb-abb-babb, ég les, ég á það bara til að gleym að fara á bloggrúnt í nokkra daga! við megum ekki gefa okkur inga, við erum að verða eins og sjaldséðu hvítu hrafnarnir...

    talsvert vorlegra hjá þér heldur en hér hjá mér í vetrarríkinu ískalda.

    (færðu ekki klemmuför á axlirnar, ég hengi bolina alltaf upp á snúningunum)

    bestu kveðjur

    SvaraEyða
  4. Já Stella, við erum orðin sjaldgæfir fuglar.....eitthvað annað en áður var!

    Stundum kemur far en þar sem snúran er svo lág rekast ermarnar í gólfið ef ég hengi upp á snúningum ;) Skiptir mig engu máli, ég strauja ekki einu sinni :)

    SvaraEyða